Leita í fréttum mbl.is

Fjölmiðlun verði frjáls á Íslandi !

Ég skal viðurkenna það, að það pirrar mig meira og meira að taka upp Fréttablaðið sem eina prentmiðilinn sem berst til mín á virkum dögum.

 

Í dag greinir það þó frá því, að erfiðleikar í rekstri neyði það til að taka upp sparnað í dreifingu blaðsins. Eftir sem áður er því komið í hendur yfir 90 þúsund einstaklinga.

 

Þessi Baugsmiðill, sem dreifir skipulega pólitísku hatri til lesenda sinna, ætti það skilið að þeir sem átta sig á pólitísku og  hlutverki Fréttablaðsins, límdu sérstakan miða á bréfalúgur sínar þar sem afþökkuðu blaðið. Legðu þannig sitt lóð á þá vogarskál að hnekkja dreifingu þess sem aftur myndi draga úr auglýsingagildi þess.

 

Í dag fuðraði ég upp við að lesa leiðara fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann fer hamförum gegn þeirri skoðun meirihluta þjóðarinnar, að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Hann hampar auglýsingum frá sértrúarsöfnuðum og viðskiptablökkum sem einu von Íslands til að ganga undir okið og taka upp evru. Ég hugsaði til baka, að þennan mann hefði ég stutt til áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum gegn Davíð Oddssyni á sínum tíma. Já, tímarnir breytast og mennirnir með.

 

Í leiðaranum útnefnir Þorsteinn Steingrím Sigfússon,  sem leiðarstjörnu landsins í Evrópumálum og peningastefnu landsins. Hann  leggur traust sitt á, að Steingrímur og VG  nái lendingu í málinu með Samfylkingunni. Þrátt fyrir það að þessir flokkar  láti ekkert uppi um áform sín í efnahagsmálum eftir kosningar.

 

Áframhald leiðarans  finnst mér vera svartnættisraus um áframhaldandi kreppu  og margra ára atvinnuleysi á Íslandi ef ekki verði farið eftir ráðum skrifarans. Hann klykkir út með því að heimta myndun þjóðarhreyfingar, sem neyði Ísland inní ESB. Ef til vill var það þvílíkt sjálfsálit á ágæti eigin skoðana sem leiddi til þess að landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafnaði þvergirðingslund Þorsteins Pálssonar á sínum tíma og kaus Davíð Oddsson í hans stað til að leiða þjóðina til mestu uppgangstíma í hennar sögu.

 

Að þessu loknu las ég pistil Jónínu Michaelsdóttur um frumkvæði í samskiptum. Ekki er Fréttablaðið albölvað hugsaði ég,  þegar maður fær svona grein í stað algengs Evrópuofstækispistils eftir Þorvald Gylfason, eða þá hatursprédikun eftir Guðmund Andra Thorsson, sem oftlega finnast við hliðina á leiðaranum. Hafi Jónína mína þökk fyrir skrifin.

 

Leiðarasíðuna prýðir svo tilraun Bergsteins til að ófrægja nýjan formann Sjálfstæðisflokksins um skoðanaskipti í Evrópumálum og krefja formann Framsóknarflokksins um iðrun og yfirbót  vegna 90 % húsnæðislánanna. Verðug skrif fyrir Fréttablaðið og árétting minnar skoðunar á blaðinu.

 

Sem sagt, þarna birtist fólki hættan af því að peningavaldið hafi yfirráð yfir svo útbreiddum fjölmiðili eins og Fréttablaðið er. Þarna eru lamdar inn þær skoðanir, sem auðvaldinu eru þóknanlegar og reynt að níða allar aðrar skoðanir niður. Áhrif þess að fjölmiðlalögin voru stöðvuð á sínum tíma birtast þarna enn einu sinni og styrkir þjóðina í alkunnri ást sinni á forsetanum Ólafi Ragnar Grímssyni. En tíminn og skynsemi þjóðarinnar mun að lokum sjá í gegnum þetta moldviðri allt saman um leið og tennurnar detta smám saman úr skolti Baugsófreskjunnar.

 

Þorsteinn Pálsson gæti ef til vill útskýrt það fyrir okkur,  hvernig við tökum upp evru á morgun.  Einhverjir  vita að evrunni yrði ekki skipt á 160 krónur við það tækifæri. Norski kratinn í Seðlabankanum treystir sér að minnsta kosti ekki til að gefa gjaldeyririnn frjálsan um þessar mundir.Enginn lausn er í sjónmáli hvernig við getum losnað út þeim höftum sem Baugsveldið fyrst og fremst kom okkur í. Og Þorsteinn Pálsson er starfsmaður þessa sama veldis. 

 

Með allri virðingu fyrir Þorsteini Pálssyni þá held ég að hann hafi ekki skýrari Evrópusýn en 1900 landsfundarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem höfnuðu ESB aðild. Hann vex ekki sjálfur af því að gera lítið úr skoðnum  flokksins og krefjast þess að ný framboð komi fram honum til höfuðs.

 

 Ég er hinsvegar sannfærður um að það væri mjög æskilegt fyrir  þjóðina  að fá annan prentmiðil innum lúguna hjá sér á morgnana en Fréttablaðið.  Ég vildi líka að innlendur fréttaflutningur flytti fréttir sínar með hlutlægari hætti en nú er, þegar hver fréttamaðurinn af öðrum dettur uppí  pólitísk störf hjá umbjóðendum sínum og húsbændum til margra ára. . 

Ég vildi óska þess að einhver lausn finnist á því að fjölmiðlun yrði aftur frjáls á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Allt satt, gott og rétt. Vonandi skánar Mogginn eitthvað í höndum nýrra eigenda en hann hefur undanfarið minnt mest á gamla Þjóðviljann í pólitískri rétthugsun, að viðbættu Evrópu- blaðri.

Vilhjálmur Eyþórsson, 31.3.2009 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418199

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband