Leita í fréttum mbl.is

Jón Ólafsson Bravó!

segi ég eftir að hlusta á þennan afburða snjalla athafnamann lýsa vatnsævintýrnu sem hann er búinn að töfra fram í Þorlákshöfn. Þessi strákur, sem var kallaður Jón Bæjó í Keflavík og þótti ekki merkilegur, Jón í Skífunni seinna , Bylgjunni, Norðurljósum,Orca hópnum, maður sem átti allstaðar á brattann að sækja hjá þeim fínu og Hannesi Hólmsteini líka. Hann gerði það! Hann gerði það sem allir aðrir höfðu klikkað á. Hann seldi vatnið. Jón Ólafsson af öllum mönnum. Hann gerði það!

Það var ævintýri að hlusta á Jón svona hógværan og prúðan lýsa því að munurinn að honum og hinum væri sá að þeir feðgarnir væru sjálfir í þessu af lífi og sál. (Og ekki spillir Gulli bróðir myndi ég segja þó að Jón hafi sleppt honum.)

Þetta er ævintýri hvernig þessir gaurar hafa byggt þetta upp og hvernig þeir eru hreinlega mílum á undan öllum öðrum. Jón er stórkostlegur fyrir hugmyndaauðgi sína og þrauteigju.

Ég veit ekki einu sinni hvað fyrirtækið heitir en ég óska þeim öllum til hamingju með það sem þeir eru að gera.

Bravó Jón Ólafsson, ég tæki ofan fyrir þér ef ég ætti hatt !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Emilsson

Blessaður Halldór,  hvar get ég séð þetta viðtal við Jón um vatnið?

Björn Emilsson, 26.10.2011 kl. 03:21

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Blesaður Björn

Þetta var á Hrafnaþingi í ÍNN. Hvað er títt að westan? Er nokkuð að lagast?

Halldór Jónsson, 26.10.2011 kl. 07:39

3 Smámynd: Björn Emilsson

Sæll Halldór.  Já Jóni tókst það.  Eg reyndi við þennan vatnsbrasa í mörg ár á Grænlandi með aðstoð Vest Norræna sjóðsins og Grænlandsbanka, Carlsberg, Tetra Pak og fleirum.  Heimastjórnin sló verkefnið ÍLULIAQ´útaf borðinu, þar sem engin hæfa væri að gera einn auman islending að ríkasta manni Grænlands. Reyndi svo fyrir mér á Islandi í boði Halldórs Ásgrímssonar ráðherra. Eg fékk engan skilning á Islandi. Þeim var alveg nóg boðið í Byggðarstofnun, þegar ég sagði þeim að við myndum gefa vatnið til fátækra í Austur Evrópu og Afríku.  Náði þó að senda 2 gama  til eins stærsta heildsölufyrirtækis í Texas USA.  Jú þeir vildu gera viðskipti.. en urðu forviða þegar islendingarnir sögðust jú geta það,  verðið þyrfti bara að hækka um 25 cent á flösku, vatnið yrði afgreitt úr vöruhúsi í NY.  Þeir buðust meir að segja að skaffa þeim flutning til Texas. Texas búum er ekkert fyrir það gefið að láta segja sér fyrir verkum.  Þeir ætluðu sjálfir að lesta vatnið á Keflavíkurflugvelli í flutningavélar Bandaríkjahers  á leið til Persaflóa.  Svo átti grískt skipafélag að lesta gama í Hafnarfirði.!!

Jú hér er í WA allt á fullu. Verið að vinna úr 2Bio dollara fjárlagahalla, með vega og brúargerð og nýjum járnbrautum og strætisvagnasamgöngum.  Þá er Boeing á fullu og hefur ekkert undan.  Semsagt gott. Aðalmálið þessa stundina er þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort leyfa skuli afengissölu á sterku áfengi í verslunum. Ríkið rekur þessa ´sprutt´ sölu nú.

Bestu kveðjur heim

Bjorn

Björn Emilsson, 26.10.2011 kl. 15:37

4 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

 Sæll Halldór,

Viðskiptablað Morgunblaðsins gleypti flugu Jóns í maí að JP Morgan og Anheuser Bush eigi hlut í félagi Jóns. Í júní er komið að Viðskiptablaðinu sjálfu að endurbirta frétt um að Suður-Afrísk fyrirtækjasamsteypa hafi keypt sig inn í veldi Jóns.

Fyrst er það trúgirni fjölmiðla sem skapar Jóni ímynd að vera um það bil að leggja heiminn að fótum sér. Þar á eftir eru það litlu sætu snillingarnir í íslensku fjármálafyrirtækjum sem ausa peningum í excel-skjöl Jóns og fréttaúrklippur.

Málið endar fyrir dómstólum þegar bankarnir fatta um seinan það sem hvert fimm ára barn veit, að sitt er hvað ímynd og veruleiki.

Páll Vilhjálmsson, 26.10.2011 kl. 22:39

5 Smámynd: Halldór Jónsson

heyrðu Páll, er ekki verið að senda út marga gáma á viku vestur um haf? Ekki er þetta uppspuni með Anheuser? Af hverju hringirðu ekki í Gulla bróður Jóns sem er þarna á kafi. Hann mun áreiðanlega segja þer satt um hvað er að fara úr verksmiðjunni. Ekki getur það verð ímyndun?

Halldór Jónsson, 26.10.2011 kl. 23:24

6 Smámynd: Björn Emilsson

Hvað sem öllu líður, þá er Icelandic Glacial vatnið frá Jóni í öllum stærri verslunum hér á Seattle svæðinu. Flaskan kostar í dag $1.99, sem er sama verð og fyrir Perier vatn fra Frakklandi. Finna má fleiri islensk vörumerki í verslunum.

Björn Emilsson, 27.10.2011 kl. 07:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband