Leita í fréttum mbl.is

Skrípamyndin af Siv

finnst mér ekki vera þess virði að framsóknarmenn og feminístar séu að æsa sig. Það þarf ekki mikið innsæi til að sjá hana í svona spaugilegu ljósi þar sem hún stendur og veifar til ríkisstjórnarinnar um að taka sig með. Gegn borgun auðvitað, hún fer ekki að styðja Jóhönnu og Steingrím án þess að fá eitthvað fyrir það sjálf.

Í Bandaríkjunum má segja hvað sem er um Forsetann og hann verður að þola það óbætt. Hann má ekki bera hönd fyrir höfuð sér því það fylgir embættinu. Hann getur ekki höfðað meiðyrðamál. Ég hugsa að hann geti ekki einu sinni sent CIA til að berja teiknarann eins og múllarnir senda´leigumorðingja af stað  ef einhver teiknar skrípamynd af spámanninum. Við erum svo hræddir við þá að enginn íslenskur fjölmiðill þorði að birta myndirnar úr Jyllandsposten að því ég best veit. Skaðaðu ekki skálkinn svo hann skemmi þig ekki. 

Mér fannst ekkert að þessari mynd af Siv og hrein hræsni eða heimska að vera að geysa sig yfir þessu. Enda vekur það enn meiri athygli á hvað Siv er í raun að gera. Hún er nefnilega að gera akkúrat þetta, selja sig pólitískt.

Það er engin skrípamynd heldur grafalvarleg staðeynd fyrir alla þjóðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Hann er orðinn ótrúlegur þessi pólitíski pempíuskapur í þjóðfélaginu Halldór. Það er engu líkara en að þetta þjóðfélag sé að breytast í eina allsherjar miðaldra piparmey, sem aldrei hefur kennt karlmanns!

Viðbrögðin eru ekki ósvipuð og þegar Ásmundur í Garðinum kallaði Steingrím J. kellingu, og allt ætlaði um koll að keyra. Hinir pólitísku vandlætarar sitja nú á öllum þúfum.

Gústaf Níelsson, 18.4.2011 kl. 19:45

2 Smámynd: Skeggi Skaftason

En bíddu... selja sig?? Styður hún ekki stóru mál þessarar stjórnar, s.s. ESB-aðildarviðræður, Icesave III o.fl. ?

Er þá ekki rökrétt að hún vilji frekar þessa stjórn áfram, en t.d. and-ESB-sinnaða harðkjarna-sjalla-stjórn??

Skeggi Skaftason, 18.4.2011 kl. 21:32

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Ef þú átt við dekkin sem eru að hrunja undan stjórnafarartæki þeirra Steingríms og Jóhönnu á síðu 8 Mbl í dag, Halldór, og ákall Steingríms til varadekkjanna þá er ég nú ekki hissa á því að Siv skuli vera fúl yfir því að vera ekki með á myndinni.... eða er ég að misskilja þetta eitthvað...?

Ómar Bjarki Smárason, 18.4.2011 kl. 21:55

4 Smámynd: Einar Steinsson

"Heiðra skaltu skálkinn svo hann skaði þig ekki", þannig hljóðaði þetta máltæki síðast þegar ég vissi.

Einar Steinsson, 19.4.2011 kl. 17:03

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvað sem þér finnst þá sá teiknarinn ástæðu til að biðjast afsökunar sem sýnir alvarleikann...ef menn hafa þokkalega siðferðiskennd.

Jón Ingi Cæsarsson, 19.4.2011 kl. 18:22

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Komst loks í að skoða myndina og verð nú að segja að hún bara fjandi flott. Hins vegar er textinn svolítið á skjön við viðfangsefnið.....

Ómar Bjarki Smárason, 20.4.2011 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband