Leita í fréttum mbl.is

Þorvaldur og þjóðríkið Ísland.

 

Enn þeytir Þorvaldur Gylfason Evrópusambandsrokkinn sinn og spinnur garnið sem Samfylkingin notar til að skrýða framtíðarkeisara Íslands með. Grípum niður í grein Þorvaldar frá fimmtudeginumí Baugstíðindum:

 „Eistar eru ekki nema fjórum sinnum fleiri en Íslendingar. Þeir eru smáþjóð líkt og við og að sama skapi viðkvæmir fyrir sögu sinni, tungu og menningu. Sagan, tungan og menningin stöppuðu í þá stálinu árþúsundum saman undir erlendu oki, síðast undir þungu fargi Sovétveldisins 1940-1991. Samt gengu Eistar glaðir inn í ESB 2004, án þess að um inngönguna væri umtalsverður ágreiningur af þjóðvarnarástæðum eða öðrum sökum. Reynslan af ofríki Rússa vó þungt. Eistar þykjast ekki hafa þurft að fórna neinum þjóðlegum verðmætum við inngönguna í ESB, og sama máli gegnir um Letta og Litháa og einnig um Austurríkismenn, Dani, Finna, Grikki, Íra, Portúgala og Svía. Hví skyldi annað lögmál gilda um Ísland? „Hvernig veit Þorvaldur hvernig allir Eistar hugsa ? Hvernig veit hann hvernig ég hugsa ? Eða þú ?

Ætli þjóð sem á landamæri að stórveldi sem hefur oftlega beitt þá ofríki telji ekki allt skárra en endurtekning?

Hvernig skyldi Þorvaldur ætla að leysa vanda Grikkja  um þessar mundir ? Skera niður opinbera þjónustu og minnka ríkissjóðhallann ? Gengur flott upp í Háskóla Íslands. En Grikkir bara vilja ekki láta taka af sér skóla og heilsugæslu. En þeir geta bara ekki prentað peninga eða fellt gengið því þeir eru með mynt Þýskalands. Þeir geta bara ekki framleitt eins mikið á mann og Þýskaland til þess að standa undir sömu þjónustu og þar er. Íslendingar geta það ekki heldur nema stundum í góðæri. 

 „Enn aðrir andstæðingar inngöngu í ESB bera fyrir sig skert fullveldi af völdum aðildar og mega ekki til slíks hugsa. En það er þó einmitt einn höfuðtilgangurinn með ESB-aðild að deila fullveldinu með öðrum til að skerða völd þeirra, sem hafa farið illa með vald á liðinni tíð. Land, sem hefur um margra áratuga skeið haldið illa á peningamálum sínum, þarf að deila peningastjórninni með öðrum til að hafa hemil á verðbólgu. Land, sem vanrækir alþjóðaviðskipti af undanlátssemi við innlenda sérhagsmuni, þarf að deila fullveldi sínu með öðrum til að sækja til þeirra styrk til að standa gegn innlendu ofríki. Harðdrægir sérhagsmunahópar leika sér að stjórnvöldum, en þeir geta ekki sagt ESB fyrir verkum. „

Þorvaldur og hans nótar gefa ekki mikið fyrir hugtakið fullveldi og þjóðerni. þeir sjá ekkert athugavert við það að flytja inn þúsundir af öðrum kynstofnum og múslímum til Íslands. Þeir telja það fordóma að setja spurningamerki við slíkt.  

Í því opna félagafrelsi sem hér ríkir er ekki hægt að stjórna efnahagsmálum með fastgengi. Eins og til dæmis  ef Þorvaldur  fengi að skipta krónunni út fyrir Evru á genginu ca.  1:250 eins og trúlega gæti boðist. Reikni hver fyrir sig.  Hvernig ætlar Þorvaldur að leysa það mál þegar kennarar ákveða að leiðrétta laun sín um 30 % í Evrum talið? Eða ljósmæður ? Og svo þarf einhvern tímann að huga að launum prófessora og slíkra sem allt vit í landinu veltur jú á að þeirra eigin dómi.

„Greiðasta leiðin til að lækka vexti og verðlag og losna undan innlendu ofríki, gjaldeyrishöftum og öðrum heimatilbúnum ófögnuði er að semja sig að þeim húsaga, sem fylgir aðild að ESB. Við gætum að vísu gert þetta allt á eigin spýtur, en reynslan sýnir, að við gerum það ekki. Til þess þarf traustan gjaldmiðil, og þá er evran nærtækust og kallar á aðild að ESB.“

Hvað eru vextir í Þýskalandi ? Yfirdráttur til góðra fyrirtækja ber ca. 15 % vexti. Sparisjóðsbók til þriggja ára ber 4.5 % vexti. Heldur einhver að bankinn láni þá út til 25 ára á einhverju lægra ? Eru nokkuð öðruvísi lán en myntkörfulánin hér voru plús bankaþóknunin ? Hver er verðbólgan í Þýskalandi ? Ætli hún sé ekki um 5 % ?Hversvegna ekki meiri. Því Þjóðverjar þora ekki að hrófla við launum í landinu. Það sleppur af því að þeir eru með þrælahald í landinu sem stritar fyrir lægri laun en Þjóðverjar láta bjóða sér.En þetta er allt á niðurleið því að Þjóðverjar eru að deyja út í eigin landi en þrælarnir að taka yfir.

„Fullveldisrökin gegn aðild Íslands að ESB hafa holan hljóm í munni þeirra, sem steyptu þjóðinni í skuldir. „Með öðrum orðum sagt: Hlustið ekki á Sjálfstæðisflokkinn sem er einn sekur um hrunið. Samfylkingin kom þar hvergi nálægt.„Útlendingar hafa nú alla þræði Íslands í hendi sér samkvæmt viðteknum umferðarreglum alþjóðlegra fjármála“

Er hægt að túlka viðhorf ríkisstjórnar  Steingríms og Jóhönnu betur ? Uppgjöf fyrir Icesave og AGS . Samþykkjum þúsundmilljarða skuld svo við getum fengið meira skammtímalán. Við engan má tala nema ESB. Kínverjar eru ekki til frekar en Rússar ?

Hversu mörgum  Haitibúum skyldi  Þorvaldur vera tilbúinn að veita hér landvist ? 100 ? 1000 ? 10000? 100000?

Þjóðríkið Ísland, hvað er það ?l

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er ósköp gott að eiga menn sem eru bernskir í hugsun og hjartahreinir fram á efstu ár.

Aftur á móti duga slíkir menn nú ekki í stærri pólitískum ákvörðunum.

Árni Gunnarsson, 5.2.2010 kl. 09:34

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég ætlaði einmitt að skrifa um þessa fráleitu grein hans Þorvalds, Halldór, og geri það vonandi. Hann notar þær vitlausu röksemdir, að menning og þjóðtunga Eista hafi ekki lagzt af með innlimun í Evrópubandalagið. Þetta er heimskuleg röksemd, enda hef ég hvergi heyrt, að gera eigi frönsku eða þýzku að tungumáli íbúa í bandalaginu. Svo er fullveldið ekki fólgið í tungumálinu.

Hann heldur því fram, að Ísland sé ekki fullvalda, af því að það sé skuldugt! Samt tekur hann Eystrasaltslöndin sem dæmi um, að ríki, sem fari inn í þetta bandalag, haldi fullveldi sínu – og þó eru sum þeirra a.m.k. yfir sig skuldug eins og við! - Nei, þau eru auðvitað fullvalda, en við ekki! Þvílíkur EB-spuni rennur upp úr mönnum, þegar þeir fara að réttlæta það að leggja niður okkar sjálfstæði og setja okkur á bás, þar sem við fengjum að ráða sennilega um 2% af löggjöf landsins og þar sem okkur yrði veitt 0,06% atkvæðavægi til að hafa áhrif í því bandalagi!

Vitaskuld eru það því svik við fullveldi og sjálfstæði landsins að taka stefnuna inn í þetta stórveldis-sambandsríki sem EB er. Annar Icesave-flokkurinn gerir sér það að góðu og sennilega hluti hins líka – svei þessu óþjóðholla liði!

Jón Valur Jensson, 5.2.2010 kl. 10:15

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Vel mælt Jón Valur

Þú kemur hugsuninni til skila. Menn eru ennþá að áfellast Gizur Þorvaldsson frænda minn fyrir Gamla Sáttmála. Heldurðu að einhverjir muni eftir Þorvaldi Gylfasyni eftir 800 ár ? Hvað skyldi mönnum finnast um hann ef þá íslenskt þjóðerni er ennþá til eftir starf þeirra krata og Alþjóðahúss  í þau ár.

Árni Gunnarsson,

Ég vænti þess að þú sért að tala um mig enda passar það að enginn áhrifamaður hefi ég verið..

Halldór Jónsson, 5.2.2010 kl. 10:59

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki misskilja mig svona hroðalega Halldór.

Ég var að hugsa upphátt um Þorvald Gylfason.

En auðvitað mátti misskilja þetta þegar enginn var nefndur.

Ég hef aldrei efast um afstöðu þína til ESB og fullveldis okkar þjóðar að því marki sem eftir lifir af því. Minn draumur er að stofna samtök um kröfuna um að ganga úr þessu EES rugli.

Árni Gunnarsson, 6.2.2010 kl. 21:07

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég kæmi svo sannarlega með þér í slík samtök, Árni.

Jón Valur Jensson, 7.2.2010 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband