Leita í fréttum mbl.is

Danir vilja landamæri á ný!

Í viðtali við Ólaf Kristinsson í Danmörku á Útvarpi Sögu þá kom fram að óþjóðalýður frá Austur Evrópu flæðir inn í Danmörku til ólöglegrar vinnu, innbrota, þjófnaða og eiturlyfjasölu. Vaxandi stemning er meðal Dana um að taka upp landamæraeftirlit aftur til að hægja á þessu. Og ekki bara í Danmörku heldur í Svíþjóð og fleiri löndum líka. Bjarni Benediktsson varaði einnig við slíkri þróun hér á landi í sama útvarpi í gær.

Á meðan keppast íslenskir kratar,  kommar og sérvitringar við að galopna hér allt fyrir þessum innrásum á sama tíma sem við drögum úr fjárveitingum til lögreglunnar. Hér er bannað að hafa skoðanir á ágæti Schengen sem skal uppi haldið. Hingað skulu allir velkomnir, hvort þeir séu með smitandi bráðaberkla, HIV, glæpaferil eða í hvaða tilgangi sem er hingað komnir.Allt skal étið upp eftir evrópuspekinni gagnrýnilaust. Sagt er að andstaða Hjörleifs Kvaran við uppskiptingu OR í framleiðslu og sölu í Evrópustíl og þar með margföldun kostnaðar, hafi valdið brottrekstri hans og er illt ef satt er. Eru okkur Íslendingum alltaf allar bjargir bannaðir vegna sundurlyndis og þrætugirni? Maður svei mér þá heldur það oft á tíðum.

En Danir eru farnir að velta fyrir sér upptöku landamæra aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hef sagt oft og enn mun ég segja, að Íslandi var unnið mein með ólögum.

Ólögin eru í tímaröð

Ólafslög um Verðtryggingu

Kvótalögin

Lög um EES samning um fjórfrelsi.

Langt mál er að rökstyðja þetta en í fljótu bragði er þetta svona

Ólafslög leggja sjálfdæmi í hendur annars aðilans um kjör lánasamninga EFTIR að búið er að skrifa undir pappíra.

 Kvótalögin, afhenda verðmæti sem búin eru til úr ENGU, það er leyfi til veiða verða að verðmætum í bókhaldi fyrirtækja og þeir klækir fluttust svo út í ,,Good Will" útreikninga og bókhaldsbrellur annarra fyrirtækja.

 EES.  Það þarf yfirgripsmikla fáfræði um eindir mannsins, að taka út fyrir sviga græðgi og vilja til svindils.  Það var kyrfilega gert í EES löggjöfinni og menn ætluðust til, að 300 þúsund manna samfélag gæti leyft óheftan flutning fjármagns, fólks, hugmynda og fyrirtækja inn og út úr landinu.

Sjóðum Vís og Sjóvar var stolið og þeir fluttir út, möglunarlaust.

Fólk streymdi inn og lækkuðu laun iðnaðarmanna og annarra, auk verulegs álags á félagslegt bótakerfi landsmanna, semsé fjármunir fluttir ,,frjálsir" út úr landinu.

félög stofnuð í skúffum um alla Evrópu til að taka við fé héðan, fé sem svo ,,týndist í millifærslum milli bankastofnana, sem við áttum í kippum yrta.

Segjum okkur strax úr EES og förum að fordæmi Svisslendinga og tökum upp tvíhliða samninga um VIÐSKIPTI en EKKI fjórfrelsi.

Miðbæjaríhaldið

Íhald per exelance

Bjarni Kjartansson, 19.8.2010 kl. 10:51

2 Smámynd: Alfreð K

Get ekki verið meira sammála skrifunum hans Halldórs. Það er alls konar lið komið inn í landið og alls kyns glæpum, stórum sem smáum, hefur stórfjölgað.

Það sem þótti áður sjálfsagt, eins og bara að skilja bílinn sinn eftir í stæði fyrir framan Hallgrímskirkju með einhverju dóti í, jafnvel bara leikfimipoka, er einfaldlega ekki lengur í boði, hrúgur af glerbrotum undan mölvuðum bílrúðum eru farin að verða þar hversdagsleg sjón. Sjálfur hef ég talið 6 mismunandi tilfelli þarna á undanförnum mánuðum.

Þeir sem finna hjá sér þörf til að gera lítið úr þátt útlendinga í þessu, en Íslendingar kunna jú að stela líka, skal bent á atvik sem varð núna í vetur á bílastæðinu við Mógilsá (undir Esjunni). Þar var brotist inn í tvo bíla, með því að rúður voru miskunnarlaust mölvaðar, um hábjartan dag á meðan saklausir og grunlausir eigendur þeirra voru að stunda heilsurækt og njóta veðurblíðunnar uppi á fjalli.

Það er skemmst af að segja, að annar bíleigandinn, sem er kominn á eftirlaunaaldur, var alveg dolfallinn og næstum brostinn í grát. Sá er búinn að leggja leið sína á þetta fjall í áratugi og aldrei haft minnstu áhyggjur af nokkru svona löguðu. Hann var auk þess nýbúinn að fjárfesta í flottum bíl af ævisparnaðinum sínum og hefur því kannski tekið þeim mun meira á hjá kallinum.

Þegar beðið var eftir að lögregla kæmi á staðinn, keyrði grunsamlegur bíll inn á plan og sneri þar við, viðstaddir veifuðu til bílsins sem í voru 2 ungir karlmenn, til að fá að segja við þá nokkur orð, en þá kom strax þetta svar með ósviknum slavneskum hreim: „English, please!“

Eftir stutt orðaskipti við viðstadda keyrðu mennirnir, sem virtust ekki einu sinni klæddir til útiveru (þetta var yfir hávetur), síðan rakleiðis á brott.

Alfreð K, 19.8.2010 kl. 15:21

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Rifum upp að ákvæði í stjórnarskrá Evrópsku Sameiningarinnar heimila Meðlima-Ríkjum að gera landmæri aftur sýnileg gagnvart almenningi að höfðu samráði við Umboðið.

Lykil atriði Meðlima-Samkeppninnar er einmitt að EU vegabréfið/passinn bætist við þjóðarpassann  en kemur ekki í staðinn fyrir hann.

Ímyndið ykkur hvernig samkeppni um innri þjóðartekjur gengur upp í ríkjum þar sem þjóðhollusta er hverfandi, eða auð letingjar frá einu landi gæti bara flutt yfir í duglega Samkeppni ríkið þegar þeir komast í vanskil.

Litháar eru ekki Íslendingar og Íslendingar eru ekki Þjóðverjar, þótt þeir telji sig til Evrópu. EU er USA og verður aldrei. EU er frekar USSR.

EU verndar þjóðarétt og stendur vörð um hann.         

Júlíus Björnsson, 20.8.2010 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband