Leita í fréttum mbl.is

Björgvin rekinn

Una@mbl.is skrifar í Mogga:

"Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lét á mánudag hafa eftir sér óheppileg ummæli sem bentu til þess að viðhorfið til fórnarlamba ofbeldisglæpa væri einmitt þetta. Lögregluembættið brást skjótt við og á heiður skilinn fyrir það, en í kjölfarið hafa vaknað upp gamlir draugar í umræðunni um ábyrga og óábyrga hegðun kvenna gagnvart hugsanlegum ofbeldismönnum. Í þessari orðræðu eru gerendurnir jafnan aukaatriði á meðan kastljósinu er eingöngu beint að fórnarlömbunum og hvernig þeirra eigin hegðun leiddi til þess að á þau var ráðist.

 

Sú almenna regla að hver beri ábyrgð á sjálfum sér á ekki við þegar kemur að ofbeldisglæpum og fórnarlömbum þeirra. Við erum flest sammála því að ofdrykkja sé óráðleg, en við getum ekki samþykkt að með henni færist ábyrgðin yfir á fórnarlambið, jafnvel þótt ástand þess geri ofbeldismanninum með einhverjum hætti auðveldara fyrir að ráðast á það. Sumar konur sem verða fyrir nauðgun eru drukknar. Aðrar eru edrú. Sumar eru fáklæddar, margar eru fullklæddar. Sumar nauðganir gerast á skemmtistöðum, flestar í heimahúsum. Oft þekkja fórnarlömbin árásarmanninn, stundum er hann ókunnugur. Svarið felst því ekki í því að segja konum að hegða sér öðruvísi, klæða sig með öðrum hætti eða vera annars staðar. Það þarf að breyta háttalagi þess sem fremur glæpinn, ekki þess sem verður fyrir honum. una@mbl.is "

Það má ekki ráðleggja fólki að fara gætilega. Sá sem sýnir eða gefur færi á eftirsóttum varningi er ekki að auka freistingar hjá fólki sem er misjafnlega sterkt á siðferðissvellinu. Ef þú leggur seðlabúnt á götuna þá átt þú að geta gengið að því vísu þegar þú kemur út af öldurhúsinu. Þú átt að geta treyst því að enginn ráðist á þig þó þú sért drukkinn innan um drukkna.

Skyldu þessi sömu lögmál vera í heiðri höfð um veröld alla? Er ekki tími nauðgana og ofbeldis að ljúka af því það er farið að tala svo miklu meira um það af því gagnsæi sem er í tísku? Glæpahneigð virðist alltaf gjósa upp aftur hversu vandlega er refsað fyrir glæpi og glæpamenn teknir úr umferð.Ný spilling tekur við af eldri sbr. skilanefndirnar og þessa nýju banka alla.

Hvernig væri að una@mbl.is ræddi það, að hér yrðu lögleidd vændishús til þess að taka einhvern þrýsting af einhverjum? Nei, nei ég er ekkert að finna þetta upp. Þetta er svona í Þýskalandi og af einhverjum ástæðum. Svo mætti líka fara að ræða um að lögleiða fíkniefni til að taka þrýstinginn af glæpastarfseminni í kring um þau. Af hverju eru Hollendingar að föndra við slíkt?

Á meðan heldur fylleríið áfram af fullum þunga. Við rekum bara  Björgvin og alla þá sem vilja draga úr vandræðum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nauðgun er glæpur og engum öðrum að kenna en þeim sem nauðguninni veldur.

Hins vegar skil ég alveg viðhorf Björgvins og tel minni ástæðu fyrir því að hann þurfi að segja af sér meðan lygarar og ómerkingar sitja í ríkisstjórn.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 18.8.2010 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband