Leita í fréttum mbl.is

Félagi Svavar er forsetafúll

í Fréttablaðinu í dag. Hann er ekki kominn yfir það að Forsetinn kom í veg fyrir það að þeim félögum Svavari og Steingrími J. tækist að koma Icesave klafanum á þjóðina, sem hefði orðið henni óbærilegur sem allir vita. Þessir tveir áskrifendur ríkislaunatékka hafa ekki skilið það ennþá útá hvað það mál gengur og munu ekki skilja það héðan af.

Allt vegna þess að Forsetinn sagði einfaldlega á Blomberg að ef þjóðin ætti að borga erlendar skuldir (óreiðumanna) einkabanka þá ætti hún að hafa eitthvað um það að segja. Þetta þolir ekki þessi kommúnisti og líkir Forsetanum við Pútín og Medelev í sama manninum. Tekur undir með félaga sínum Steingrími sem tútinn af bræði ísjónvarpinu sakaði Forsetann um að vita ekki að það væri þingræði á Íslandi.Og svo auðvitað líka fúll yfir að átta sig á því að EU setur frágang Icesave sem skilyrði fyrir inngöngu Íslands. Pínleg pattstaða í aðlögunarpotinu.

Forsetafúll er félagi Svavar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Nú eru þeir búnir að vera fúlir síðan forsetinn vísaði ICESAVE til þjóðarinnar fyrst.  Og verða æ fúlli og fúlli með hverju skrefi okkar fram á við í þessu kúgunarmáli þeirra gegn okkur.  Mikið hljóta þeir og Jóhanna að verða hundfúl þegar við drögum þau fyrir dóm - - - 

Þú varst á kosningalistanum mínum í fáráðskosningunum Halldór, þeim sem voru ætlaðar af Samfylkingunni til að ræna okkur fullveldinu.  Og sem mig langaði alls ekki að vera með í.  Valdi fullt af fullveldissinnum. 

Elle_, 30.11.2010 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418161

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband