Leita í fréttum mbl.is

Kosningar !

Ljóst er orðið að ríkisstjórnin horfir fram á ósigur í Icesave málinu. Það fer ekki í gegnum þingið í Svavarsútgáfunni, því Bretar og Hollendingar eru búnir að hafna fyrirvörunum. Ríkisstjórnin er búin að segja þjóðinni vikum saman um að málið sé að leysast. Það sýnir sig að vera rangt.

Það þýðir að Kratarnir geta ekki leyst kreppuna, því þeir eru fastir í vef ESB og AGS. Þingið er hinsvegar í sjálfheldu, það er ekki hægt að mynda neina aðra starfhæfa stjórn.

Það verður að kjósa aftur ekki seinna en strax. Það þolir enga bið að fara að takast á við hin hrikalegu vandamál sem eru í aðsigi. Við höfum ekki ráð á umræðustjórnmálum lengur.

Til þess þarf aðra áhöfn í brúna, svo einfalt er það.

Kosningar !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Rólegur gæðingur, við þurfum ekki kosningar nú. Við þurfum samstarf allra kjörinna fulltrúa til að tækla tröllaukin vandamál þjóðarinnar. Innan þíns flokks eru allmargir góðir þingmenn sem gera sér grein fyrir því, þar er líka Birgir Ármannsson. Einnig innan Framsóknar er glæta. Kosningar nú væru glapræði. Til hvers? Til að koma Bláhernum og Fjósaflokknum til valda? Er það draumurinn? Til að gera hvað? Þið hættið bara að stunda skæruhernað gegn eigin þjóð og hjálpið til við endurreisnina. Allir fyrir einn og einn fyrir alla. Skytturnar. Ekki leyniskytturnar. Ekkert þjóðarmorð úr launsátri hér. Nóg er komið.   

Björn Birgisson, 25.9.2009 kl. 00:51

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hugmyndin um einvaldi á sínum tíma var að þegar ytri augljósar aðstæður krefðust alhliða aðgerðir og þá tæki einn ættar öldungurinn sér það vald þangað til um hægðist.

Það er einmitt það sem kom upp hér í ljósi spilltra stjórnmálamman, vitgranna hagstjórnarfræðinga, fjár ólæsi almenning og einokunar á fjölmiðla markaði samþjöppun valda á fárra hendur og lagaandalauss Dómarakerfis. 

Það er innri samkeppni efnahagslögsögukerfi í EU og fjárfestingar hafa náð hámarki og nú er komið að skuldardögum asnanna. Sem lesa ekki stóra letrið í Samningum.  Hvað varðar EU samninganna þarf fjárlæsi.

Endurreisn til regluverksvillu, nei takk Það þarf uppreisn til Vals og Virðingar.

Ekkert Letta ævintýri hér takk fyrir. 

Júlíus Björnsson, 25.9.2009 kl. 02:25

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Birgir, nýjar kosningar munu lækka hlutfall hreinna trúða á Alþingi. Bláherinn til bjargar !

Halldór Jónsson, 25.9.2009 kl. 07:47

4 identicon

Sosíalistar eru ekki færir um endurreisnina.

Kosningar strax!

Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 26.9.2009 kl. 19:41

5 Smámynd: Björn Birgisson

Á morgun kl. 10-22. Er það nógu mikið "strax"? Hvað ætlar þú að kjósa?

Björn Birgisson, 26.9.2009 kl. 20:05

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er nokkuð ljóst eftir síðustu kosningar að það er marklaust að mestu að kjósa flokka því þeir standa flestir ekki við neitt að því sem þeir segjast ætla að gera. Þetta hefur komið berlega í ljós með Borgaraflokkinn og Vg, sem þó var fyrir síðustu kosningar væntanlega lítt spilltasti flokkur landsins.

Ráðið við þessu er perónubundin kosning líkt og kosið var til sveitarstjórna víðast hvar um landið til skamms tíma, eða hugsanlega einmenningskjördæmi, þar sem hver þingmaður verður að standa sínu kjördæmi skil á sínum gjörðum og sækja nýtt umboð til sinna kjósenda.

Ómar Bjarki Smárason, 26.9.2009 kl. 21:47

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þar sem Persónuleikarnir í ljósi reynslu og verka sinna verða að leiðarljósi. Stétt með stétt. Ekki marghöfðastéttarforusta gegn skattborgurum eins og staðan er augljóslega í dag.

Júlíus Björnsson, 26.9.2009 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418208

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband