Leita í fréttum mbl.is

Áfram stelpur, áfram Jónína Ben!

Í dag er kvennafrídagurinn. Þó ég hafi alltaf verið þeirrar skoðunar að konur ráði því sem þær ráða vilja, þá hef ég ekki á móti því að þær haldi okkur við efnið. Kannski ættum við karlar að klæðast búrkum í dag kl. 2:45 svo að við bendum þeim á hverjir hafi völdin ?

Ég ætla að viðurkenna hér og nú að ég hef lengi verið í aðdáendaklúbbi hennar  Jónínu Ben. Hún bregst ekki væntingum mínum í Mogganum í dag. Þar skrifar hún sem fyrr akkúrat það sem ég vildi sagt hafa. Fyrir þá sem ekki lesa Mogga er rétt að undirstrika þær spurningar sem hún telur upp:

 Jónína segir meðal annars: 

"Finnst ykkur eðlilegt að aðeins einn innherjadómur hefur fallið tveimur árum eftir hrun?

Finnst ykkur eðlilegt að aðeins einn útrásarvíkingurinn hefur verið úrskurðaður gjaldþrota - það er Björgólfur Guðmundsson?

Finnst ykkur eðlilegt að vita ekki hverjir eru eigendur einkavæddu bankanna tveggja og allra sparisjóðanna sem tæmdir voru innan frá?

Finnst ykkur eðlilegt að dæla tugum milljarða inn í andvana fjármálafyrirtæki og fjárglæfra-tryggingafyrirtæki?

Finnst ykkur eðlilegt að afskriftir í bönkum flytjist ekki til almennra skuldara meðan útrásarvíkingar njóta vildarþjónustu og djamma sem aldrei fyrr?

Finnst ykkur eðlilegt að kúlulánafólk og hrunverjar stýri skuldaaðlögun fórnarlamba sinna úr bönkunum?

Finnst ykkur eðlilegt að Jóni Ásgeiri og Högum sé boðið upp á milljarða afskriftir í 1998 og nú aftur í Högum og áður í Baugi, FL Group, Landic Property... á sama tíma sinnir hann ráðgjafastörfum fyrir þrotabú Baugs í Bretlandi?

Finnst ykkur eðlilegt að skiptastjóri Baugs hafi setið í stjórn Baugs?

Finnst ykkur eðlilegt að Samfylkingin ráði kúlulánþega úr Landsbanka og pólitíska handlangara í dúsínum án auglýsinga í störf á vegum ríkisins?

Finnst ykkur eðlilegt að allir skattar séu hækkaðir á landsmenn en »eignir« útrásarvíkinga ekki frystar?

Finnst ykkur eðlilegt að skatturinn sé ekki á fullu að innheimta frestaðan gervisöluhagnað hlutabréfa fyrri framtala hjá útrásarvíkingum?

Finnst ykkur eðlilegt að FL Group/Stoðir, Exista, Eimskip, Egla o.fl. fái nauðasamninga til að komast hjá riftun á samningum og rannsókn á bókhaldi sem óháður skiptastjóri þrotabús myndi leiða?

Finnst ykkur eðlilegt að lífeyrissjóðir landsmanna taki þátt í þeim blekkingarleik með útrásarvíkingum með því að láta löngu dauð fyrirtæki lifa og þar með nýta komandi ár til afskrifta?

Finnst ykkur eðlilegt að lífeyrissjóðir landsmanna hafi ekki enn kallað eftir opinberri rannsókn á meðferð fjármuna í hrunfyrirtækjum?

Finnst ykkur eðlilegt að stjórnir lífeyrissjóða eru óbreyttar (ein eða tvær undantekningar) frá því fyrir hrun?

Finnst ykkur eðlilegt að ekki hafi verið krafist styrkjalista hjá Glitni?

Finnst ykkur eðlilegt að Arion banki hafi afhent Ólafi Ólafssyni Samskip?

Finnst ykkur eðlilegt að endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans liggi vaxtalausar í London?

Finnst ykkur eðlilegt að kúlulánakóngur frá Glitni, handgenginn Magma Energy, sé ráðinn framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun án auglýsingar?

Finnst ykkur eðlilegt að Jón Ásgeir og frú galdri fram spilapeninga í reksturinn á gjaldþrota fjölmiðlasamsteypu?

Finnst ykkur eðlilegt að nýskeindir bankamenn skili 24, 15 og 12 milljarða hagnaði ?

Finnst ykkur eðlilegt að íbúðalán sem voru flutt frá gjaldþrota bönkunum til endurreistu bankanna með 45% afföllum skili sér ekki strax til almennings, en honum í staðinn lofað útburði og eignaupptöku á þessu ári?

Finnst ykkur eðlilegt að Már Guðmundsson seðlabankastjóri, sem nýtur trausts stjórnvalda, hughreysti almenning með því að segja að það gæti verið að íslenskur banki færi á hausinn án þess að hann vissi af því?

Finnst ykkur eðlilegt að Jón Ásgeir staðfesti að stjórnendur Baugs tóku út vörur fyrir milljónatugi úr verslunum fyrirtækisins á 40% lægra verði en viðskipvinir? Skatturinn gerir ekkert til að rannsaka hvort hafi verið greiddur skattur af þessum fríðindum.

Er það eðlilegt að Einar Karl Haraldsson fái fimmtu vinnuna hjá ríkinu á innan við einu ári?

Er það eðlilegt að vaxtagreiðslur ríkissjóðs vegna sértryggðra innistæðna hlaupi á hundruðum milljarða tæpum tveimur árum eftir hrun? Enn og aftur eru það skattgreiðendur sem borga brúsann.

Finnst ykkur eðlilegt að opinbera fyrirtækið HS veitur sé veðsett fyrir 10 milljarða?

Finnst ykkur eðlilegt að Gaumur Jóns Ásgeirs og fjölskyldu fái kyrrstöðusamning við einn bankann sem þýðir að ekki er hægt að ganga að hrunvaldi Íslands ?

Ég skildi ekki hvar þið voruð þegar landinu var rænt og ég botna ekkert í því hvar þið eruð núna, þegar verið er að ræna því öðru sinni. "

Mér finnst eðlilega að þetta sé skörp og hnitmiðuð greining. Þetta er eðlilega akkúrat það sem ég vildi vita sjálfur.

Mér finnst ekki eðlilegt að maður heyrir tröllasögur um spillingu á vegum skilanefnda bankanna og að verið sé afhenda völdum aðilum eignir á tombóluverði. 

Mér finnst ekki eðlilegt að skilanefndirnar virðast staðráðnar í því að skila engu af sér heldur starfa til eilífðarnóns á kauptöxtum sem slaga uppí gamla Kaupþingsbankann þegar hann var og hét.

Mér finnst ekki eðlilegt að engin tímamörk virðist gilda í uppgjörum bankanna og áframhaldsrekstri fallíttfyrirtækjanna.

 

Áfram stelpur !

Og áfram Jónína Ben! 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og hérna hefur enginn tekið til máls með athugasemdir!

Mér finnst ekkert eðlilegra en að þetta verði innrammað, selt í öllum stórmörkuðum og hengt upp á hverju heimili. 

Svona rétt eins og: Drottinn blessi heimilið

Árni Gunnarsson, 26.10.2010 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418203

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband