Leita í fréttum mbl.is

Var kosið um ESB ?

Alveg er það makalaust hvernig Fréttablaðið slær því upp að ESB-sinnar  hafi unnið sigur í kosningunum. Eiginlega ósvífni í Baugsmiðlinum og hrein fölsun á niðurstöðum kosninganna. Og frammámenn taka undir í einum kór og maður heldur helst að þeir séu bara komnir í Evrópubandalagið. Þeir gleyma því bara að það bannaði þeim enginn að gera uppí evrum eða versla í evrum meðan allt lék hér í lyndi. Nú er eins og þeir komi af fjöllum að hér skuli engar evrur fást.

Samfylkingin tapar í kosningunum, nær ekki þrjátíuprósent. Ekki er það ESB sigur. Það er VG og Núllið sem vinna sigrana. 'haldið tapar þriðjungi þingstyrksins. Ég fullyrði að það tap var ekki vegna ESB heldur af öðrum ástæðum. Enda flokkurinn sagt það skýrt að hann vill að þjóðin velji um það hvort hún vilji reyna inngöngu.  Fréttablaðið vill bara afgreiða málið strax á Alþingi. Benedikt Jóhannesson lætur birta mynd af sér með Hallgrími Helgasyni undir merkjunum SAMMÁLA. Þungt fyrir  Sjálfstæðismenn að horfa uppá þá niðurlægingu góðs drengs.

Af hverju eyða þessir sammála evrusinnar  ekki tíma í að velta fyrir sér ástandinu á Spáni ? Atvinnuleysið 18 % og á hraðri uppleið til áætlaðra 30 prósenta. Sársaukafullt verðhjöðnunarferli hafið sem sagt er að verði að leiða til lækkunar launa og verðlags um helming eigi að vera von til þess að efahagslífið fari í gang aftur.  Spánverjar  geta ekki fellt gengi evrunnar. Þeir geta bara gengisfellt allt annað, svo sem lífskjörin, eignirnar og svo sjálfsvirðinguna sem fylgir því að vera ekki lengur herrar í eigin landi heldur fjarstýrt útbú frá Þýzkalandi.  Aldrei lagðist El Chaudillo svona lágt fyrir veldi Hitlers.

Ég held að krónurógberarnir okkar ættu að skýra muninn á þessu spænska ástandi  og okkar aðstæðum fyrir þjóðinni.   Vandi Spánverjanna er af svipuðum rótum sprottinn og  okkar vandi.  Í okkar davíðska góðæri streymdu jöklabréf og erlent framkvæmdafé inn til okkar Íslendinga. Gengið styrktist og hér var gósentíð neytenda.  Þjóðin fór á eyðslufyllerí, vandi sig á lúxuslíf og kruðerí uppá hvern dag. Allir kepptust við að taka  lán og taka botngíraðar stöður. Svo kom lánsfjárþurrðin og svo heimskreppan þar ofaná. Nú þykjast evruspekingarnir  sjá að bakslagið sé allt krónunni að kenna, sem stóðst ekki áhlaup heimskreppunnar. Hér standa  þúsundir íbúða óseldar og atvinnuleysið er komið í 9 %.

Á Spáni streymdu inn túristarnir með gjaldeyrir og nóg var til af evrum.  Nú koma bara ekki túristarnir og og engar evrur.  Milljón íbúðir óseldar og allt í hönk í túristabransanum. Þeir geta bara ekki prentað peninga eins og Steingrímur getur.

Steingrímur ætlar að prenta peninga  þegar  hann segist ætla að endurfjármagna ríkisbankakerfið sitt.  Hann talar ekki um að þetta sé allt með innistæðulausum pappír.   Hann segir ekki að þetta felli gengið óhjákvæmilega gagnvart evrunni góðu.   Hann segir að þetta séu peningaseðlar samt. Við getum sosum logið því að okkur sjálf fyrir okkar góða  Steingrím,  að þetta sé bara ágætt hjá honum að endurfjármögnun bankana eins og hann kallar það. Og víst vantar okkur bankastarfsemi í gang.  En auðvitað vita allir hvað er að gerst. Þegar það rennur upp fyrir  lýðnum verður evruákallið og krónurógurinn væntanlega enn heitari hjá þeim trúuðu. Það er nefnilega skammgóður vermir að ....í skóinn sinn.

Það er hrein þjóðlygi að það hafi verið kosið um ESB aðild. Það er líka hrein þjóðlygi að tala um að ESB aðild geri eitthvað til að leysa vandann sem á þjóðinni brennur.  Það var kosið til að taka á vandamálum líðandi stundar. Því miður er ekkert útlit fyrir það að þessi stjórn nái því á næstunni vegna þess hversu upptekin hún er af aukaatriðum. ESB umræðan er eitt af þeim verstu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Halldór getur þú frætt mig um það hversvegna er ekkert rætt um upptöku Dollars?Hér koma menn og segja að það sé hægt og svo koma aðrir og segja að það sé alveg vonlaust að reyna það eini möguleikin se að taka upp evru.Afhverju fer svona lítil umræða um þetta fram eða eru það bara ESB elíturnar sem meiga tjá sig um þetta í fjölmiðlum?????

Marteinn Unnar Heiðarsson, 27.4.2009 kl. 23:08

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég kann ekki önnur svör við því Marteinn en að ESB sinnar eru stór hópur manna sem eru bakkaðir upp af fræðimönnum og heilum stjórnmálaflokki, ásamt Baugsmiðlunum og nú síðast liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum.

Ársæll Valfells hefur gert gein fyrir því að upptaka dollars er líklega mun auðveldari ef menn vilja skipta um mynt. En er allt fengið með því að skipta ? Þurfum við ekki að gera okkur grein fyrir því hvað við höfum og hvað við látum ?

Takk fyrir hlý orð Guðmundur Egill.

Halldór Jónsson, 28.4.2009 kl. 07:49

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Góð grein og kjarnyrt hjá þér Halldór.

Ég bý nú hér í ESB sæluríkinu Spáni og hér er allt í þvílíkri hönk. Atvinnuleysi orðið helmingi meira en það er á Íslandi núna og vex hratt. Menn eru jafnvel að tala um að það fari í 30%

Húsnæðisverð hefur fallið um helming og gjaldþrot heimila og fyrirtækja blasir við.

Menn hér kenna mikið hinni ósveigjanlegu EVRU um efnahagsófarirnar og sjá mikið eftir sínum gamla góða gjaldmiðli pesetanum, sem þeir réðu sjálfir yfir. Þeir hafa ekkert yfir peningamálastefnunni að segja lengur.

Og hvað eru ESB nefndirnar og ráðin nú að gera til bjargar Spánverjum !

Svarið er akkúrat ekkert. Þveröfugt þá er EVRAN hér allt að drepa.

Ég segi því það er auðveldara í að komast en úr að fara.

Þannig að Íslendingar flýtið ykkur hægt og lokið ekki dyrum á eftir ykkur í flýti !

Gunnlaugur I., 28.4.2009 kl. 14:56

4 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Það var hressandi  að lesa þessa hugvekju í öllum ESB daðrinu. Það er hins vegar erfitt Halldór að koma að skynsemisröddum eins og þínum að í umræðunni. Sumir frambjóðendur flokksins í SV kjördæmi hafa bæst í kórinn - eftir kosningar. Satt að segja átta ég mig ekki á þeim hringlandahátti þegar stefna flokksins er skýr. Þeir hefði kannski átt að tala betur fyrir stefnunni fyrir kosningar til að upplýsa kjósendur en létu það alveg ógert. Það var t.a.m. ekki orð um ESB í kosningabæklingi flokksins í Kraganum. Skrýtið

Fjölmiðlarnir stýra för og ferðinni er heitið til Brussel.

Jón Baldur Lorange, 28.4.2009 kl. 16:39

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnlaugur I,

Því miður veit ég engin deili á þér önnur en þau að þú búir sem lífsreyndur maður á Costa Blanca ströndinni á Spáni. Þar hef ég öngva staðarþekkingu og því er mér þitt tilskrif mjög mikils virði. Ég vona að þú fyrirgefir mér ef ég hampa því sem innlegg í umræðuna hér heima. Þarna talar maður sem veit hvað hann er að tala um.

Já Jón minn Baldur Lorange, vona að þú sért skyldur mínum fyrsta  uppáhaldshljómlistarmanni Aage .

Þú mælir réttilega um ófullnægjandi málatilbúning flokksins í aðdraganda kosninganna. Ég vil nú bara skerpa á þessu og segja að mér fannst kosningabarátta íhaldsins  með eindæmum léleg.

Ég sá enga kosningastefnuskrá sem ég gat hampað sem slíkri. Ég skil ekki hvað allt þetta starfslið í Valhöll tekur laun fyrir ef það kemur ekkert frá því í kosningabaráttu annað en nokkrir tölvupóstar.  Enda er niðurstaðan mesta tap flokksins í áratugi ef ekki allra tíma.

Ég held að hann Bjarni okkar verði nú að endurskoða áróðursmálin eins og fleira í flokksstarfinu.

Halldór Jónsson, 28.4.2009 kl. 17:32

6 Smámynd: P.Valdimar Guðjónsson

Við erum u.þ.b.  80% aðilar að þessu bákni nú þegar.  Það dugir alveg.  Hitti háttsettan embættismann ríkisins áðan sem fékk stöðu í vetur sem tengist matvælaiðnaðinum.    Hann sagði sitt starf að drjúgum hluta snúast um flókið regluverk ESB og að framfylgja því hérlendis hægri vinstri.   Svo finnst heimtufreku fólki þetta ekki nóg!

Varðandi fyrirsögn þína Halldór þá segi ég nei. Alveg sammála þér.  Þetta er eftiráskýring hlutdrægra fjölmiðla um að þetta hafi verið kosningamálið.

Það er ótrú á sjálfum sér og möguleikum sem búa í þessari þjóð sem veldur breimi ESB sinna.

Sveigjanlegur gjaldmiðill er kostur.  Málið er bara að flestu í þessu lífi fylgja kostir og ókostir. Við værum ekkert í góðu stöðu núna ef ferðamannaiðnaður væri hruninn svo dæmi sé tekið.   Einnig ef útflutningur sjávarafurða væri enn verðminni en nú.    Þarna hjálpar krónan þó ekki megi segja það upphátt.

P.Valdimar Guðjónsson, 28.4.2009 kl. 17:50

7 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Jú, jú Halldór. Aage Reinhardt Lorange var afabróðir minn en faðir hans kom hér til að starfa sem apótekari í Stykkishólmi í kringum 1870 og giftist dóttur apótekarans á staðnum Emelíu Möller, en hún kenndi á píanó hér í Reykjavík á efri árum.

Og já Halldór hann Bjarni Ben þarf að fara vel yfir stöðuna ef hann er ekki þegar byrjaður á því.

Jón Baldur Lorange, 28.4.2009 kl. 19:07

8 Smámynd: Halldór Jónsson

P.Valdimar, skarplega skrifað, tek undir hvert orð. Við verðum að gera okkur raunsæja mynda f veruleikanum. Ekki stjórnast af einhverjum draumum um Shangríla stöðugleikans, sem við munum aldrei finna hérnamegin grafar.

Takk fyrir þetta Jón Baldur. Ég gleymi aldrei honum Aage þegar hann spilaði fyrir mig á barnaböllum frímúrara í Sjálfstæðishúsinu, hvernig hann sveiflaði hendinni upp af nótnaborðinu með elegansa. Ég var alveg heillaður af þessu , kannske 7 ára snáði. man eftir gæsarössunum á trommunum hjá Páli Bernburg og svo harmoníkkunni hjá Jóhanni Gunari, svört með rauðum belg. Þetta var toppurinn á tilverunni og ég dansaði í fyrsta sinn við stelpu, hana Siggu Jónu.

Halldór Jónsson, 28.4.2009 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband