Leita í fréttum mbl.is

Er krónan endilega verst ?

Mér barst skrif frá Gunnlaugi I, sem býr á Costa Blanca ströndinni á Spáni. Lífsreyndur maður með opin augu. Hann skrifar eftirfarandi:

"Ég bý nú hér í ESB sæluríkinu Spáni og hér er allt í þvílíkri hönk. Atvinnuleysi orðið helmingi meira en það er á Íslandi núna og vex hratt. Menn eru jafnvel að tala um að það fari í 30%

Húsnæðisverð hefur fallið um helming og gjaldþrot heimila og fyrirtækja blasir við.

Menn hér kenna mikið hinni ósveigjanlegu EVRU um efnahagsófarirnar og sjá mikið eftir sínum gamla góða gjaldmiðli pesetanum, sem þeir réðu sjálfir yfir. Þeir hafa ekkert yfir peningamálastefnunni að segja lengur.

Og hvað eru ESB nefndirnar og ráðin nú að gera til bjargar Spánverjum !

Svarið er akkúrat ekkert. Þveröfugt þá er EVRAN hér allt að drepa.

Ég segi því það er auðveldara í að komast en úr að fara.

Þannig að Íslendingar flýtið ykkur hægt og lokið ekki dyrum á eftir ykkur í flýti !"

Það væri fróðlegt að fá viðbrögð úr Bifröst, frá Evrópusérfræðingunum þar, sérílagi Eiríki Bergmann, sem lengst af hefur allt vitað um kosti Evrópusambandsaðildar.

Ennfremur auglýsi ég eftir skilgreiningu Benedikts Jóhannessonar og samtakanna  SAMÁLA(þó ekki Hallgrími Helgasyni) á spönsku veikinni.

Gott væri fyrir Íslendinga núna, að fá það á hreint, hvernig þessir aðilar myndu lækna spánskt ástand hérlendis eftir að þeir hafa komið okkur í ESB.

Það þýðir auðvitað ekki neitt að ætlast til að stjórnmálamenn Samfylkingarinnar, eða þá Vilhjálmur EGILSSON fyrir hönd Samtaka Atvinnulífsins og endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins,  svari svona spurningum. Þeir vita bara uppá hár hvað við eigum að gera nún og helst strax : Sækja um inngöngu í ESB og engar refjar. Non est disputandum.

Hvort er auðveldara stjórnamálega séð, að lækka öll laun um helming í landinu þegar svona er komið og halda evrunni eða lækka gengi krónunnar þegar samtöklaunamanna og atvinnulífsins hafa sett efnahagslífið á hvolf með óraunhæfum kjarasamningum. Vilhjálmur Egilsson ætti alveg að kunna formúluna að því.

Mér finnst bara sjálfsagt að menn noti þann gjaldmiðil sem þeir kæra sig um á Íslandi. Þeir mega gera upp fyrirtækin sín í evrum, þeir mega semja um kaup og kjör í dollurum, eða bara í íslenzkum krónum. Þetta var allt hægt á tímum Davíðs og fyrir hrunið. Þá var frelsi í fjármagnsflutningum og allir gátu keypt og selt gjaldeyri.

Nú er fallið járntjald yfir strendur Íslands og hin dauða hönd kommúnismans með höftum,boðum, bönnum, skattpíningu  og þjóðlyga hefur lagst yfir landið. þetta ástand verður við líði í mög misseri. á meðan getum við dundað okkur við að þvæla um aukaatriðin en ekki aðalatriðin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já en góði Halldór

Við ætlum að breyta Samfylkingunni í banka, væni minn. Við ætlum að gera upp í evrum. Tapið hjá okkur verður alltaf í evrum. Það er svo gott. Hann á að heita Hypeotek Samgjaldþrot Bank E/U. Því þegar maður hefur evu . . . afsakið. . . evrur, þá þarf maður ekki að sýna neinn hagnað því á móti kemur að þú færð skatta drátt . . bíddu aðeins . . það heitir víst skattafrádráttur já. Þetta er ekki mjög flókið. Það þarf bara að skella sér í þetta. Taka stökkið.

Já ekki öfunda ég Spánverja

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.4.2009 kl. 18:09

2 Smámynd: Páll A. Þorgeirsson

Spánverjar berjast að mestu við heimatilbúinn vanda eins og Íslendingar.  Þegar lokaðist fyrir erlendur lánin þá sprakk "loftbólan".

Spánverjar fjárfestu í 750 þúsund íbúðum árið 2007, það samsvarar helmingi af fjárfestingu í Bandaríkjunum á sama tíma sem eru 7 sinnum stærri.  Þó svo okkar fjárfestingar hafi verið glórulaus loftbóla, hvað þá um Spánverja.  

Svo vilja sumir kenna ESB um.  Ekki ruglast á   svíni og sveppum    

Páll A. Þorgeirsson, 28.4.2009 kl. 18:27

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já ýmsir eru (loksins) farnir að spá í hvernig Spánn hafi farið að því að fjármagna þetta næstum stærsta bygginga-boom sögunnar. Sumir hafa einnng velt vöngum yfir því hvort það hafi ekki hækkað töluvert í toxic waste búnkanum í skápnum inni í ECB. Spánska skápnum. Líkin munu koma.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.4.2009 kl. 18:36

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæll Halldór

Ég held að það væri áhugavert  að fá fram greiningu á ástandinu á Spáni og orsökum þess. Vandamálin eru víðar s.s. Írlandi. Innganga í ESB getur ekki verið nein allsherjarlausn allra vandamála eins og hér hefur verið haldið fram. Við þurfum rökræðu um aðildarumsókn, kosti og galla ESB.

Sigurður Þorsteinsson, 28.4.2009 kl. 18:42

5 Smámynd: Sigmar Þormar

Flott Halldór.  En þó við tveir Kópavogsbúarnir séum sammál (annar Sjálfstæðismaður og ég VG reyndar) þá er nú ansi erfitt að standa má móti aðildarumsókn ef stór samtök í atvinnulífi og verkalýðsfélög nota alla sína peninga, almannatengsl og fleira til að væla hana út.

Frábær grein Stefáns Guðjónssonar í Mbl. í morgun en Stefán talar á svipuðum nótum og þú. Stefán er fv. framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Skýr góð hugsun manns úr atvinnulífinu. Svipað pistli þínum Halldór.

VG og Sjálfstæðiflokkurinn þurfa að vinna saman ef þessi ESB vitleysa tekur ekki brátt enda.

Sigmar Þormar, 28.4.2009 kl. 19:47

6 Smámynd: Offari

Á ekki Evran að vera björgunaraðgerð heimilina? Ég er kannski einn þeirr fárra sem telur að við eigum ekki að skipta út verðlausri krónu fyrir ofverðlagða Evru. Er ekki hægt að bíða eftir falli annara gjaldmiðla áður en við hugum að því hvort við eigum að halda í okkar áskæru krónu eða að skipta um gjaldmiðil.

Offari, 28.4.2009 kl. 21:32

7 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Spánverjar berjast að mestu við heimatilbúinn vanda eins og Íslendingar.  Þegar lokaðist fyrir erlendur lánin þá sprakk "loftbólan" 

Svo vilja sumir kenna ESB um.  Ekki ruglast á   svíni og sveppum 

Bíddu við, átti ESB ekki að koma í veg fyrir að svona hlutir kæmu fyrir? þessu halda allavegana ESB sinnar fram!!

Getur verið að þessi ESB draumur sé byggður á einskærri lygi þá?

Halldór Björgvin Jóhannsson, 28.4.2009 kl. 22:14

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk allir saman.

Er ekki margt líkt með túrismanum á Spáni og innstreymi krónubréfa og virkjanapeninga hér ?  Þegar verður uppihald á á þessu þá hrynur allt innanlands.  Spanjólinn getur ekkert gert strax því hann er fastur í evrunni. Við getum fellt gengið.  Báðar þjóðirnar gætu líka farið niðurfærsluleið, en hún er pólitískt erfiðari.Við Íslendingar veltum einu sinni niðurfærsluleið  alvarlega fyrir okkur en hurfum frá og felldum gengið frekar .

Ef krónan er á gjaldeyrismarkaði með öðrum myntum, hvað er þá að ? Hún hefur þá gengi á hverjum tíma, rétt eins og  hvert annað verðbréf. Eru peningar eitthvað annað ? Við kaupum okkur dollar ef við höfum trú á honum eða þá evru. Við getum samið okkar á milli í hvaða mynt sem er. Gert upp í hvaða mynt sem er og borgað kaup í hvaða mynt sem er. Tekið lán í hvaða gjaldmiðli sem er.

Það sem er stórkostlegast við krónuna okkar er verðtryggingin. Að maður skuli geta lagt krónu í bankann og varðveitt hana til langs tíma gegn vonsku heimsins, gengissveiflum og óáran á heimsmarkaði. Þetta er hvergi hægt nema á Íslandi. Það er bara eitt sent eftir af gamla dollarnum og af gömlu krónunni okkar er bara ryk eftir. Gjaldmiðill er skiptibréf milli manna á líðandi stund. Það er yfirskilvitlegt ef allir geta sagt um hvað evran kostar marga dollara eftir fimm ár. Hversu margir bjórar eru í evrunni núna og eftir fimm ár.

Þó maður kaupi gull og grafi í garðinn sinn eins og Frakkar gera, þá veit maður andskotann ekkert hvað gullverðið verður eftir fimm ár. Maður veit hinsvegar að verðtryggð króna verður hlutfallslega ekki verri eftir fimm ár en núna. Það er stórkostleg sérstaða Íslands og hana eigum við að varðveita. Þetta er félagslegt réttlæti, trygging ekkjunnar gegn venjulegum ræningjum og pólitískum bófum. Þó að enginn geti séð fyri náttúruhamfarir eða íslenzkan útrásarvíking og bankabana á borð við Jón Ásgeir, þá eru menn einna skást settir með verðtryggða bók í íslenzkum (ríkis)banka.

Sigmar Þormar, þú hefur formann sem afsagði fyrirfram að tala við íhaldið. Þrátt fyrir það að þessir flokkar eiga snertifleti í því sem þú nefnir.

Halldór Jónsson, 28.4.2009 kl. 22:15

9 identicon

Sæll Halldór minn,

Varðandi þessar aðstæður á Spáni þá hafa menn verið að taka REPO lán í massavís hjá ECB og pumpa mjög sterkum veðum inn í Evrópska Seðlabankann á móti.

Þegar að menn halda því fram að bankahrunið hefði ekki átt sér stað í október ef við hefðum verið í ESB þá er það bull.

Ef Seðlabanki Evrópu hefði samþykkt veðin frá Glitni (sem hann hefði ekki gert frekar en Davíð) þá ætti Evrópusambandið Ísland í dag, einfalt mál.

Þetta innskot tileinka ég nafna mínum Rögnvaldssyni, berjast, berjast og berjast og aldrei gefast upp!

sandkassi (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 03:48

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Gunnar,

Mér finnst það eiginlega fyndið hvernig þessir EB sinnar berja hausnum við steininn um að vaða í aðildarviðræður vitandi það að þetta fer ekki í gegnum þjóðaratvæði hvort sem er með auknum eða einföldum meirihluta. Þjóðin berst og gefst ekki upp.

Halldór Jónsson, 29.4.2009 kl. 07:47

11 Smámynd: Gerður Pálma

Hugsanlega er litla ræfilskrónan okkar besta öryggi til framtíðar landsins.  Við Íslendingar erum svo heppin að geta fjárfest í uppbyggingu í einstaklega fjölbreyttum ferðaiðnaði sem byggist á uppbyggingu innanlands, nýtingu á menntun fólksins í landinu til þjónustu við menningar- sem og heilsuiðnaðar sem ætti að verða sterkur í landinu. 
Við erum ÖRFÁ, algjör  mini þjóð og þurfum ekki neina ofgnótt eða stórt brot af örast vaxandi ferðaiðnaði í heimi sem er ´heilsu- mennta- og ævintýra ferðaiðnaður' sá hópur gesta tilheyrir yfirleitt efri tekjulögum í eigin heimalandi.  Gerum út á okkur sjálf, fáum gjaldeyri inn í landið, þar er okkar gullgeymsla, byrjum þar. Verndum sjálfstæði landsins, sem ég hræðist að við töpum með inngöngu í ESB. Því miður virðist sjálfstæði landsins vera í ótrúlega brothættri stöðu í dag.  Upplýsing, rökumræður og staðreyndir verða að liggja á borðinu áður en ákvarðanir verða teknar. Ef svo undarlega vill til að kostir ESB verða sterkari en gallar þá fer að sjálfsögðu endanleg ákvörðun eftir því.

Gerður Pálma, 29.4.2009 kl. 08:49

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Gerður,

Mér hlýnar um hjartarætur að heyra í svona sönnum Íslendingi eins og þér.

Mér finnst það ólíklegt að þjóð sem á annað eins gósenland með alla þá möguleika sem við blasa, ætli að hætta á það að missa landbúnað úr landinu og yfirráð auðlinda til útlends kóngs, sem enginn virðist hafa heyrt né séð heldur aðeins haft þær spurnir af veldi hans, að það nægi þeim til að gerast handgengnir menn.

Halldór Jónsson, 29.4.2009 kl. 11:21

13 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Nú bjóddu honum (og Gunnari R) heim.

Helgi Jóhann Hauksson, 29.4.2009 kl. 11:30

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Helgi Jóhann, það yrði skemmtilegt partíþ Myndirðu ekki koma líka ?

Halldór Jónsson, 29.4.2009 kl. 11:48

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

 

Eftirfarandi skilaboð hafa borist frá íslensku krónunni. Hún á mjög annríkt um þessar mundir, svo skilaboðin eru mjög stutt: 

Hvað er að mér, krónunni?

Ég er ekta gjaldmiðill heillar þjóðar

Þessi þjóð hefur orðið ein sú ríkasta í heimi með mér, krónu

Ég hef ríkisfjárlög heillar þjóðar á bak við mig

Ég hef himneskan beinan aðgang að skattatekjum Íslands

Íslendingar geta prentað mig, krónur

Íslendingar geta stýrt vöxtum á mér og peningamálum

Íslendingar geta og hafa bjargað efnahag sínum með mér, krónu, oft!

Allar auðlindir landsins standa allar á bak við mig

Ísland gæti notið meira lánstrausts og lægri vaxta en sjálft Þýsklands gerir í dag ef þið hefðuð ekki misnotað mig svona. Alveg eins og sænksa krónan gerir núna.

(Ef ég væri krónan þá væri ég einnig reiður.) Krónan heldur áfram

 

 

<><><><><><><><> 

 

"Hvað hef ég gert af mér?

Er ekki kominn tími til að skoða málið uppá nýtt?

Ég er reið yfir þeirri meðferð sem ég fékk undanfarin ár. Og sára móðguð yfir vanþakklæti þeirra stjórnmálaflokka sem taka svona stórar stöður gegn mér. Ég hef þjónað ykkur vel, en þið hafið ekki farið vel með mig í langan tíma. Og núna viljið þið henda mér og fá í staðinn gerfimynt sem eyðileggur heil þjóðfélög. Þetta er ekki sanngjarnt. Þið viljið fá póltíska mynt Þýskalands og Frakklands í staðinn fyrir mig. Þið hljótið að vera bilaðir".

Gunnar Rögnvaldsson, 29.4.2009 kl. 11:51

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Bravó Gunnar Rögnvaldsson,

 þarna var fallega skrifað.

Þessa skálaræðu þyrfti að flytja af Fjallkonunni á næsta ársfundi Samtaka atvinnulífsins og Samfylkingarinnar, sem er upplagt að sameina í einum sal.

Benni Jóhannesar gæti flutt minni kvenna og Hallgrímur Helgason sýnt grettur og öskur.Búsáhaldamenn og Þór Sari gætu svo toppað kvöldið með því að kveikja í húsgögnunum !

 What a great party, what a swell party this is.

Halldór Jónsson, 29.4.2009 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband