Leita í fréttum mbl.is

Riverjet

bátar eru farnir að sigla á Hvítá á svæðinu kringum Brúarhlöð. Þetta eru mikil kraftaskip, knúnir mörg hundruð hestöflum og spýta vatni niðurúr sér til að drífa sig áfram. Einhver munur en að fljóta á einhverjum tuðrum niður ána eins og búið er að gera í mörg ár.

Í Hvítá höfðu bændaskammirnar hérna uppfrá einhverja laxveiði í net hér áður fyrr. En mikið af laxi gengur upp Hvítá allt upp að Gullfossi held ég. Laxinn á víst það erindi eitt í ána að hrygna og til að láta veiða sig.  Hrognin eru líklega einhverstaðar  vel geymd á botninum og verða að stórlöxum í fyllingu tímans.

 Sjálfsagt rótar þessi bátur ekkert í þessu vistkerfi, er algerlega vistvænn og algerlega óviðkomandi búandköllunum á árbökkunum. Allt hafa eigendurnir bátanna sjálfsagt þaulrannsakað áður og látið Veiðifélag Árnesinga vita eða Drífu á Torfastöðum. Því ekki höfðu þeir neitt fyrir því að bera þennan rekstur undir neinn af þeim landeigendum sem að svæðinu liggja enda framangreindir aðilar best til þess bærir að fara með málefni þeirra og laxveiðihagsmuni.

Það er áreiðanlega svaka gaman að fá sér bunu í þessum bátum, kostar bara fjögurþúsund krónur kortérið fyrir hvern af 10 farþegunum borð. Enda fyrirtækið búið að opna nýjar höfuðstöðvar í glæsihúsi í Reykholti.  Bendir þetta til þess að starfsemin gangi vel og er eigendunum óskað til hamingju með þetta.

Er ekki tilvalið að útvíkka þessa starfsemi. Svona bátar gætu orðið mikill yndisauki á Þverá-Kjarrár svæðinu og Norðurá líka. Það er hundleiðinlegt að standa þar með laxastöng fyrir hundraðþúsundkall  og ekkert ber kannski fyrir augun nema ein og ein kría. Þá kæmi svona bátur með boðaföllum og drunum þannig að menn féllu í stafi yfir ósköpunum og lífgaði upp daginn. Þannig gætu líka þeir sem ekki eiga hundraðþúsundkalla fengið að sjá þá dásamlegu hluti af landinu  sem aðeins þeir ríku sjá allajafna á þessu svæði.

Blanda væri líka tilvalin fyrir svona útgerð. Svo má benda á að þetta myndi lyfta öllu umhverfi  Sogsins og svo auðvitað myndi umferð svona báta lyfta öllu vatnasvæði Hvítár og Stóru Laxár  allt til ósa.

Það er gleðilegt þegar framtakssamir menn brytja uppá nýjungum í svona sprotafyrirtækjum í sátt við sjálfa sig,  náttúru landsins og þá sem í landinu byggja.Hér mun ekki þurfa nein umhvervismöt eða önnur leiðindi sem oft er verið að rövla um þegar eitthvað á að gera.

 Allir um borð.  Riverjet, það er kikkið sem þig vantar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418152

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband