Leita í fréttum mbl.is

Siðgæði-Gegnsæi !

Ég rakst á grein eftir Gunnar I.Birgisson, hinn brottrekna bæjarstjóra Kópavogs á Pressunni. Gunnar bíður enn eftir að mál hans komist á hreint. Í dag er þriðji fresturinn liðinn sem yfirvöld lofuðu til að klára málið. En það snérist um hvort Lífeyrissjóður Starfsmanna Kópavogs hefði lánað ábyrgðarmanni sínum nokkur prósent umfram heimilað hámark til eins aðila. Framkvæmdin var gerð í þágu beggja aðila til hagsbóta fyrir lífeyrisþega sjóðsins.

Steingrímur J. Sigfússon rak stjórnina frá klukkan hálfellefu að kvöldi og skipaði Elínu Jónsdóttur yfir sjóðinn. Gunnar var formaður sjóðsins og Ómar Stefánsson notaði tækifærið og rak rýtinginn í bak bandamanns síns og velgjörðamanns, Gunnars Birgissonar og krafðist brottrekstrar hans úr bæjarstjórastóli og allra nefnda í Kópavogi. Maður sem á þvílíka vini sem Ómar þurfa ekki óvini. Þessa gersimi sem Ómar er ætla Framsóknarmenn að fara að endurkjósa sem leiðtoga fyrir sig sem treyst verður fyrir því  að byggja brýr yfir til annarra flokka í bæjarstjórn Kópavogs að afloknum kosningum í maí n.k.

Gefum Gunnari orðið:

"Kúlulánadrottning Steingríms J.

Hún vekur undrun, síðasta ráðning vinstri stjórnarinnar í mikilvæg embætti, þ.e. ráðning Elínar Jónsdóttur í stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins.

Elín er greinilega í miklu uppáhaldi hjá fjármálaráðherranum. Hann lét skipa hana sem tilsjónarmann þegar ráðuneyti hans tók yfir Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar vegna þess að við, sem sátum í sjóðsstjórninni, vildum ekki tefla fjármunum sjóðsfélaga í tvísýnu í miðju efnahagshruni. Við björguðum fjármunum sjóðsins og tókst vel til.

Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar aðgerðir. Það hefði verið óráð að geyma peningana í bönkunum eins og ástatt var. Þá hefði mátt gagnrýna stjórnina fyrir að taka óþarfa áhættu. Við geymdum þá í staðinn í öruggu skjóli bæjarsjóðs. Það var ekki bannað heldur er talið að lánveitingin hafi hugsanlega verið umfram hámark sem ákveðið var í útrásaræðinu.

Tilsjónarmaðurinn gerði ekki miklar rósir á skrifstofu Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar utan lélegar mætingar og ólund. Þá rak hún framkvæmdastjóra sjóðsins, sem ekkert hafði til saka unnið, nema að skrifa bréf í umboði stjórnar. Þetta mál er líka óskiljanlegt í ljósi þess að Kópavogsbær ber 100% ábyrgð á lífeyrissjóðnum.

Í fjölmiðlum undanfarið hafa komið fram þær fréttir að Elín þessi stundaði hlutabréfabrask og fékk til þess lánað fé, svonefnt kúlulán á annað hundrað milljónir króna, hjá bönkunum fyrir hrun. Þegar syrti í álinn og braskið gekk ekki upp, þá seldi hún fyrirtækið með einskis verðum hlutabréfum en kúlulánið stóð eftir ógreitt!

Löglegt en siðlaust – eða hvað?

Af þessum sökum er tilsjónarmaðurinn góði, yfirmaður Bankasýslunnar og sérlegur eftirlitsmaður fjármálaráðherra með bankaviðskiptum í landinu kölluð kúlulánadrottningin.

Siðaumvandanir vinstri manna eiga alltaf við alla aðra en þá sjálfa. "
Þarna  hafa menn siðgæði og gegnsæi stjórnsýslunnara hjá vinstristjórn Steingríms J. Sigfússonar fyrir augunum .

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snæbjörn Björnsson Birnir

Ætlaði nú eiginlega ekki að "kommenta" á þetta rugl hjá þér, en segi bara: Haltu þig að flugdellunni....gerir minni skaða þar held ég....

Snæbjörn Björnsson Birnir, 15.1.2010 kl. 22:19

2 Smámynd: Billi bilaði

Já, þið þurfið sko ekkert að taka til í ykkar ranni, sjálfstæðismenn, því að alltaf getið þið böl ykkar bætt með því að benda á eitthvað annað.

Siðleysingjar allra alda hafa nýtt sér þetta - því ekki þið líka?

Billi bilaði, 16.1.2010 kl. 00:34

3 Smámynd: Ólafur Als

Þær eru eftirtektarverðar pillurnar, sem Snæbjörn og sá bilaði senda þér Halldór. Ekki þar fyrir að sjálfstæðisflokkurinn má gjarnan fara í nánari naflaskoðun en hefur verið gert hingað til. Það er í mínum huga nauðsynlegt, til þess að fólk fái trú á þeirri stefnu, sem hann hefur markað sér í fjölmörgum málum. Þessi naflaskoðun þarf ekki einungis að beinast að mistökum forystunnar, eins og bent var á í einhverri skýrslunni, heldur einnig einstaka málaflokkum, þar sem þarf að fara í gagngera endurskoðun - hvar menn þurfa að spyrja sig óvæginna en þarfra spurninga. Læt þá málefnaumræðu bíða betri tíma.

Þó svo að menn vilji tengja við sjálfstæðisflokkin ýmsa óáran síðustu ára, verðskuldað eður ei, þá hlýtur það að vera keppikefli þeirra, sem boða nýjan sannleika, að vilja standa við háleit loforð, sbr. þau sem einkenndu málflutning VG fyrir síðustu kosningar en hafa einnig endurómað víða um samfélagið. Læt málflutning samfylkingarinna liggja á milli hluta, þar eð á þeim bænum virðast menn ekki kannast við mistök og þeim því ógerlegt að bæta sitt ráð.

Núverandi stjórnvöld hafa orðið uppvís að spillingu og klíkuskap í mannaráðningum, aðkomu að einstaka málefnum o.fl. en sér í lagi hafa þau orðið uppvís að því að það var lítið mark takandi á öllum loforðunum um gegnsæi, heiðarleika og bætt vinnubrögð. Slíkt er ekki til þess að bæta orðsport stjórnarflokkanna og það grefur enn undan því trausti, sem þegnarnir bera til stjórnmálanna. Þannig skaðast allir.

Og svo koma brekkur á borð við Snæbjörn og þann bilaða og telja sig hafa efni á að agnúast út í það þegar bent er á að óvandað eðlið á einnig heima þar sem vandlætingin er mest. Hátt mega sumir hreykja sér.

En fyrst og fremst er mér umhugað um að hægri menn snúi sér að sínum innri málum en eins og sakir standa, er ég ekki viss um að núverandy forysta sé þess umkomin að stýra slíkri vinnu. Er ekki kominn tími til að "grasrótin" láti betur í sér heyra? Ég þykist viss um að það sé vilji til þess á meðal margra, það vantar einungis öfluga talsmenn til þess að hrinda slíku starfi af stað.

Hvar er slíka einstaklinga að finna, ef þeir eru þá til?

Ólafur Als, 16.1.2010 kl. 01:11

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Ólafur

Þakk þér fyrir ígrunduð skrif. Það er sagt að flokkar verði ekki betri en fólkið sem í þeim er. Það á við um Sjálfstæðisflokkinn eins og aðra. Nema að litlu flokkarnir þola mun minni skammt af óvönduðu fólki vegna smæðarinnar. Sjáðu til dæmis deilurnar í litlu flokkunum, þar berjast menn stöðugt innbyrðis. Í stórum lýðræðisflokki þurfa menn virkilega að sanna sig til að komast upp. Það gerir enginn sem hefur bara sjálfan sig að hugsjón. Slíkir uppreisnarmenn koma gjarnan úr öðrum flokkum þar sem þeir rekast ekki á eigin verðleikum. Líttu bara yfir sviðið í huganum.

Ég hef ekki aðstæður til þess núna að reyna að setja mig inn í hugarheim fyrstu tveggja skríbentanna. Ég held að þeir lifi í þjáningu sinni þangað til að þeir átta sig á því að lífið hatar yfirleitt engann að fyrrabragði þó gæfunni ( tilviljunum) sé auðvitað misskipt. 

Halldór Jónsson, 16.1.2010 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband