Leita í fréttum mbl.is

Hver gísl?

og hveer ekki?

Sjávarútvegurinn framleiðir 200 milljarða útflutningverðmæti með núverandi handhöfum kvótans.

Vinstri menn telja þá núverandi handhafa óæskilega. Þeir vilja setja sér þóknanlegra fólk sem kvótaeigendur. Ekki breyta kvótakerfinu heldur endurúthluta.

Hvaða útflutningverðmæti skapa þeir Gylfi, Guðmundur og Aðalsteinn sem réttlæta það að neita að ræða framtíðarhagsmuni sjávarútvegsins áður en boðað er allsherjarverkfall? Hvaða nauðsyn ber nú til endurúthlutunar akkúrat núna áður en samið er um næsta verðbólgustig í svonefndum "kjarasamningum"?

Við erum búin að berjast um kvótann í áratugi.Við erum stödd hér. Við teljum mörg að við verðum að finna einhverja sáttaleið án þess að kollvarpa arðseminni. Var ekki starfandi sáttanefnd sem menn bundu vonir við?

Er allsherjarverkfall núna líklegt til að auka hag þjóðarinnar? Er allsherjarverkfall gíslataka? Eða er LÍÚ að taka gísla? Hverskonar sandkassaumræða fer hér ekki fram?

Aðstæður hvers einstaklings breytast stöðugt.Aðstæður í stjórnmálum breytast stöðugt.

Hver er ekki gísl?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Halldór núverandi handhafar kótans eru með einokun á því að sækja og fara með þessa 200 milljarða. Í stað þess að skila arði sem skilar sér í fjármálakerfi þjóðarinnar eru þeir einhvern veginn búnir að meira en 7 falda skuldir utgerðarinnar síðustu 17 ár síðan framsalið var sett.

Verið er að afskrifa skuldir og stendur til að afskrifa ennþá meiri skuldir? Þessar skuldir munu standa þjóðinni fyrir þrifum næstu áratugi. Í stað þess að vera ríkasta þjóð í heimi sem við hefðum verið ef ekki hefði verið þetta kvótakerfi erum við og verðum fátækasta þjóð í evrópu. 

Af hverju er verið að afskrifa skuldir útgerðarmanna. Ég hélt að við tækjum ekki á okkur skuldir óreyðumanna? Þú veist eins vel og ég að við höfum ekki efni á að halda hirð. Nú eru hirðfífl um allan heim flaggandi kvótapeningum. 30 ára arðin útgerðarinnar.

Hvers vegna eiga að vera handhafar að þjóðareign. Hvers vegna búa núverandi kvótahafar við einokunar aðstöðu meðan mönnum er haldið fyrir utan greinina. Hvar er "frelsi einstaklingsins til athafna"?

Ólafur Örn Jónsson, 29.4.2011 kl. 10:05

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þeir hafa líka hrúgað upp 800 milljarða skuld, sem þeir eru ekki borgunarmenn fyrir.

Þeir hafa ekkert traust til þess að halda því sukki áfram. Þá setja þeir landið á hausinn með sama áframhaldi. 

Mafía er þetta og mafía skal hún heita. 

Jón Steinar Ragnarsson, 29.4.2011 kl. 11:23

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Allt rétt hjá ykkur.

 Spurningin hvort ný hirðfífl af vinstri vængnum verði eitthvað betri? Hvort stjórnendur okkar sem eru núna kommar eða það sem verra er kratar, verði eitthvað betri þegar þeir fara að hygla sínu liði?

Þjóðfélagið er ekki rekið á viðskiptalegum forsendum. Annars hefðu bankarnir ekki lánað svona út á óveiddan fisk.

Allavega myndi það ekki versna að kjósa uppá nýtt og reyna að losna við eitthvað af þessu liði sem nú situr á þingi, steingelt og óhæft til allra hluta. 

Þetta er eitt allsherjar fíflarí eins og einn gamall vinur minn orðaði það þegar hann ræddi íslensk þjóðfélagsmál. 

Halldór Jónsson, 29.4.2011 kl. 12:54

4 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Hallór það verður að losa þjóðina við kvótakerfið sem slíkt. Kvótar verða alltaf misnotaðir. Einhverra hluta vegna hefur aldrei verið hægt að treysta fólki í opinbera geiranum og stjórnmálum til að vera 100% réttlatt. Hvorki hægri og vinstri og allt um kring.

Þess vegna gerum við eins og Færeyingar sem afnámu þetta eftir tveggja ára notkun út af sömu ástæðum og við sjómenn og flestir útgerðamenn voru sammála um 1985 og 86. Sjáðu Reykvískar og Vestfirskar útgerðir á þessum tíma sem ekki tóku þátt í þessu. Þessum mönnum datt ekki til hugar að þessi kvóta endaleysa yrði lögleidd til frambúðar. 

Ég lofa þér Halldór þú villt ekki sjá það þjóðfélag sem Hannes Hólmsteinn vill byggja hér ásamt LÍÚ.

NÚ Á BARA AÐ FÁ KVÓTA VS SÓKNARMARK í þjóðaratkvæði Lýðræðið verður að fá að tala ef hagsmunir þjóðar voru í húfi í Icesave þá eru 10 x meiri hagsmunir hangandi á að losna við kvótann

Ólafur Örn Jónsson, 29.4.2011 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband