Leita í fréttum mbl.is

Er summa lastanna konstant?

Ég hitti mann sem ţekkir til á fasteignamarkađi. Hann sagđi ađ skilanefndir vćru ađ selja unnvörpum fasteignir á afsláttarprísum til vildarvina sinna. Allt niđur í 50.000 kall fermetrann fyrir nýjar eđa nýuppgerđar íbúđir.
Einn Ameríkani hefđi keypt fjörtíu íbúđir um daginn á slikk. Annar keypti fjórar íbúđir ađ svo góđum lánakjörum ađ hann hefur tugţúsindir í afgang af útleigunni ţegar öll gjöld og afborganir hafa veriđ greidd. Ţađ gefur auga leiđ ađ verđiđ hefur ekki veriđ hátt viđ ţessar ađstćđur.

Er ađ rísa hér upp ný stétt eignafólks sem er ađ fá eignirnar sem bankarnir eru búnir ađ láta slá sér í neyđ fólksins fyrir k.. og kanel og geta leigt húsnćđisleysingjunum međ stórhagnađi? Er ţetta hiđ nýja norrćna velferđarsamfélag Steingríms J. Sigfússonar?

Hversu lengi eiga ţessar skilanefndir ađ geta rakađ til sín launum sem nema tugţúsundum á tímann og geta svo hugsanlega veriđ ađ útdeila gjafapökkum til vina og vandamanna? Hefur einhver eftilit međ ţessum apparötum sem virđast hafa sjálftöku launa og kostnađar? Er líklegt ađ slík apparöt muni einhvern tímann ljúka störfum né klára nokkuđ af upphaflega verkefninu? Verđi mörg ár til viđbótar í ţessum störfum?

Og svo eru ţađ bankarnir og lífeysissjóđirnir. Ţeir virđast núna ráđa öđruhverju fyrirtćki landsins og reka í samkeppni viđ ţau fáu sem enn hjara á horriminni. Virđast ţessi fyrirtćki ekki auglýsa ţess meira og flottara sem ţau eru vonlausara gjaldţrota? Ryđjast ekki jafnvel ţekktir skynsemismenn fram á ritvöllinn til ađ verja ţetta fyrirkomulag ef svo ber undir?

Hvađ er orđiđ af markađshagkerfinu sem viđ mörg trúđum á í gamla daga? Var ekki fyrirtćkjum sem fóru á hausinn og gátu ekki borgađ laun eđa virđisaukaskatt ekki einfaldlega lokađ? Var ţetta ekki svona í ţví kerfi? Núna virđist ekkert fyrirtćki mega fara á hausinn nema ađ ţađ sé handvaliđ til ţess ađ smekk einhverra nafnlausra bankastráka eins og virtist vera í tilviki Sigurplasts? Virtist dómur Hćstaréttar um ógildingu gengisviđmiđunar lána ekki gilda ţar og skuldirnar voru töfaldađar? Almenningur ćmti ekki né skrćmti og enginn ţingmađur né fjölmiđill krafđist rannsóknar. Líklega hefur Jón Ásgeir ekki átt fyrirtćkiđ?

Kemur bara endalaust opinbert fé til ţess ađ halda ţessu öllu gangandi af ţví ţeir segi ađ fólk missi annars vinnuna? Hvađ međ fólkiđ sem flytur daglega til útlanda? Er virkilega engum rekstri ofaukiđ í ţessu hagkerfi ţar sem ţrisvar sinnum fleiri bankastarfsmenn halda úti umfangsminna bankakerfi heldur en gerist í Bandaríkjunum?

Er ţetta ekki ţessi sósíalismi andskotans eins og einhver skilgreindi ţađ? Geta menn til viđbótar spurt sig hvort ný spilling ţrífist á rústum hinnar gömlu? Hvort summa lastanna sé áfram konstant eins og Sveinn heitinn í Völundi sagđi stundum á góđri stund?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Tími leiguliđanna er kominn  í öllu sínu veldi. Sagan segir okkur allt um hvert hvert stefnir.

Menn lifa ekki á fjármálakostnađi einum saman, hinsvegar gengur flestu vel ađ lifa sem skulda lítiđ sem ekkert. Reynslan átti ađ kenna mönnum ađ séríslenska lísfeyrsjóđs og íbúđalána starfseminn hefur sannađ sig vanţroska [glćpsamanlega nýung] miđađ viđ starfsemi sömu tengundar í ríkum utan Ísland sem ég og fleirri viljum bera okkur saman viđ. Fćkka almennum skuldurum međ ađ skera niđur fjármálainnheimtukostnađargeirann er ţađ sem gengur upp. Grunn fyrir eđlilega ţjónustugeira, hlutafallslegast arđabćrastan og veltu minnstan í heimi.    

Júlíus Björnsson, 1.10.2010 kl. 19:23

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góđur og öflugur Halldór! Frábćrlega ţarfar ábendingar.

Skilanefndirnar og störf ţeirra fyrir rannsóknarnefnd, takk!

Jón Valur Jensson, 1.10.2010 kl. 19:32

3 Smámynd: Jón Pétur Líndal

Ţetta er verulega sjúkt ţjóđfélag ennţá hjá okkur, krabbameiniđ lifir góđu lífi ţó sjúklingurinn sé hér um bil dauđur.

Jón Pétur Líndal, 1.10.2010 kl. 22:22

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418211

Annađ

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband