Leita í fréttum mbl.is

Hagar

Guđmundir Andri skrifar í Fréttablađiđ um Bónusveldiđ. Ţar sem Guđmundur kemur inná skođanir sem ég hef lengi reynt ađ setja fram án ţess ađ nokkur taki undir, ţá vil ég taka undir međ honum. Guđmundur segir m.a.:"Óskiljanlegt er ađ leyft skyldi á sínum tíma ađ sameina Bónus og Hagkaup í eitt allsherjareinokunarfyrirtćki. Enn óskiljanlegra er ađ yfirvöld skyldu heimila innlimun 10/11 búđanna í ţetta veldi. Samkeppni var markvisst útrýmt á matvörumarkađnum eftir ađ hafa ríkt í nokkur ár, milli Bónusbúđanna og Haugkaups.Eins og viđ vitum er frjáls samkeppni óbćrilegt ástand fyrir kaupmenn. Enginn hagnast á frjálsri samkeppni nema kannski almenningur - og hverjum er ekki sama um hann?

Viđ tók ţykjustusamkeppni sem viđ ţekkjum svo vel hjá olíufélögum og símafyrirtćkjum ţessa lands; Öskjuhlíđarsamkeppni. Og um árabil höfum viđ búiđ viđ samkomulag um ađ ţessi búđ sé alltaf međ krónu ódýrara en hin búđin um leiđ og ţess hefur veriđ vandlega gćtt ađ halda matvöruverđinu nćgjanlega uppi til ađ hćgt sé ađ greiđa sómasamlegan arđ. Fyrir arđinn af ţví ađ selja Íslendingum mat virtist á tímabili hćgt ađ kaupa heilu og hálfu heimsborgirnar. Seinna kom ađ vísu í ljós ađ til stóđ ađ kaupa heiminn út á krít en ţađ breytir ţví ekki ađ gróđinn af ţví ađ selja Íslendingum gulrćtur og paprikur, pillur, kóka kóla, og seinna hlutabréf í genunum í sjálfum sér, fyllti á tímabili unga menn - sem allir voru vinir - slíkri ofsatrú á sjálfum sér ađ ţeir héldu ađ ţeir kynnu fleiri klćki en nokkur annar kaupsýslumađur í heiminum. Ţađ reyndist ekki svo...."

...."Fólk kaus Bónus unnvörpum međ buddunum. Ţeir Bónus-feđgar fengu mikiđ frá íslensku ţjóđinni - ţeim var trúađ fyrir miklu. Ţeir keyptu sér snekkjur og hurfu inn í tilbúinn heim...."

...."

Sú eyđa sem Bónus-feđgar höfđu fundiđ - var vandlega fyllt. Bónus-feđgarnir glúrnu sáu til ţess ađ engir viđlíka hugkvćmir og ţeir kćmust inn á markađinn til ađ keppa viđ ţá. Sjálfir voru ţeir á snekkjunum sínum. Og ţađ fór sem fór."

 Ég held ađ Guđmundur hafi hitt naglann á höfuđiđ í ţetta sinn.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Sigurđardóttir

Öskuhlíđarsamkeppni er gott orđ yfir vitleysuna.

Ég skrifađi pistil um ţjófnađ Atlantsolíu ţegar ţeir auglýstu afslátt en svo var enginn afsláttur ţegar til átti ađ taka og búiđ var ađ dćla. Markađsstjórinn ţeirra hafđi samband og vildi rćđa málin. Hann fór fljótlega ađ hiksta ţegar ég talađi um verđsamráđ. Eftir mörg símtöl fékk ég endurgreiddar ca 700 kr. Hvađ ćtli margir nenni ađ fá leiđréttingu eftir ađ hafa veriđ hlunnfarnir vegna ţess ađ: dćlan var biluđ, eđa tölvukerfi bilađi?

Ég skora á fólk ađ láta heyra í sér og fá leiđréttingu. Í Krónunni er iđulega hćrra verđ á kassa en í hillu. Ég tala hátt og snjallt ţegar ég lćt kassabörnin leiđrétta. Vil ađ allar biđrađir heyri ţegar ég segi frá ţví ađ ţađ munađi 500 kr. á harđfisk í hilluverđi og svo á kassa. 

Margrét Sigurđardóttir, 19.7.2010 kl. 10:28

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Margrét er kona, sem greinilega hefur bein í nefinu, og hún er ţar ađ auki réttsýn manneskja. Óskandi ađ sem flestir taki Margréti sér til fyrirmyndar.

Kv., KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 19.7.2010 kl. 18:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband