Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Ben á Z !

Nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins er á MBL  í viðtali. Þessi frumraun formannsins  var honum til sóma og voru svör hans einörð, skýr og málefnaleg.

Formanninum tókst að draga fram skilin milli skattastefnu vinstriflokkanna og Sjálfstæðisflokksins og það himin og haf sem skilur heimssýn þessara ólíku hugmyndakerfa.

 Sjálfstæðisflokkurinn skilur órjúfanlegt samband heimilanna og atvinnulífsins, að hvorugt gengur án hins. Þetta er vinstriflokkunum hulið þar sem þeir vilja skattleggja heimilin fyrst til þess að fjármagna gæluverkefni sín í atvinnulífinu.

Ríkisstjórnin rekur núna 4 peningalausa ríkisblanka, þar sem dagskipunin er að innheimta með hörku allar skuldir heimilanna en keyra atvinnulífið í þrot með hæstu vöxtum á vanskilaskuldir þeirra sem fyrirfinnast á jarðkúlunni  .  Ekkert fjármagn er í boði til nýsköpunar eða reksturs. Ríkisfyrirtækjum fjölgar dag frá degi  og rekur ríkið nú fjölbreyttan stvinnurekstur frá steypuframleiðslu til flugsamgangna og verktöku. VEB, -Volks Eigene Betriebe hét það þegar sumir af núverandi hagstýrendum landsins voru við nám í A-Þýzkalandi.

Gengi krónunnar hrynur nú dag frá degi undir stjórn norska kratans í Seðlabankanum, sem ætlaði sérstaklega að vernda gengið þegar hann tók við. Vextir, verðbólgan og gengið rekur sig allt á annars horn enda er vinstrimönnum yfirleitt fyrirmunað að skilja efnahagsmál.  Atvinnuleysið vex dag frá degi en hvíta vofan ræðir um bann við nektarsýningum  og inngöngu í ESB sem helsta áhugamál sitt.

Ég hvet menn að hlusta á Bjarna Ben á Z

 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; verkfræðingur góður !

Hjá bræðrum okkar; Kínverjum hefir aldur og reynsla, um árþúsunda skeið, vegið meir, í forfrömun manna, en að hefja á stall, ungæðishátt hinna óreyndu.

Því; hygg ég, að skynsamlegast sé, burt séð frá stjórnmálunum, almennt; að láta nokkurn tíma líða, og ár falla að ósi - áður ég færi að hampa ungliðum nokkrum, nema svo ólíklega vildi til, að þeir verðskulduðu, sannanlega, og hefðu unnið til metorða nokkurra, fölskvalaust.

Svo sýnist mér nú ekki; því miður, um þennan ungliða, en,..... hver veit, hvað síðar kynni að verða ?

Ekki mun af veita; siðbótinni, í Valhallar ranni ! 

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 20:49

2 Smámynd: Benedikt Kaster Sigurðsson

Búinn að horfa á hann á Z og fannst einmitt ekki koma vel frá þessu.  Byrjaði t.d. þegar hann var spurður út í hvað kynslóðaskipti hefðu í för með sér, sagði hann að það kæmi í ljós á næstu misserum.  Var líka eitthvað tens á því þegar talið barst að útrásavíkingum og tengingu hans við þá.  Eiga þeir að sitja uppi með þetta allt saman? Hljómaði ekki vel í mín eyru.  Fannst hann samt ágætur miðað við að hann leiðir þriðja stærsta flokk landsins.   Kveðja Benni.

Benedikt Kaster Sigurðsson, 30.3.2009 kl. 22:06

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Er ennþá verið að grenja yfir sósíalistum og kommúnistum? Er það ekki löngu orðið ljóst að það er enginn munur á vinstri og hægri?

Hávaxtastefnan var söm undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Þrír stærstu bankarnir voru þjóðnýttir undir stjórn þeirra sömu. Landið sökk með manni og mús undir stjórn flokksins bláa.

Ég er ekki að segja að samfó og VG séu betri eða betur gefnir, en þeir eru sannarlega ekki verri.

Villi Asgeirsson, 31.3.2009 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband