Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju Hæstiréttur

Vilmundur Gylfason kallaði Hæstarétt eitt sinn varðhund kerfisins.

Þessi orð koma í hugann núna. Flestir lögfræðingar landsins voru á einu máli um það, að dómarar myndu fyrst og fremst  dæma eftir lögum og orðanna hljóðan. Lagabókstafnum en ekki utanaðkomandi fyrirmælum eða erindisbréfum ráðherra.

Þeir geta nú étið hatta sína þessir blessaðir lagaspekingar.  Hæstiréttur virðist standa vörð um kerfið, sem borgar honum kaupið.

Væri ekki fróðlegt að Capacent-Gallup  gerði nú könnun á vinsældum Hæstaréttar?  Það fyrirtæki þarf ekki að hafa áhyggjur af vöxtunum á sínum erlendu lánum eins og sauðsvartir þannig að þeir geta gætt fyllsta hlutleysis með spánýja kennitölu. 

Til hamingju með þetta Hæstiréttur. Ráherrarnir munu minnast ykkar í bænum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mér finnst fróðlegt að vita hvort .þegar um jafngreiðslulán er að ræða og búið er að semja um raunviðri heildarskuldar á röð gjalddaga  og sérhver greiðsla í framhaldi því skuli skuli taka hlutfalslegum breytingum frá útgáfu degi, það er með eftirá reiknuði verðbólguálagi, hvor það standist lög að reikna upp með lánið á hverjum einstökum gjaldaga og leiðrétta fyrirfram alla ókræfa gjalddaga til  lokagjaldags til að fá fram nýja veðaflosunar höfuðstól og hækka heildar umsamið raunvirði miðað við verbólgu frá útgáfu degi. Þetta stendst ekki í Ríkjum utan Íslands.  

Júlíus Björnsson, 16.9.2010 kl. 21:07

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór minn!

Ég hef skynjað að það slær réttlátt hjarta í þínu brjósti en ekki einangrað svikult einsefnu-pólitískt hjarta!

Að þú skulir vitna í réttlátasta og réttsýnasta stjórnmálamann 20 aldarinnar á Íslandi (Vilmund Gylfason) staðfestir mína trú á að þú sért hlynntur réttlætinu!

Hvort sem það kemur frá hægri eða vinstri!

þú færð háa mannúðar og réttlætis-einkunn frá mér!

En því miður er ég ekki gjaldgengur einkunnar-dómari samkvæmt háskóla-gráðunum!

Svona er bara hættulegi ójöfnuðurinn þegar kemur að sanngjörnum úrskurði? Afleiðingar ójöfnuður er endalaus togstreita milli kúgaðra og valda-afla! þannig er Ísland í dag!

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.9.2010 kl. 21:33

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þetta er hárrétt greining hjá þér, Anna Sigríður, á honum Halldóri. Hann er mun hrjúfari að utan en innan og mun meiri jafnaðar- og réttætismaður en hann vill kannski viðurkenna sjálfur!

Ómar Bjarki Smárason, 18.9.2010 kl. 16:14

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mér finnst Halldór tilheyra deyjandi kynslóð Íslendinga sem hugsa í grunni rökrétt.  Hæstiréttur skapar sína tiltrú sem framkvæmdum sínum í augum almenning sem hugsar rökrétt.  Í upphafi skyldi endinn skoða og botna í stjórnskrá. Ábygar fjármálstofnanir eru eitt og þær eru sérfræðingar í þeim lögum sem starfsemi þeirra byggir á, hinsvegar eru almennir neytendur vanir að taka mark á fjármálastofnum hingað til sem ekki flokkast undir einhliða áhættu starfsemi og ekki sérfræðingar í lögum og reglurgerðum um sömu starfsemi.

Hér eru og voru framin lögbrot með því að vísvitandi að blekkja neytendur til að auðgast í nafni ábyrgra fjármálstofnanna, tel ég persónulega. 2005 var hruni spá hér af starfsmönnum IMF=AGS, ef það sem var örðru vísi hér en sameiginlegt Norðurlöndum, Þýsklandi, Frakklandi, Bretlandi og UK myndi ekki verða lagfært í samræmi.  Grunvextir öruggra langtímatíma lána ALMENNINGS í UK eru á bilinu 1,77% til 1,99%  en ekki minst 4,5%  raunvextir eins og verðtryggðir nafnvextir Íbúðlánsjóðs sanna erlendum lánadrottnum. 

Júlíus Björnsson, 19.9.2010 kl. 03:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418166

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband