Leita í fréttum mbl.is

Hannes Hólmsteinn

Gizurarson skrifar athyglisverðan pistil um eftirminnilegan kvöldverð á vefsíðu sína. Hann lýsir heimsókn vina sinna til landsins og viðræðum þeirra um frelsi og ánauð.

Greinin endar með eftirfarandi hætti:

..."Einnig sagði ég hinum ungverska gesti, að ég hefði iðulega á fyrri tíð, þegar ég háði kappræður við þá Halldór Guðmundsson, Má Guðmundsson og aðra kommúnista í skólum landsins, lokið ræðum mínum á vísuorðum ungverska þjóðskáldsins Petöfis, sem Steingrímur Thorsteinsson þýddi:

Upp nú, lýður, land þitt verðu!

Loks þér tvíkost boðinn sérðu:

Þjóðar frelsi, þrældóms helsi.

Þú sérð muninn, kjóstu frelsi!

Þá táraðist ungverska konan, sem flúið hafði frá landi sínu tíu ára, og fór með ljóðið á ungversku. Þetta var eftirminnileg stund..."

Það er ástæða til þess að hvetja bloggara til að lesa þessa færslu Hannesar. Menn mega minnast þess hvernig hann, þá kornungur strákur gekk á hólm við kommúnistana sem í gamla daga gengu með uppbrett nef svo rigndi upp í þau, af vorkunnsemi við okkur bjálfana sem nenntum ekki að lesa Marx og Engels og kunnum ekkert í díalektik.

Hannes Hólmsteinn las allt móverkið og klumskjaftaði þá Má Guðmundsson seðlabankastjóra, þá CheGuevara kommúnista, og Svavar Gestsson rótarkomma og síðar sendiherra á einvigisfundum.Og raunar hvern þann þjóðkunnan kommúnista sem reyndi að gera sig breiðan og þeir tefldu fram. Það kom nefnilega í ljós að þeir kommar sem háværastir voru höfðu næsta lítið lesið af fræðunum og auðvitað enn minna skilið. Þeir gátu ekkert á móti stráknum Hannesi sem hafði virkilega lesið allt bullið og skítbakaði þá hvar sem hann kom.Þessu gleymi ég aldrei og er þeirrar skoðunar að fátt annað hafi bitið eins á þáverandi kommúnistaplágu eins og þessi strákur úr Kópavoginum.

Ég þakka Hannesi Hólmsteini fyrir allt gamalt og gott og megi hann lengi flytja mál svo einarðlega og rökfast sem hans er háttur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Hann ólst að mestu upp í Laugarnesinu og flutti seinna Kópavoginn.  Já, hann er klár hvað sem pólitískir andstæðingar hans segja ljótt um hann.  

Elle_, 19.8.2011 kl. 23:20

2 identicon

Burtséð frá Má má minna á að Che Guevara var frelsishetja.

Árni B. Helgason (IP-tala skráð) 20.8.2011 kl. 00:57

3 Smámynd: kallpungur

Che Guevara var engin frelsishetja. Byltingin á Kúbu færði lýðnum bara nýja og betrumbætta hlekki. Þeir sem kalla Che frelsishetju vita eingin deili á hugtakinu frelsi. Che má kalla byltingar hetju en frelsishetja var hann ekki. Byltingin á Kúbu var einungis tilfærsla á engum en engin frelsun. Í stað hlekkja kapítalískrar harðstjórnar fengu Kúbumenn hlekki kommúnískrar harðstjórnar. Allir harðstjórar eru fiskaðir upp úr sama drullupollinum hvort sem þeir eru Kapítalískir eða Kommúnískir. Þessir Kommúnísku halda hinsvegar völdum lengur því hugmyndafræðin og stjórnkerfið eru í eðli sínu leiðin til ánauðar almúgans.

kallpungur, 20.8.2011 kl. 04:34

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Che skaut strákhnokka sem var ekki nógu þægur í liði hans.

En Hannes á vel skilið þá endurreisn sem hann fær hér hjá þér, Halldór, sannarlega marktækum manninum. Hannes var systematískt níddur af kommúnistum og sósíalistum allrahanda, þegar hann vogaði sér að fara út í þessa hugmyndabaráttu, og hefur svo verið allar götur síðan, t.d. þegar hann fekk stöðu í Háskólanum (maður með góða D.Phil.-gráðu, frá einum bezta háskóla á jarðríki) og allt til þess að hann skrifaði bækurnar um Laxness ... og raunar lengur.

Það kom ekki til af engu, að Marxistar óttuðust áhrif hans ... enda auðvelt gáfuðum manni að afhjúpa blekkingar einnar mestu helstefnu heims, ef við bætum við 20. aldar birtingarmyndunum.

Lesið Svartbók kommúnismans.

Jón Valur Jensson, 20.8.2011 kl. 06:19

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Árni B.góður,

Hvort eru menn frelsishetjur eða kaldrifjaðir morðingjar? Geta þeir verið hvorutveggja eða nægir fyrri titillinn til að sýkna menn. Var það afsakanlegt af Halldóri Kiljan Laxness að fagna aftöku Búkharíns af því að hann fékk Nóbelsverðlaun síðar og fór a sverja af sér fyrri sporgöngur?Er hann þá bara rithöfundur eins og Che bara frelsishetja?

Halldór Jónsson, 20.8.2011 kl. 08:01

6 Smámynd: Elle_

Já, Radko Mladic, yfirmaður herafla Bosníu-Serba og Radovan Karadzic, forseti Bosníu-Serba hafa líka verið kallaðir frelsishetjur af ýmsum Serbum þrátt fyrir að hafa verið efstir á lista stríðsglæpadómstólsins í Haag fyrir stríðsglæpi og þjóðernismorð og hafi nú loksins verið handteknir fyrir það sama.  Þessir 2 menn létu slátra ungum strákum, mönnum og eldri mönnum í þúsundatali 1992-1995 í Bosníu, Kosovo og Króatíu.  Orðið frelsishetja er nú ekki endilega lýsandi yfir neitt göfugt. 

Elle_, 20.8.2011 kl. 11:30

7 Smámynd: kallpungur

Samkvæmt eðli málsins er náttúrulega ekki hægt að dæma byltingar og forkólfa þeirra, með annarri aðferð en þeirri að skoða stjórnarfars breytingar sem fylgja í kjölfarið. Flest allar kommúnískar byltingar hafa haft í för með sér einhverskonar harðstjórn og geta því ekki talist frelsisbyltingar. Frelsi er alltaf takmarkað með lögum og því er alltaf best að skoða hvernig almenningur getur losað sig við þá stjórnendur sem þeim líkar ekki við hverju sinni. Lýðræði er eina stjórnarformið sem gerir almenningi kleift að skipta reglulega um valdhafa ef honum sýnist svo. Þessvegna búa til dæmis ESB og Kína ekki við lýðræðislegt stjórnarfar. Þó er stigsmunur á. 27 manna framkvæmdastjórn ESB er ekki kosin af almenningi innan sambandsins og því ekki lýðræðislega kjörin stjórn. Kína er hinsvegar klepptækt kommúnistaríki og ógnarstjórn en með kapítalísku ívafi. Á milli skilur jú himin og haf enn sem komið er, en við vitum ekkert hvert ESB stefnir annað en að frekari samruna ríkjanna. Hannes Hólmsteinn held ég að sé einn ofsóttasti fræðimaður á Íslandi á síðari tímum. Ef hann opnar munninn rekur fólk á vinstrivæng pólitíkur upp skræki og formælingar og skrifar blogg í hrúgum til að ata hann auri. Svona er komið fyrir málefnalegri pólitískri umræðu í landinu á þessum síðustu og versnandi tímum.

kallpungur, 20.8.2011 kl. 12:29

8 Smámynd: Elle_

Kosovo stríðin urðu að vísu ekki 1992-1995 eins og ég sagði að ofan, ekki fyrr 1998-1999. 

Elle_, 20.8.2011 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3417957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband