Leita í fréttum mbl.is

Á mér að finnast þetta í lagi ?

Að hugsa sér !

Þeir Svavar Gestsson og samverkamenn hans leyndu ráðherran þeim upplýsingum sem þeim fannst vera truflandi fyrir Icesave samninginn með glæsilegu niðurstöðunni.

"Í trúnaðarbréfi lögmannsstofunnar Mishcon de Reya, undirrituðu af Mike Stubbs, frá í gær til fjárlaganefndar Alþingis segir fyrst að stofan sé að fara vandlega yfir öll skjöl sín sem snerti Icesave-málið og bera þau saman við það sem birt hafi verið á vefsíðunni www.island.is, bæði þau sem séu öllum opin og einnig þau sem falli undir gr. 82 og Alþingi haldi leynilegum. »Þetta mun taka nokkurn tíma en við getum strax afhent ykkur eftirfarandi skjöl sem ekki virðast vera tilgreind á vefsíðunni www.island.is: 1. Athugasemd frá Matthew Collings lögmanni þar sem fjallað er um hugsanlega málshöfðun vegna aðgerða bresku ríkisstjórnarinnar, afhent hr. Svavari Gestssyni, formanni Icesave-nefndarinnar, dagsett 25. mars 2009. 2. Icesave - málefni og lausnir, kynning frá Mishcon de Reya til hr. Svavars Gestssonar, formanns Icesave-nefndarinnar, dagsett 26. mars 2009. 3. Þriðja leiðin, athugasemd til bráðabirgða sem fylgiskjal með kynningu frá Mishcon de Reya til hr. Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, dagsett 31. mars 2009. Við höfum ennfremur fundið fjölda annarra skjala sem ekki virðast heldur vera tilgreind á vefsíðunni www.island.is, þ. á m. (i) innanbúðarminnisblað fyrri ríkisstjórnar Íslands um Icesave, (ii) bréfasendingar til alþjóðlegra stofnana eins og Eftirlitsstofnunar Efta og Ecofin, (iii) nokkur skjöl viðvíkjandi Landsbankanum og tillögur hans um Þriðju leiðina, og (iv) bréfasamskipti okkar við Icesave-nefndina og fjármálaráðuneytið, þ. á m. tölvuskeyti.« Búist sé við að hægt verði að senda þessi gögn og önnur til þingsins síðar sama dag [þriðjudag]. Minnt er á að ráðgjöf lögmannsstofunnar hafi tekið mið af þeim markmiðum sem Icesave-nefndin hafi kynnt stofunni, það er að gera sem auðveldast að ná samningi við Breta og Hollendinga sem þjóðin réði við fjárhagslega og hægt væri að fá hana til að samþykkja. Pólitískt viðkvæm málshöfðun fyrir Breta Mishcon de Reya segir að í áðurnefndum skjölum sé minnst á hugsanlega málshöfðun vegna aðgerða breskra stjórnvalda. »Eins og við sögðum Icesave-nefndinni og fjármálaráðuneytinu um þetta leyti gæti slík málshöfðun gegn FSA [breska fjármálaeftirlitinu] verið pólitískt viðkvæm fyrir bresku ríkisstjórnina og gæti því ef til vill orðið gagnlegt tæki til að ná viðspyrnu gagnvart breskum stjórnvöldum í endanlegum samningum um Icesave. Þessi viðkvæma staða olli því að formaður Icesave-nefndarinnar ákvað að þetta atriði í kynningu okkar frá 26. mars 2009 yrði ekki með í seinni kynningu okkar frá 29. mars til hr. Össurar Skarphéðinssonar en hann fékk hana afhenta 31. mars á fundi í London. Þar sem formaður Icesave-nefndarinnar var skjólstæðingur okkar var það að sjálfsögðu hans að ákveða hvaða fyrirmæli við fengjum um innihald kynninganna. Urðum við og hr. [Svavar] Gestsson sammála um að meðhöndla skyldi þetta atriði málsins með geysilegri varúð og gæta algers trúnaðar þar sem það gæti dregið úr gildi hugsanlegrar viðspyrnu sem [málshöfðunin] gæti haft í för með sér í samningaviðræðum síðar við bresku stjórnina ef innihaldið læki út. Við vitum að sjálfsögðu ekki hvort þessi viðspyrna var í reynd notuð í samningaviðræðum síðar um Icesave þar sem við tókum ekki þátt i þeim. Við vitum ekki heldur hvort gerð var einhver efnahagsleg eða fjárhagsleg greining eða hún notuð af hálfu Icesave-nefndarinnar í tengslum við þessar samningaviðræður og sú spurning er auðvitað býsna mikilvæg þegar túlka skal ráðgjöf okkar til fjárlaganefndar frá 19. desember 2009. Ef umrædd viðspyrna var ekki notuð á sínum tíma og sé það enn vilji Alþingis að hefja aftur viðræður við Breta, eins og við fjöllum um hér á eftir, myndum við sem fyrr mæla sterklega með því að þessar upplýsingar yrðu áfram trúnaðarmál. En ef Alþingi hins vegar vill ekki hefja aftur samningaviðræður við Breta og vill samþykkja Icesave-samninginn eins og hann liggur fyrir er það Alþingis að ákveða hvort það vill aflétta leynd á þessum upplýsingum

Lögmannsstofan segir að gagnlegt geti verið að fresta niðurstöðu í málinu um hríð »innan hóflegra takmarka« til að ná fram »-samningsins sem lagalegri fullvissu um nákvæma og merkingu og  áhrif Icesavevið álítum sem stendur að sé óskýr« og kanna til hlítar hve mikill sveigjanleiki sé fyrir hendi til að semja á ný. "

 

 Breytir engu segir Steingrímur J.

 

Hverra erinda gengur þessi maður ?

Á mér bara að finnast þetta í lagi ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi.

Ég hef eins og flestir verið að furða mig á því hvers vegna svona mikið liggur á að samþykkja lögin frá Alþingi fyrir áramót.

Mér datt í hug ein hugsanleg skýring áðan:

Forseti Íslands flytur sitt áramótaávarp annað kvöld. Það mun hann væntanlega útskýra afstöðu sína, og ef að líkum lætur, hvers vegna hann hafi undirritað lögin fyrr um daginn.

Það er nokkuð víst að ávarp forseta sé tekið upp fyrirfram, þ.e. ekki er um beina útsendingu að ræða. Þess vegna er forsetinn nú þegar búinn að semja sína ræðu og flytja hana fyrir framan myndavélarnar. Ræðunni verður því ekki auðveldlega breytt. Því þykir ríkisstjórninni og forsetanum mikilvægt að raunveruleikinn verði í samræmi við áramótaávarpið sem þegar hefur verið samið og tekið upp.

Af þessum sökum er mikilvægt að ljúka málinu í dag að mati ríkisstjórnarinnar.

Þetta er auðvitað bara tilgáta...






Ágúst H Bjarnason, 30.12.2009 kl. 16:55

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Góð tilgáta, Ágúst. Kannski er Ólafur farinn af landi brott og búinn að flytja sitt ávarp.... og svo er kannski búið að skrifa ræðunar fyrir  forsætisráðherra einnig og ræðuritarinn farinn í frí... það er að mörgu að huga í þessu....

En það getur auðvitað líka verið að það sé gert ráð fyrir því í Áramótaskaupinu að það sé búið að semja um Icesave, sem er auðvitað miklu alvarlegra mál.....!!!

Ómar Bjarki Smárason, 30.12.2009 kl. 17:32

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór minn. Þér og öllum öðrum Íslendingum á að finnast það sem verður til í þeirra huga og hjarta. Við erum skyldug til að mynda okkur skoðun út frá okkar eigin hjarta og persónuleika en ekki svikulum fréttaflutningi þessa lands. M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.12.2009 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband