Leita í fréttum mbl.is

Það skilar sér að vera í Skilanefnd !

Ævintýralegar sögur ganga um fjármokstur þeirra flokksgæðinga sem skipaðir voru í skilanefndir bankanna. Tekjur nefndarmanna eru sagðar miklu hærri en laun forsætisráðherra sem átti þó að verqa toppurinn. Sagt er minnsta tímagjaldið sé 22.000 krónur hjá nefndarmönnum. Fimmföld laun bankamanna eru venja fremur en undantekning. 

 Laun eru ekki árangurstengd og ekkert eftirlit er með starfsemi skilanefndanna. Engin krafa um árangur er gerð og enginn eftirlitsaðili með tímaskriftum eða heimshornaflakki nefndarmanna á kostnað skattgreiðenda. Skilanefndirnar verða því endalaust að störfum þar sem enginn vill auðvitað hætta í slíkum uppgripum.

Spillingin er því komin á fullt aftur, bara búið að skipta um leikendur. Hinir nýríku skilanefndarmenn eru hin sú nýja stétt fyrirfólks sem halda uppi eyðslunni og hagvextinum í landinu. Afskriftir lána á stjórnendum í gamla Glitni eru sagðar ævintýralegar hjá jafnvel sömu aðilum og gera svo stórar fjárkröfur í þrotabúið. Sem er ekki þrotabú í þeim skilningi að gömlu hluthafarnir eiga að borga auðsældarskatt af verðmæti hlutabréfanna eins og þegar best lét fyrir hrun.

Þetta þykir DV væntanlega ekki ástæða til að rannsaka frekar því þarna eru líklega réttir aðilar að störfum og ekki endilega tengdir Sjálfstæðisflokknum.Ef hægt er að klúðra málunum þá verður það ávallt gert best og glæsilegast af vinstri flokkunum.

Það skilar sér að vera í skilanefnd !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; verkfræðingur góður, æfinlega !

Þarna; kemur þú mátulega, við auman blett, á Stjórnarráðs klíkunni, að verðskulduðu.

Aðeins; hlutverka skiptin, hafa átt sér stað - í spillingar dýkinu.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.12.2009 kl. 22:24

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Skiljanlega!    Með góðri kveðju.

Helga Kristjánsdóttir, 21.12.2009 kl. 00:07

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er gott að geta vaðið svona í annarra peningum. Nú og svo er formaður einhverrar nefndar hjá iðnaðarráðherra að útdeila afsláttarkjörum vegna Gagnavers til einhvers fyrirtækis sem hann tengist eitthvað ásamt viðskiptafélaga sínum Björgólfi heitnum Thór (maðurinn er afturgenginn og hlýtur því að vera heitinn, alla vega í fjármálalegum skilningi).

Mikið er nú notalegt að vita að hér hefur ekkert breyst og að auðvisarnir okkar skuli getað valsað hér um áfram eins og ekkert hafi í skorist. Og svo hlýtur að vera miklu minni spilling í því að Samfylkingin sé að gefa eigur ríkisins til sömu manna og Sjálfstæðisflokkurinn gerði áður. Menn skipta sko bara um vini og viðskiptafélaga eftir því hvernig vindurinn blæs hverju sinni. Öðruvísi komast þeir ósvífnustu ekki af.....!!! Og hvar værum við án þeirra...? Líklega bara helvíti vel staddir...

Ómar Bjarki Smárason, 21.12.2009 kl. 01:44

4 identicon

þetta þarf klárlega að skoða núna....þannig að möguleiki sé á því að stoppa í þennan fjármagnsleka í kerfinu.....kannski er ekki áhugi á því...spurning hvort þetta gerist  með vitund ríkisstjórnarinnar eða í meðvitundarleysi hennar.........

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 22:09

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það fer nú að vera spurning hver stjórnar þessari ríkisstjórn á bak við Tjöldin, Karen. Er hugsanlegt að BB (Baugsveldið og Björgólfarnir) hafi eitthvað á Samfylkinguna sem ekki er komið fram. Einhverra hluta vegna sýnir flokkurinn þessum mönnum ótrúlegt umburðarlyndi...... Kannski að þetta komi fram í Febrúarskýrslu Páls Hreinssonar og félaga...? Kannski hefur rannsóknarnefndin fundið spillingu þar sem enginn átti von á að slíkt þrifist....?

Ómar Bjarki Smárason, 22.12.2009 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband