Leita í fréttum mbl.is

Landsfundur og ESB

 

Nú  er ég kominn í sparifötin til að mæta á aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins. Ekk iveit ég liggur fyrir þeim fundi nema að formaður vill fá ítrekað umboð vegna rógsins sem stöðugt bylur á flokknum úr Baugsmiðlunum. Yfirskin er líka að það vanti varaformann flokkinn sem er sosum rétt.

Svo er annað sem sameinað andskotalið flokksins tyggur. Að flokkurinn muni klofna ef við ESB andstæðingar verðum ekki góðir við klofningsliðið. Síðast þegar ég var á landsfundi fóru nokkrir ESB sinnar leiðar sinnar. En þeir voru svo fáir að það saknaði þeirra enginn. Vonandi koma þeir aftur á þennan landsfund svo þeir geti tekið útgönguna til baka þegar þeir sjá hversu fámennir þeir eru. 

Því það bendir í raun enn meira til þess núna en á síðasta landsfundi, að ESB sé búið að vera eftir örfá ár. Þá eru raunverulegir Þjóðverjar nær útdauðir og innfluttir múslímar hafa tekið þar völdin. Þýskaland sekkur þá niður á grískt plan og getur engan vagn dregið lengur. Sama gerist í stórum dráttum í Frakklandi og Bretlandi. Rauði Hálfmáninn bíður þeirra allra.

Það versta er að þessar þjóðir hafa allar framið etniskt sjálfsmorð undir forystu krata hvert í sinni heimabyggð. Hver hefur kjaftað upp í annan um slagorð sem þeir skilja ekki að getur bara gilt innanlands; Frelsi jafnrétti og bræðralag. Frelsi getur ekki þýtt frelsi annarra þjóða til að hertaka gistilandið að vild.Og bræðralagið oft er eins og á stjórnarheimilinu íslenzka, þar sem hver situr um annan.

Það verður því fróðlegt ef það kemur í ljós, hversu stór þessi boðaði Baugsklofningur verður í Sjálfstæðisflokknum. Það sést væntanlega núna á landsfundinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Vonandi kemur til fullnaðaruppgjörs við ESBsinna innan Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum og kjósi þeir að yfirgefa flokkinn í framhaldinu, verður svo að vera.

Afgerandi ályktun landsfundarins gegn ESBaðild mun skerpa línur í íslenskri pólitík og tími til kominn að kjósendur hafi þá val um ESBsinnaða flokka og aðra, sem taka skýra afstöðu á móti.

Slíku vali þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki að kvíða.

Ég fjallaði um þetta á mínu bloggi í morgun og hafi einhver áhuga, má sjá það hérna

Axel Jóhann Axelsson, 25.6.2010 kl. 16:14

2 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Ég er sammála því að Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að beygja sig undir ESB dýrkun einhverra örfárra,  lýðræðislegur flokkur á ekki að líða það að láta háværan minnihluta kúga sig.

Hreinn Sigurðsson, 25.6.2010 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband