Leita í fréttum mbl.is

Samþykkja Icesave eða hafna!

Ég átti tal við  sjóaðan lögfræðing í kvöld. Hann nam  ungur alþjóðarétt við útlenda háskóla. Lifði langa ævi í hinum slungna heimi lögvísinnar og stjórnmála, -maður margra sæva og mikilla landa, og mikillar reynslu.

Hann sagði Icesave málið væri að grunni til einfalt samkvæmt alþjóðavenjum.  Samningurinn væri gerður milli þriggja ríkisstjórna sem allar hefðu þingmeirihluta á bak við sig. Slíkum samningum yrði ekki breytt. Þeir væru gerðir og þeir giltu. Hvert þjóðþing gæti hafnað samningnum sem þá félli allur úr gildi. En honum yrði ekki breytt eftirá.  

Öðru máli gegndi ef einn samningsaðili á síðari stigum sæi sig tilneyddan að óska endurskoðunar. Þá væri alþjóðavenja að gera slíkt.Semja uppá nýtt. Enda væru þá komnir aðrir þingmeirihlutar, aðrar ríkisstjórnir osfrv.

Hans álit var, að það yrði að skrifa undir óbreyttan samninginn um Icesave úr því að ríkisstjórnin,-Ögmundur líka,- eru búin að samþykkja hann.  Fyrirvarar væru aðeins blekking og væri ekki hægt að bera fyrir sig við löglega gerðan samning eins og Icessave er.

Þjóðin á það pólitískt við ríkisstjórnina hvað hún gerði henni með samningnum. Samningurinn  verður ef til vill talin ganga næst landráðum einhverntímann eins og menn hafa látið.  Það verður útkljáð síðar.

En núna, þýðir ekki annað en að staðfesta.  Án fyrirvara því þeir eiga aldrei við í milliríkjasamningum sem þessum. Eða hafna alfarið. Og þá er þessi stjórn auðvitað fallin.

Þetta er hin lagalega skýring manns sem hefur meira lagavit en ég. Ef til vill skortir aðra meiri menn en mig einhvern lagaskilning í alþjóðaréttti sem nú hæst láta á Alþingi. 

Sem sagt: Samþykkja samninginn eins og hann er,  nota svigrúmið, -Og beiða síðan upp síðar eins og beljurnar gera ef fóðurskortur verður.  Sem verður líklega!

Eða hafna samningnum og taka því sem af höndum ber. Enda er best að Steingrímur fái ekki útlent fjármagn  frá AGS til að koma á norrænu velferðarkerfi á Íslandi fyrir meiri skuldsetningu þjóðarinnar en orðið er. Vinstri stjórnir kunna ekki með fé að fara. Og áreiðanlega ekki Jóhanna Sigurðardóttir -eyðslumálaráðherra margra ríkisstjórna.-

Það er meira að mínu skapi að þiggja aldrei frið ef kostur er á ófriði! Þessvegna græt ég ekki það, að ganga úr EES, og fara aldrei í ESB Bjóða þessum dónum byrginn og hananú! Vingumst við Rússa og Kínverja úr því að Evrópuþjóðirnar og Bandaríkjamenn vilja ekki hjálpa okkur.  Verum vinir vina okkar en óvinir óvinum okkar.

Áfram Ísland!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Halldór, æfinlega !

Vel mælt; verkfræðingur góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 00:57

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, höfnum Icesave-samningnum alfarið, það eru alltaf að koma fram fleiri gögn, sem sataðfesta, að það er eina 100% rétta leiðin.

VIÐ EIGUM EKKI AÐ BORGA NEITT AF ICESAVE-SKULDUM LANDSBANKANS! Það er staðreynd málanna og m.a.s. staðfest af frönskum dómstól, af áliti franska seðlabankans og í dómi Evrópudómstólsins í Lúxemborg! (C222 árið 2002), eins og Vigdís Hauksdóttir, alþm. og lögfræðingur, upplýsti um í ræðu sinni á nýliðnu kvöldi og hefur áður talað um. Um þetta hef ég margt ritað og þá ekkisíður hann Loftur verkfræðingur Þorsteinsson (altice.blog.is), einnig ýmsir aðrir, s.s. Frosti Sigurjónsson, Guðm. Ásgeirsson, Axel Jóhann Axelsson, Jón Lárusson o.fl. moggabloggarar.

Svo þarf að hefjast handa við að verja þjóðina erlendis með kynningu lagalegs réttar okkar í málinu, bæði gagnvart almenningi þar og stjórnvöldum; það kostar tíma, fyrirhöfn og sérfræðinga, en það er margfaldlega þess virði.

Jón Valur Jensson, 22.8.2009 kl. 02:16

3 Smámynd: Björn Birgisson

"Vingumst við Rússa og Kínverja úr því að Evrópuþjóðirnar og Bandaríkjamenn vilja ekki hjálpa okkur.  Verum vinir vina okkar en óvinir óvinum okkar."

Hm....................................... með bláa armborða? 

Björn Birgisson, 22.8.2009 kl. 03:17

4 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Sæll Halldór,

Takk fyrir athyglisverðan pistil.  Það sem þinn lögfróði maður hefur að segja kemur mér ekki á óvart enda hef ég haldið því fram á mínu bloggi að happasælast sé fyrir okkur að samþykkja þennan ógæfusamning án fyrirvara og fara fram á endurskoðun seinna.  Ég get nú sagt þér að það er ekki mikil stemmning fyrir þessu hér í bloggheimum enda held ég að ég sé sá eini sem held út svoleiðis skoðunum. 

Svo er ég alveg sammála þér að við eigum að mörgu leiti meiri samleið með Rússum og Kínverjum.  Við erum spillt þjóð eins og þeir og neitum að fara eftir alþjóðasamningum og venjum og hunsum mannréttindi þegar það hentar okkur.  Flott tríó!

Andri Geir Arinbjarnarson, 22.8.2009 kl. 07:51

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ég efast ekki um að þessi skýring sjóaða lögfræðingsins er hárrétt. Enda liggur það í augum uppi að samningum verður ekki breytt einhliða eða gerðir einhliða fyrirvarar við samning.

Það er eiginlega sorglegt að horfa upp á þennan þykjustuleik í leikskólanum Austurvallaborg og að 63 einstaklingum skuli haldið þarna á kjaftasnakki vikum saman í tómri vitleysu. Það hefði varla verið nema viku vinna að komast að því sem lögfræðingurinn sjóaði sagði þér!

En samningurinn hlýtur að vera fallin og ríkisstjórnin líka, því varla samþykkir Ögmundur og nokkrir skynsamir Vg þingmenn..... Þetta þvarg á þinginu er því kannski spurning um að halda lífinu í ríkisstjórninni í nokkra daga eða vikur í viðbót...

Ómar Bjarki Smárason, 22.8.2009 kl. 08:01

6 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Sama er ég búin að seja allan tímann.  Þetta er sannarlega sandkassaleikur og þykjustuleikur þeirra þarna við Austurvöll en vitið er ekki meira en Guð gaf.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 22.8.2009 kl. 10:26

7 Smámynd: Jón Sveinsson

Sannarlega segir þú satt,EN eitt er víst að ekki er einn einasti þingmaður né ráðherra sem er hliðhollur þjóð sinni eingin þeirra getur sagt það að þessi samningur sé hráka smiði og verði ekki samþykktur og hættum að þvarga um hann, NEI NEI HELDUR VERÐUM VIÐ AРNYÐURLÆJA ÞJÓÐINA  MEIRA,ÞETTA ER MOTTÓ ÞEIRRA SEM STJÓRNA ,

Jón Sveinsson, 22.8.2009 kl. 12:00

8 Smámynd: Jón Arvid Tynes

Já þú hefur gaman af að hræra í súpunni.

Kv. JAT

Jón Arvid Tynes, 22.8.2009 kl. 12:41

9 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Hinn lögfróði vinur  þinn hefur, held ég lög að mæla. Úr því sem komið er , þá er ekki annar kostur, -  svo illur  sem hann  er ,en  samþykkja þetta og  taka  málið upp á  nýju innan  sjö ára frestsins, kannski að  2-3  árum liðnum. Þá  verða allar forsendur  gjörbreytttar. Þótt  illt sé á alla lund  er þetta ekki heimsendir eins og  vilja vera láta. Svona   til að vera  vitur  eftir áá , - þá  hefégh verið þesarar skoðunar nokkuð lengi.

Eiður Svanberg Guðnason, 22.8.2009 kl. 14:06

10 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk Halldór. En eru ekki lögfræðingar heimsins mest að hugsa um að verja órettlætið og svikin. Þeir hafa nú komið að því að móta heiminn í þennan ósanngjarna farveg?

Hver er það sem stýrir lögfræðináminu á bak við tjöldin? Af hverju er svo ervitt að túlka lögin? Hvers virði eiga lögin að vera, og fyrir hvern? Af hverju eru til svona margar leiðir til að túlka lögin? Mér sýnist það vera til að þeir sem stýra náminu bak við tjöldin, geti svo hagrætt eftir eigin geðþótta eftir heimspólitíkinni. Hvernig lögfræði lærðu þeir sem áttu að verja Ísland fyrir þessu hruni? Enginn getur svarað þessu, ég veit það.

Fyrirgefðu mér Halldór minn, en ég skil ekki nógu vel öll þessi fræði, það er satt sem Þórdís segir um að vitið sé ekki meir en guð gaf. Illt þykir mér að ekki var mér gefið meir af því, til að skilja þetta lögfræðirugl. Kv. Anna.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.8.2009 kl. 16:48

11 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Ef ýtrustu fyrirvarar samkvæmt Indefence eru fyrirfram samþykktir af bretum og hollendingum áður en ríkisábyrgð er samþykkt gæti þetta sloppið fyrir horn. Ef ekki, engin ríkisábyrgð. 

Kolbeinn Pálsson, 22.8.2009 kl. 21:51

12 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ég held að Vigdís Hauksdóttir hafi hitt naglann á höfuðið í ræðu sinni í gær. Fyrirvararnir skipta nefnilega ekki nokkru máli fyrir réttarkerfið í Bretlandi.

Umræðurnar í fjárlaganefnd og á Alþingi eru einfaldlega tímasóun, nema farið verði með samninginn til baka og samið upp á nýtt. Best væri að það væri gert að frumkvæði núverandi ríkisstjórnar, því stjórnarkreppa er það síðasta sem við þurfum akkúrat núna og það er í raun enginn af flokkunum, hvorki þeir sem eru í stjórn í dag eða í stjórnarandstöðu, stjórntækir.... Því verðum við líklega að lifa við núverandi ástand í stjónarráðinu næstu 2 árin eða svo.....

Ómar Bjarki Smárason, 22.8.2009 kl. 22:55

13 Smámynd: Björn Birgisson

Til vors 2013.

Björn Birgisson, 22.8.2009 kl. 23:07

14 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Svartsýnn ertu Björn....!

Ómar Bjarki Smárason, 23.8.2009 kl. 00:18

15 Smámynd: Björn Birgisson

Bjartsýnn, minn kæri Ómar.

Björn Birgisson, 23.8.2009 kl. 00:24

16 Smámynd: Jón Valur Jensson

Málið er ekki, hvort þessi ríkisstjórn situr til vors eða til 2013, heldur hitt, að hún geri skyldu sína og hafni því að samþykkja ríkisábyrgð á þessari gerviskuld; hún má vel sitja áfram, ef þingmenn hennar sansast í því máli.

Við eigum einfaldlega ekki að borga skuldir einkafyrirtækis.

“Tilskipun þessi getur EKKI gert aðildarríkin eða lögmæt yfirvöld þeirra ábyrg gagnvart innstæðueigendum ef þau hafa séð um stofnun eða opinbera viðurkenningu eins eða fleiri kerfa sem ábyrgjast innistæðurnar eða lánastofnanirnar sjálfar og tryggja skaðbætur eða vernd innistæðueigenda í aðstæðum sem þessi tilskipun skilgreinir.” [Og við stofnuðum slíkt 'kerfi', þ.e. Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta, árið 2000.]

Þannig er það ákvæði tilskipunar Evrópubandalagsins frá 1994, sem við getum grundvallað á réttarkröfu okkar fyrir dómstólum, að ÞVÍ BER AÐ HAFNA, AÐ VIÐ EIGUM AÐ BORGA, þ.e.a.s.: þetta getum við, ef þjóð og þing hrinda af sér þeim þjóðsvikasamningi sem fjárlaganefnd er nú jafnvel að hugsa um að samþykkja með sínum gagnslausu blekkingar-fyrirvörum, þrátt fyrir að komin eru fram TVÖ NÝ LÖGFRÆÐIÁLIT á nýliðnum laugardegi, sem setja hvort um sig og hvort á sinn hátt AFAR stórt strik í stefnu Icesave-stjórnarsinna.

Jón Valur Jensson, 23.8.2009 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband