Leita í fréttum mbl.is

Kemur okkur þetta við?

Oddur Víðisson arkitekt  sagði eftirfarandi á málþingi um nýtt háskólasjúkrahús á Landspítalalóðinni fyrir níu mánuðum síðan:

 ".....jafnframt “eðlilega kröfu“ að ríkið færi fram á að lífeyrissjóðir keyptu mannvirki og lóðir Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi: „Það verður að teljast ákjósanlegur kostur fyrir lífeyrissjóði að kanna kaup á landssvæði Landspítala samhliða uppbyggingu spítala á nýjum stað. Lífeyrissjóðirnir myndu þá standa að þróun og uppbyggingu á þessu landssvæði og lóðum. Þessir tímar nú, þrátt fyrir allt, fela í sér tækifæri fyrir báða aðila og í reynd landsmenn alla...."

Hver er þörf á nýjum spítalabyggingum þegar ekki er hægt að reka núverandi byggingar vegna fjárskorts? Getúr lífeyrissjóðurinn minn ef til vill tekið að sér reksturinn á Landspítalanum eins og hann getur rekið Húsasmiðjuna og Vodafone og leggja nýja vegi og jarðgöng um landsbyggðina?

Ég hef heyrt það að menn geti ekki keypt tvisvar fyrir sama peninginn. Skyldu lífeyrisþegar verða betur settir eftir öll þessi framafaraáform?

Ég velti fyrir mér því sem mér sýnist, að sum mál séu óstöðvandi. Mig minnir að Davíð hafi orðið veikur og á spítalanum hafi honum vitrast að nota peningana af sölu Símans til að byggja nýtt hátæknisjúkrahús. Síminn var seldur og er auk þess kominn til baka.  Síðan stefndi allt í byggingu háskólasjúkrahúss. Í Vatnsmýrinni vegna flugvallarins sem á að fara. Hafa þing og þjóð verið spurð sérstaklega um hvort ráðast eigi í þessa fjárfestingu hjá þjóð sem fækkar ? Hvort nú sé tíminn ?

Það er verið að hanna byggingarnar á fullu. Málið er komið á fullan skrið eins og bygging Hörpu. Skyldi heildarkostnaðurinn verða í sama hlutfalli við áætlanir á báðum stöðum? Er þetta ostöðvandi?

Kemur okkur sauðsvörtum þetta yfirleitt nokkuð við?

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingimundur Kjarval

Vel sagt.

Ingimundur Kjarval, 29.8.2010 kl. 11:21

2 Smámynd: Lýður Árnason

Sammála, Halldór, þessi firra er lífsseig í stjórnsýslunni og líkast einhver hagsmunatengsl sem halda enni við.  Augljóst að stjórnmálamenn hafa nýtt sér bæði hátæknisjúkrahúsið og Hörpu til fóðurs gæðingum sínum.   Hvorug þessara bygginga er vegna þarfar eða eftirspurnar og sjálfur legg ég til að hætt verði alfarið við hátæknisjúkrahúsið og Hörpunni breytt í fangelsi, ekki veitir af.

Kveðja, LÁ

Lýður Árnason, 29.8.2010 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband