Leita í fréttum mbl.is

Ný gjaldþrotalög strax !

Ég var ekki einn um það að horfa agndofa á hann Bjarna rífa húsið og jarða bílinn. Pollrólegur sagði hann okkur að konan og börnin væru farin af landi brott. Hann bjóst við að fara á eftir þeim þegar hann hefði staðið fyrir máli sínu og tekið út refsinguna.

Málsbætur hans voru fruntaleg framkoma bankaþjónanna við hann sem einstakling. Hann átti ekki að fá silkihanskameðferðina sem stóru bankaglæpamennirnir hafa unnvörpum fengið. Þarna var ekki séra Jón á ferðinni. Hann skyldi hengdur öðrum til eftirbreytni. 

Hvað biði hans hér  að óbreyttu ? Brennimerktur sem gjaldþrota einstaklingur geturðu ekkert hér á landi. Hann kaus að hefna sín á kerfinu og gjalda fyrir það.

Einn meginþáttur  í krafti bandarísks efnahagslífs eru gjaldþrotalög þeirra. Sá sem verður gjaldþrota er gerður upp og málið er búið. Samuel Goodyear varð víst sjösinnum gjaldþrota áður en dekkin lukkuðust hjá honum. Hér á landi hefði hann aldrei risið upp aftur eftir fyrsta fallíttið.

Í Bandaríkjunum skilarðu lyklinum að húsinu þínu til bankans þegar þú getur ekki borgað. Málið er búið. Hérna ertu eltur persónulega útfyrir gröf og dauða við sömu aðstæður. Þú sem einstaklingur ert veðandlagið sjálfur þegar þú færð lán með tryggingu í húseigninni,   seljist hún fyrir minna en skuldinni nemur á uppboðinu.

Hlutafélag fer á hausinn eins og þau sem stóru braskararnir notuðu í bankahlutabréfakaupunum og málið er  búið.  Hvítabirnan er áfram hvít.Einstaklingur á  Íslandi sleppur hinsvegar aldrei frá sínu gjaldþroti. Svartur er svartur áfram. Bjarni á sér ekki viðreisnar von.

Þetta er svínarí og verður að afleggja. Einstaklingur getur orðið gjaldþrota af ýmsum jafnvel óviljandi ástæðum .  Það verður að gera upp dæmið við hann og síðan búið mál. Nýr einstaklingur verður að fá að verða til og fá tækifæri til að verða að fullgildum þjóðfélagsþegni aftur.  Uppreisn æru eins og ýmisr hafa fengið.  

Hefur þjóðin efni á að hrekja þá úr landi sem hafa orðið gjaldþrota vegna þess að lánin urðu skyndilega miklu hærri en verðmætið sem þau voru tryggð í ? Þeir sem missa íbúðina sína fyrir þriðjung skuldarinnar verða hundeltir til enda veraldar. Fái þeir sér launavinnu er skatturinn kominn við aðra útborgun og hirðir allt. Lögfræðingar halda við kröfum í það endalausa. Þú verður að vinna svart eða ekki. Ég hef oft staðið frammi fyrir slíkum vandamálum góðra manna sem var verið að hrekja í eyðimerkurgöngu. Þetta var svo ómanneskjulegt hvað þessum mönnum var boðið uppá að maðu gleymir því aldrei.

Eiga ekki allir að fá annað tækifæri í  lífinu ? Þessu jánka flestir stjórnmálamenn en gera svo ekkert í því. Samkvæmt íslenskri gjaldþrotahefð er slíkt ekki mögulegt. Þú ert brennimerktur til lífstíðar og hundeltur. Bjarni sleppur aldrei.

Það er aldrei brýnna en núna að taka þessi mál upp núna og án þess að binda sig í einhverjar kratískar Evrópuhefðir. Fólk verður að fá að verða fólk aftur. Gjaldþrot er gjaldþrot og málinu er lokið. Uppfrá því á enginn neina kröfu á manninn vegna fortíðarinnar. Hún er uppgerð þarmeð.  Allir vita auðvitað að maðurinn efur áður orðið gjaldþrota. En þetta er maður með hreint borð og nýjar áætlanir eru aðeins frá nýjum tíma. 

Við höfum ekki efni á þessu vitlausa fyrirkomulagi lengur.

Ný gjaldþrotalög strax !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Þór Hafsteinsson

Orð í tíma töluð. Þessu verður að breyta strax.

Bjarni Þór Hafsteinsson, 21.6.2009 kl. 12:16

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Fyrir ári síðan hefði ég ekki verið sammála þér en maður verður að hugsa alla hluti upp á nýtt.  Þetta er skelfilegt ástand sem er að halda innreið sína.

Sigurður Þórðarson, 21.6.2009 kl. 13:14

3 Smámynd: Nostradamus

Já, ástandið sem fyrri stjórnir, embættismannakerfið og síðast en ekki síst glæpamenn innan bankakerfisins hafa búið til er skelfilegt. Ég persónulega hef fulla samúð og skilning á aðgerðum Bjarna. Ein kjaftasagan sem ég hef heyrt er að stjórn Frjálsa Fjárfestingabankans hafi þegar verið búin að ákveða hver fengi að kaupa húsið af þeim á spottprís og Bjarni myndi borga mismunin eða vera gjaldþrota ella. Það var víst einhver yfirmaður innan bankans. Enda ekki á hverjum degi sem nýtt einbýlishús á Álftanesi fæst fyrir hálfvirði eða minna en það. En sumsé það er bara kjaftasaga....

Ekki yrði maður nú hissa þó einhverjir fleiri gripu til sömu eða svipaðra aðgerða, þeir sem ekki hafa tök á að redda sér gröfu geta jú alltaf keypt sér eldspýtur, verst hvað helv bensínið er orðið dýrt...:)

 En hér verður ekki breytt neinum lögum um gjaldþrot. Stjórnmálamenn, sama úr hvaða flokki þeir koma, hafa greinilega ákveðið að við, lýðurinn, skulum borga þennan brúsa, hvað sem tautar. Skjaldborg um heimilin og fyrirtækin er einhver ömurlegasti frasi sem íslenskir stjórnmálamenn hafa tekið sér í munn síðan hér byggðist land. Hvar er sú skjaldborg?? Mín húsnæðislán hafa hækkað um einhverjar 3 milljónir síðan í október og er ég þó svo lánsamur að vera með íslenskt lán á bestu vöxtum. En verðbæturnar sjá um að mylja af mér það litla sem ég átti í þessu húsi smátt og smátt...

Af hverju hafa verðbæturnar ekki verið teknar úr sambandi?? Jú, það þarf að vernda þjófafélög sem ganga undir því sameiginlega nafni lífeyrissjóðir. Sömu lífeyrissjóðir og spiluðu póker með peningana OKKAR á verðbréfamörkuðum. Sömu lífeyrissjóðir og borga framkvæmdastjórum 2 millur á mánuði, plús bíl plús önnur hlunnindi. Sömu lífeyrissjóðir og senda ógreidd iðgjöld í Intrum með tilheyrandi vöxtum og kostnaði þegar sjálfstæðir atvinnurekendur eins og ég verða atvinnulausir og geta ekki staðið í skilum. Ætli þeir geri mig ekki gjaldþrota fyrir þá skuld, mín eigin iðgjöld í sjóðin sem sjóðurinn hirðir svo þegar ég hrekk uppaf?? Þá vildi ég frekar hafa Hells Angels hér á landi heldur en lífeyrissjóðina, HA er þó ekkert sérstaklega að þykjast vera heiðarlegir....

Nostradamus, 21.6.2009 kl. 14:05

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað segirðu Svanborg,

Hver lagði þetta frumvarp fram ? Það er þá kannski einhver með viti á þini eftir allt ? 

Halldór Jónsson, 21.6.2009 kl. 19:00

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er nú til of mikils mælst að Alþingi ráði fram úr þessu, Halldór.  Þetta hlýtur að þurfa að fara í gengum skoðun og samþykki hagsmunatengslanet fjölskyldutegngdra lögfræðistofa áður en gefið verður leyfi fyrir svona grundvallarbreytingum á þjóðfélaginu.  Og á hverju ættu svo lögfræðingar og innheimtufyrirtæki að lifa ef ekki mætti lengur ganga á lítilmagnan og rýja hann inn að skinninu....?  Séra Jónarnir eru ekki nógu margir til að halda uppi þessum stéttum!!!  En þetta er gott innlegg hjá þér að vanda.

Ómar Bjarki Smárason, 21.6.2009 kl. 20:31

6 identicon

Mér finnst þetta mjög gott innlegg og í ljósi atburða undanfarinna mánaða þá veltir maður fyrir sér framhaldið en skynsamlegt er að hugsa um ,,worst case scenario'' við óvenjulegar aðstæður sem nú eru uppi og margt bendir til þess að muni versna. Við þurfum sem samfélag að spyrja okkur siðferðislegra spurninga eins og til dæmis hvort að endurskoða eigi gjaldþrotalögin eins og þú Halldór skrifar um en einnig þarf að skoða það hvort það sé eðlilegt í samanburði við norðurlöndin að lögfræðingar og innheimtufélög séu tryggð með verkefni annað veifið í 10 ár eftir að einstaklingur sé gjaldþrota í þeim tilgangi að reyna að ná í meiri peninga. Er friðhelgi einkalífsins og mannréttindi framseljanleg 10 ár fram í tímann. Gjaldþrot með réttu ætti að klára með punktstöðu sem kröfuhöfum hentar innan ákveðins tímaramma. Það eina sem gerist við það að gefa kröfuhöfum (lögfræðistofum og innheimtuaðilum) ævilangt skotleyfi er það að viðkomandi sem verður gjaldþrota kemur ekki virkur inn í atvinnulífið að nýju og fer jafnvel að vinna svart og skilar jafnvel mun minna til skattsins eða jafnvel flýr land. Það er margt að skoða í þessu samhengi.

Mál málanna og akkílesarhællinn er sá að auðvaldið hvert sem það er hefur ekki pláss né vilja fyrir siðfræði 101 þegar kemur að peningum.

Davíð Tryggvason (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 20:57

7 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Þörf ábending Halldór, eins og þú hefur bent á áður. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu í dag þarf að breyta þessum lögum án tafar, eins og þú bendir réttilega á. Þetta hefði átt að vera hluti af skjaldborginni sem átti að reisa utan um heimilin í landinu. Við skulum hér með lýsa eftir þessari skjaldborg því fáir virðast hafa fundið fyrir henni sem þurfa sárlega á henni að halda. Núverandi gjaldþrotalög og meðferð á fjölskyldum, sem lenda í vandræðum, er ómanneskjuleg og leiðir til landflótta. 

Ríkisstjórnin þarf að gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu, eins og Franklin D. Roosevelt gerði í kreppunni miklu, að allar fjölskyldur eigi sér athvarf á heimilum sínum á þessum erfiðu tímum. Enginn verði borinn út á guð og gaddinn. 

Jón Baldur Lorange, 21.6.2009 kl. 21:31

8 identicon

Þetta er misskilningur með skjaldborgina, þetta er GJALDBORG utan um heimilin.

Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 22:04

9 Smámynd: Elle_

Gjaldþrota maður er ekki glæpamaður.   Gjaldþrotalög landsins sem leyfa það að fólk sé hundelt til dauðadags gera gjaldþrota menn nánast að glæpamönnum.  Og ef skatturinn hundeltir gjaldþrota fólk líka og gerir það þannig útlægt frá heiðarlegri vinnu, m.ö.o. þvingar fólk í óloglega svarta vinnu, er þetta enn verra en ég vissi.  Bara ógeðlsegt mannréttindabrot.  Þó fá glæpamenn uppreisn æru eftir fangelsisvist. 

Elle_, 24.6.2009 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband