Leita í fréttum mbl.is

Þeir láta mest af ...

Ólafi kóngi sem hvorki hafa heyrt hann né séð.

Þetta dettur mér jafnan í hug þegar ég hitt margt sómafólk sem vill endilega ræða málefni Sjálfstæðisflokksins við mig. Eins og ég hafi eitthvað að gera með þá miklu stofnun eða vegferð hennar, umfram aðra flokksmenn.

Þetta sóma fólk geysir sig yfir forystumönnum flokksins í fortíð og nútíð og hefur ráð undir hverju rifi. Þangað til kemur að spurningunni: Úr því að þú vilt ekki þennan, viltu þá hinn?

Undantekningarlaust er hinn ómögulegur líka vegna þessa eða hins. Traustið sé einnota hugtak og allir Sjálfstæðisþingmenn hafi sitthvað röndótt á samviskunni sem geri þá óhæfa og svo þar fram eftir götunum endalaust. Hvern viltu þá ? Yfirleitt kemur ekkert svar nema það, að hann Ólafur Thors hafi verið ágætur og líka Bjarni Benediktsson gamli. Enginn úr nútímanum er nógu góður til að leiða þennan flokk úr því að maður getur ekki skaffað viðmælandanum nýjan Davíð.

Ég er orðinn uppgefinn á því að hvetja þetta fólk til þess að láta sig Sjálfstæðisflokkinn varða. Mæta á fundi og leggja sig fram. Nei, því finnst að það hafi fullt leyfi til að sitja á girðingunni og henda skít í alla sem ganga fram í nafni flokksins en koma sjálft ekki fram með neinar tillögur til úrbóta eða tala fyrir þeim. Þetta fólk kýs hugsanlega flokkinn á góðum degi en líklega þá frekast af því að hinir valkostirnir eru svo hræðilegir.Og vissulega eru þeir það.

Maður getur auðvitað kosið Jón Gnarr eða Þráinn Bertelsson einu sinni í fýlukasti en í næstu kosningum mun maður hugsa öðruvísi. Í næstu kosningum verður kosið milli fjórflokkanna. Fýluflokkarnir fá sjálfsagt eitthvað en vonandi ekki þannig að þeir fái úrslitaáhrif sem getur þó auðvitað skeð. Við þurfum að fá tveggja flokka stjórn strax með mikinn meirihluta sem getur tekið til óspilltra mála. Þessu mótmæla menn yfirleitt ekki en segja samt, að allt þetta lið í fjórflokkunum sé ómögulegt og ekkert á því að byggja. Það veit bara ekki hvað á að koma í staðinn. En það kjósi allavega ekki þetta núverandi lið.

Það þýðir ekkert að vera rökræða við þetta fólk eða svona hálvelgjulið um hversu ómögulegur þessi eða hinn Sjálfstæðismaðurinn er og illa til forystu fallinn. Takið eftir því að þessi umræða snýst aðeins um Sjálfstæðiflokkinn. Enginn nefnir hver eigi að taka við Samfylkingunni eða VG. Öllum virðist slétt sama um þessa flokka eða hvaða þeir geri.

Þó þeir láti mest af Ólafi kóngi sem hvorki hafa heyrt hann né séð, þá skipti þó sköpum hverjir sáu hann og heyrðu. Það er það sem skiptir máli í lífinu, að bæði sjá og heyra. Líka Sjálfstæðisflokkinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég læt mér miklu skipta, um framtíð landsins.  Og hefði ég tök og kosti á, myndi ég mæta á fundi flokksins og láta til mín taka.  En þar sem ég hef það ekki sem stendur, reyni ég að láta í mér heyra hér.

Það sem þarf að breita, er áhrifum einkavæðingarinnar.  Einkavæðingin, sem gerðu í anda erlendra ríkja, var gerð til að gera öðrum ríkjum eins og Bandaríkjunum, kleift að reka og eiga rekstur innan Evrópu.  Sjálfstæðismenn, hefðu öðrum fremur, átt að gera sér grein fyrir því að slíkt væri ekki í anda sjálfstæðis landsins.  Enda missti landið sjálfstæði sitt á sínum tíma, vegna þess að stjórn og rekstur, varð rekin erlendis frá.

Ekki er hægt að taka aftur, það sem gert er.  En það verður á einhvern hátt að stemma stigu við þróuninni, áður en í oefni er komið.

Hverjir standa í forvegi, er í sjálfu sér ekki aðal atriðið.  Á meðan þessir aðilar beita sér fyrir þeirr stefnu sem ákeðið er um.  Persónugerfingin er stór þáttur í kosningum, en stefnan er það sem á að skapa málefnið.  Þó þarf flokkurinn að sjá til þess, að enginn einn verði svo lengi við stólinn að hann byrji að telja stólinn vera ætlaðan sér einum, og persónugeri stólinn en ekki málefnið.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 27.5.2011 kl. 15:14

2 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Má ég nefna Illuga Gunnarsson ?

Mér finnst hann virkilega til forustu fallinn, um leið og hann hefur framkomu sem hugnast mér mjög vel.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 27.5.2011 kl. 15:46

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Tek undir með Sigurði Alfreð...Ég reini að gleima hver leiðir Flokkinn núna...

Vilhjálmur Stefánsson, 27.5.2011 kl. 16:27

4 Smámynd: Magnús Jónsson

Vil minna men á að Illugi var í stjórn sjóðs 9, er sammála Halldóri alltof margir tala en, en þora svo ekki að skipta sér af.

Magnús Jónsson, 28.5.2011 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband