Leita í fréttum mbl.is

Skrílstefnan

Bráðum á að kveðja til einhvers þjóðfundar eftir slembiúrtaki úr þjóðskrá. Það er margbúið að reyna svona þjóðstefnur í mannkynssögunni. Þær hafa aldrei leitt til annars en að sýna það, að útkoman er skrílræði. Múgur veit ekkert hvað hann vill. "Múgur er heimskur, grimmur og stjórnlaus", sagði Pálmi Hannesson við okkur í MR þegar við höfðum verið með uppþot í bænum. "Menntamenn mega aldrei hlaupa saman í múg" sagði Pálmi ennfremur.

Allur þessi farsi Samfylkingarinnar um þjóðfund og Stjórnlagaþing  er eitt allsherjar sjónarspil  allt saman. Fyrst að kveðja saman skrílstefnu undir flottu nafni til að bulla um einhver mál sem mættir hafa í besta falli óljósar hugmyndir um. Og síðan eiga einhverjir aðrir, sem nenna að bjóða sig fram til stjórnlagaþings, væntanlega mest kratar og kommar,  því þeir verða þeir einu sem nenna að fara á þetta og geta fengið frí úr vinnunni hjá því opinbera til þess, að fjalla um þetta svo lengi sem þeir nenna.

Stjórnlagaþingið á  að fjalla eingöngu um niðurstöður þessarar skrílstefnu, sem verður sjálfsagt að hætti  Kleóns sútara þjóðfundarmanns úr Aþenu hinni fornu. Síðan á að leggja tillögur fyrir Alþingi sem gerir ekkert auðvitað með þetta allt frekar en landsbyggðarþingmönnunum passar. Því auðvitað snýst þetta bara um það, hvort þeir vilji vinsamlegast láta eitthvað pínulítið af sínum völdum í lýðræðisátt. Og þá fyrir hvaða verð, því ekkert láta þeir ókeypis. Niðurstaðan verður eitthvað of lítið og of seint. Eitt allsherjar fíflarí hefði gamall vinur minn kallað þetta eins og þegar hann ræddi um íslensk stjórnmál

 Þarna sólundar Samfylkingin einhverjum milljörðum í brauð og leiki handa skrílnum svo hann hætti að hugsa um uppboð, eymd og atvinnuleysi og taki ekki eftir því hvernig er verið að koma oki landsölunnar til ESB á landsmenn.

Reynslan af skrílstefnunum  leiddi til þjóðirnar til fulltrúalýðræðisins eins og allar siðaðar lýðræðisþjóðir nota. En Ísland á langt í land til að verða lýðræðisríki með því misvægi atkvæða sem viðgengist hefur hér a landi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér fyrir það, Halldór, að minna hér á misvægi atkvæða. Það varðar ekki aðeins misvægi landshluta, heldur einnig stjórnmálasamtaka, þar sem ýmis þeirra hafa gríðarlegt forskot, ekki sízt í krafti 1,3 milljarða kr. sem flokkarnir á Alþingi skammta sjálfum sér af skattfé almennings á hverju kjörtímabili, auk styrkja sem þeir taka sér í sveitarstjórnum og þiggja frá fyrirtækjum og (loks, í langminnstum mæli!) frá almennum flokksmönnum sínum.

Að nýir flokkar þurfi að ná 8-9% atkvæða í a.m.k. einhverju kjördæmi til að kma manni að, er ranglæti. Eitt kjördæmi fyrir allt Ísland!

Varðandi þjóðfundinn tel ég, að val til hans með slembiúrtaki eigi kannski að þjóna því markmiði Samspillingarinnar að ráða sem mestu um nýju stjórnlögin. Hún álítur fólk, sem valið er tilviljunarkennt, án sérstakrar þekkingar á löggjöf landsins, sennilega meðfærilegra undir leiðsögn þeirrar nefndar, sem nýlega var skipuð og hefur Samfylkingarkonuna Guðrúnu Pétursdóttur (lífeðlisfræðing) sem formann og Njörð P. Njarðvík meðal stjórnarmanna, heldur en ef sú lei yrði farin, að sérfróðir menn um lög og samfélag okkar skipuðu þann þjóðfund.

Jón Valur Jensson, 21.8.2010 kl. 21:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Jón Valur

Ég var satt að segja ekki búinn að átta mig á því hversu lævíslega þeir ætla að stýra slembiliðinu.

Þeir eru búnir að ráða vinsælan skátahöfðingja sem opinberan yfirstjóra en skuggabaldrar þeirra munu í raun hafa tögl og hagldir og leiða lýðinn til þess sem eim er þóknanlegt, krötunum og Steingrími aðalritara.

Félagi Njörður mun sjá um að allt fari sem skipulegast fram að ákveðinni niðurstöðu. Og Guðrun Pétursdóttir sjarmerar kverúlantana til hlýðni með sínum elskulegheitum og fallega brosi. 

Halldór Jónsson, 21.8.2010 kl. 22:00

3 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það eru ýmis lúmsk brögð núna viðhöfð til þess að ESBinnlimunin, gangi eins smurt fyrir sig og frekast er unnt.  Nýi Stjórnsýsluskólinn, er eitt af þeim lymskubrögðum, sem eru í farvatninu.

Kristinn Karl Brynjarsson, 21.8.2010 kl. 22:14

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og það óttast ég mest!

En kærar þakkir fyrir svörin, Halldór.

Jón Valur Jensson, 21.8.2010 kl. 22:15

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Siðustu orð mín hér voru í beinu framhaldi af svari Halldórs.

Eins og oftast nær er ég reyndar sammála Kristni Karli líka.

Jón Valur Jensson, 21.8.2010 kl. 22:17

6 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það kann einhverjum að finnast þetta langsótt, með Nýja Stjórnsýsluskólann, en svo er ekki þegar, betur er að gáð.

 Þegar skóli þessi er kynntur, berast af því fréttir, að ESB hyggst sjálft ákveða hvernig "styrktarfé" (les. mútufé) því verði varið er það mun leggja út fyrir innlimunnarherferðinni.  ESB mun skammta, stjórnvöldum ákveðna upphæð, sem stjórnvöldum ber eingöngu að nota í áróður, aðra upphæð, sem eingöngu skal nota til stjórnsýslulagfæringa og fræðslu þeirra er í stjórnsyslunni starfa o.s.f.v.

Kristinn Karl Brynjarsson, 21.8.2010 kl. 22:25

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég kem af fjöllum, á eftir heyra um þennan Stjórnsýsluskóla ...

Bölvuð kvikindin ...

Það verða örugglega ekki síður lymskar aðferðirnar en hjá Hákoni gamla.

Kær kveðja, Halldór minn, og þakka þér skrifin og umræðuna.

Jón Valur Jensson, 22.8.2010 kl. 00:13

8 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Hér er linkurinn á fréttina um Stjórnsýsluskólann.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/08/20/starfsmenn_raduneyta_a_skolabekk/

Kristinn Karl Brynjarsson, 22.8.2010 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband