Leita í fréttum mbl.is

Vegabréfaskyldu samkvæmt Schengen !

1 og 2.mgr.2.gr. Schengensamningsins segja svo:

2. gr.

Þegar allsherjarregla eða þjóðaröryggi krefst þess getur samningsaðili þó ákveðið, aðhöfðu samráði við aðra samningsaðila, að taka tímabundið upp landamæraeftirlit á innri

landamærum í samræmi við tilefni.

Ef allsherjarregla eða þjóðaröryggi krefst þess aðbrugðist verði við án tafar skal viðkomandi samningsaðili grípa til nauðsynlegra ráðstafanaog tilkynna hinum samningsaðilunum um þær eins fljótt og unnt er.

Starfsemi erlendra þjófagengja er orðið með þvílíkum hætti hér á landi að ótvíræða nauðsyn ber til að grípa til heimilda samningsins hér á landi. Ofan á vandamálin bætist fjárskortur til lögreglumála vegna hinna miklu efnahagsþrenginga, sem bandalagsríkin valda Íslendingum um þessar mundir með kröfum vegna Icesave. Íslendingum er nauðugur einn kostur til að grípa til þeirra heimilda sem Schengen samningurinn veitir og taka upp harðara eftirlit með komu útlendinga til landsins.

Því er fullkomlega eðlilegt að grípa til aðgerða sem létta undir með þjáningum þjóðarinnar og taka upp vegabréfaeftirlit. Í hverri einustu fjölskyldu er saga um innbrot og stórþjófnað sem telja má víst að stafi af skipulagðri glæpastarfsemi útlendinga. Þjóðin getur ekki vegna þeirra erfileika sem hún á nú við að etja leyft frjálsa för útlendra glæpamanna til landsins.Sömu nauðsyn ber til að takmarka til hins ítrasta komu  hælisleitenda til landsins sem valda þjóðinni gríðarlegum kostnaði. Íslendingar geta heldur ekki tekið við flóttamönnum við þessar aðstæður og taka sér því hvíld frá þeim skyldum.

Íslenska ríkinu ber að leita allra leiða til að tryggja öryggi borgaranna. Því er þessi skylda um megn við þær aðstæður sem nú ríkja. Schengen samstarfið tryggir okkur framkvæmd þess að stöðva glæpamenn á landamærum okkar og spara okkur að senda lögreglumenn til útlanda til að fylgja brottvísuðum vítisenglum eða álíka liði úr landi. Þeir fá einfaldlega ekki aðgang að landinu.

Við höfum meira en nóg með okkar eigin glæpamenn og getum heldur ekki sóað fangelsisplássum undir útlendinga í þeim mæli sem við gerum. En stóraukin þörf mun verða á fangelsisplássum þegar dómar taka að falla í stærstu fjársvikamálunum sem framundan eru.

Beitum Schengensamningunum okkur í hag eftir 2.gr.

Vegabréfaskyldu strax. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Hjartanlega sammála

Þetta er orðið stórt vandamál og fer bara stækkandi þegar þessi lýður finnur að viðspyrnan er engin.

Þá ganga menn á lagið

Ólafur Jóhannsson, 25.12.2009 kl. 11:27

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Góður pistill, Halldór.

Það væri góð Nýársgjöf til þjóðarinnar að herða eftrlit með komu glæpagengja til landsins, sem brjótast inn í hús og rupla og ræna auk þess að vera ábyrg fyrir um 80% af öllum gripdeildum úr verslunum hér á landi. Það þarf að uppræta þetta hið fyrsta.

Nú - svo er von til þess enn, að þjóðin fái Icesave samninginn felldan í síðbúna jólagjöf..... gangi það ekki eftir verðum við víst bara að treysta á að Jólakötturinn taki til sinna ráða....!

Ómar Bjarki Smárason, 25.12.2009 kl. 13:15

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þessu hef ég svo sannarlega verið sammála lengi.  Best væri að vera ekki í Schengen.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Ágúst H Bjarnason, 25.12.2009 kl. 13:26

4 identicon

Ég vil út úr þessu, ef það er ekki hægt er vel hægt að bæta vegabréfaeftirlit hér án þess að segja okkur úr þessu...

..því ætti ekki að vera hægt að bæta reglum ofan á þetta kerfið sem við nauðbeygð erum í núna....

Við erum eyja, og því eru þarfir okkar allt aðrar en þær sem telja að Schengen sé nauðsynlegt til að sækja vinnu og mat í öðrum löndum.  

skoðum bara Breta og Íra.

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2009 kl. 13:31

5 identicon

...en líklega erum við of hrædd við að vera talin kynþáttahatarar og annað þvíumlíkt til þess að þora að fara fram á sérreglur......

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2009 kl. 13:32

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta öllsömul og Gleðileg Jól.

Ég vildi að Björn Bjarna myndi úttala sig um tæknilegu hlutina sem mér finnast alveg borðliggjandi skv. 2.gr, í samningnum. Ég held að það sé kannski ekkert verra að vera í Samningnum en fara ekki alveg eftir honum eins og mér skilst að Svisslendingar hafi komist upp með.

Þetta hefur ekkert með kynþáttahatur að gera.Þetta er bara spurning um innanlandsreglu og afbrotavarnir gjaldþrota þjóðar undir kommúnistastjórn, þar sem ekki eru til peningar í að halda úti heilbrigðisstarfsem né löggæslu.

Halldór Jónsson, 25.12.2009 kl. 16:55

7 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

En er ekki kommúnistastjórnin ákveðin trygging fyrir því að fólk forðist að koma hingað, nema fyrir verðlagið sem fer að verða svipað lágt og á Kúbu...! Nú svo fer nú að koma að því að þjófagengin verða búin að stela hér öllu og flytja góssið úr landi svo hér verður engu til að stela.... Þá og fyrst þá gæti núverandi ríkisstjórn loks farið að hugnast að gera eitthvað.

Við þurfum sprettaharða stjórnmálamenn til að stjórna landinu við núverandi aðstæður, en fjósakonur (sem ekki höfðu rænu á að moka flórinn eða sáu yfirleitt ekki skítinn í flórnum meðan þær sátu í fyrri stjórn) og langhlaupararar hafa ekkert í þetta að gera eins og staðan er nú.... enda fer þá að bresta þol og ná tæpast í mark úr þessu.....

Ómar Bjarki Smárason, 25.12.2009 kl. 18:19

8 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Safnast þegar saman kemur! Flott að þessi umræða er loksins komin af stað og er um að gera að fræðast sem mest og fá þá fróðu til að fræða okkur hin um reglur og óreglur á okkar landamærum. Eftir 40 ára fjarveru þykist ég kunna aðeins á þessa sem eiga heima í suður þessu eða suður hinu og vill meina Íslendingum er alls ekki ljóst hverskonar úrhrak mansins er verið að sleppa inn. Og ekki tala um kinþátta blabla það á ekkert skylt við þennan pistil!!!!

Wolfang

Eyjólfur Jónsson, 25.12.2009 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband