Leita í fréttum mbl.is

Gjá í góðu landi

er á milli hugmynda þings og þjóðar. 

Margir trúa ekki einu orði sem frá Steingrími J. og Jóhönnu kemur. Margir trúa ekki einu orði af neinu sem frá Samfylkingarfólki kemur eða þá Vinstri Grænum.  Engu breytir þó einstakir félagar í þessum flokkum séu að reyna að auglýsa sérstöðu sína.  Þetta fólk er ábyrgt fyrir stefnunni sem fylgt er.  Alveg sama hvað það segir og fjölmiðlar þess tyggja upp sem sannleika. Það er ekkert að gerast nema tilraunin til að koma Íslandi  í Evrópusambandið. 

Landið er ekki að rísa og botninn er sléttur.  Atvinnustarfsemi er ekki að aukast þó stjórnin flaggi einhverjum tímabundnum  verkefnum sem stundarfriði. Afréttari en ekki lækning.  Efnahagsstefna Steingrím J. sem felst í því að skattleggja opinbera starfsmenn til þess að efla atvinnulífið ber dauðann í sjálfri sér. Höftin eru komin til að vera ef Steingrímur og Már fá að ráða áfram. 

Það gengur ekki upp að ríkisvæða atvinnulífið eða fjármálakerfið eða tala krónuna niður og evruna upp.  Það gengur ekki að halda því fram að eini vandinn sé skipulagslegur sem megi leysa með því að flytja til fólk og skilti.  Það gengur ekki að  halda því fram að hagræðing leysi allra vanda.  Það gengur ekki að halda því fram að "allt okkar starf í sjöhundruð sumur" hafi verið til einskis. Það gengur ekki að halda því fram að fyrri ríkisstjórnir hafi verið skipaðar fáráðlingum og framtíðin sé fólgin í því  að draga þá fyrir landsdóm. Það gengur ekki að stýra fortíðinni en gleyma framtíðinni. 

Það eru aðeins nýir fiskar sem fleyta okkur fram en ekki löngu dauðir saltfiskar. Verkleysið sem blasir við á Alþingi tefur fyrir bata.  Þar er hugmyndafræðileg gjá á milli fólks.   Þjóðin verður að gefa uppá nýtt og freista þess að ná fram nýju þingi. Nýtt þing verður að reyna að ná saman um það meginmál þjóðarinnar að stöðva landflóttann. Reyna að forðast dæmi Færeyinga sem misstu heila kynslóð varanlega úr landi.   Það hefur engan tilgang að halda hér úti háskólum til að mennta mannlegar afurðir til útflutnings eða tala um ágæti einhverrar þjóðar öryrkja og aldraðra undir fornyrðislagi fallinna hugmyndakerfa.

Það vantar aðgerðir og markaðssókn. Þá fæst atvinna á ný. 

Gleðilegt kosningaár og lokum  gjá í góðu landi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband