Leita í fréttum mbl.is

Bankaleynd aflétt!

virðist manni ef maður les grein hagfræðinganna Ólafs Arnarsonar, Gunnars Yómassonar og Michael Hudsons á Pressunni.Engar aðrar skýringar hafa komið frá stjórnvöldum sem fólk hefur þó kallað eftir.

Hagfræðingarnir lýsa bankakerfinu svona:

"Íslensk stjórnvöld tóku yfir gömlu, föllnu bankana í hruninu í lok september og byrjun október 2008. Í þeirra stað voru reistir nýir bankar. Upphaflegir lánveitendur gömlu bankanna losuðu sig við skuldabréf þeirra fyrir brot af nafnverði. Kaupendurnir voru hrægammasjóðir. Þessir nýju eigendur skuldabréfanna urðu eigendur gömlu bankanna, þar sem hluthafar töpuðu öllu sínu hlutafé. Fjármálaeftirlitið skipaði skilanefndir til að stjórna gömlu bönkunum. Þrír nýir bankar voru settir á laggirnar og allar innistæður, íbúðalán og önnur neytendalán voru flutt yfir í þessa nýju – heilbrigðu – banka á miklum afslætti.

Eigendum gömlu bankanna voru afhent yfirráð yfir tveimur af nýju bönkunum (87% í Arion banka og 95% í Íslandsbanka). Þessir eigendur nýju bankanna eru ekki kallaðir hrægammar vegna þess hve eignir voru fluttar á miklum afslætti úr gömlu bönkunum heldur vegna þess að að þeir höfðu náð yfirráðum í gömlu bönkunum með því að kaupa skuldabréfin í þeim á broti af nafnvirði þeirra..."

Þetta er skilmerkilega stílað. Þarna er hún þá komin "Skjaldborgin um heimilin" Þarna hljóta allir að sjá hvert er raunverulegt innræti ríkisstjórnarinnar.

Hver gaf Steingrími J leyfi til að afhenda eignir ríkisins, nýju bankana með þessum hætti? Hvað segja heimilisfeðurnir sem eiga svefnlausar nætur vegna komandi uppboða?

Er ekki ástæða til þess að spyrja sig hvort Landsbankinn sé ekki betur kominn sem ríkisbanki til næstu framtíðar?(Að hugsa sér að maður sé farinn að tala fyrir ríkisvæðingu) Getur almenningur verið varnarlaus í landi sem svona kirfilega hefur útvistað bankakerfi sínu? Þarf ekki almenningur að geta valið milli þessara útlendu banka og tveggja íslenskra bankastofnana, Landsbankans og MP-banka.Geta þá beint viðskiptum sínum frá þessum erlendu bönkum sem vofa yfir heimilum landsmanna eins og þeir Arion- og Íslandsbankar gera? Nema þeir snúi af villu síns vegar og sýni af sér einhverja samúð með vonlausum skuldurunum eins og Pressuhöfundarnir lýsa sem nauðsyn.

Þá virðist liggja fyrir svarið við spurningunni um bankaleyndina hjá ríkisstjórninni.Nú mega allir skilja hversvegna Steingrímur hefur svarað út og suður aðspurður um bankaleyndina.Á hann ekki erindi fyrir Landsdóm eftir þessa gerð?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Það er ekki hægt að treysta neinum af stóru bönkunum, og ekki bönkum yfirleitt. Það er sama hvernig maður reynir að finna einhverja smugu til þess að treysta þeim, þeir eru hreinlega ekki traustsins verðir. Þeir hafa ekkert gert fyrir svikinn almenning, heldur einungis hlúð að sínum gæluverkefnum innan sinnar klíku.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.10.2011 kl. 09:54

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Allt stjórnkerfi og bankar þessa lands er þvímiður gegnrotið !

engum hægt að treystA ! ENDA ER EINS OG ÞESSI KERFI SEU RÆKILEGA FLÆKT SAMAN- EINS OG BANDHNYKILL SEM KÖTTUR HEFUR KOMIST i !

Erla Magna Alexandersdóttir, 28.10.2011 kl. 17:06

3 Smámynd: Elle_

Jóhanna og Steingrímur svara engu nema út og suður, Halldór.  Hlýtur að vera viljandi svo við skiljum þau sem verst. 

Já, hver gaf Steingrími leyfi??  Og samkvæmt hvaða lögum?????  Fyrir Landsdóm eða Sakadóm með Jóhönnu og hann. 

Elle_, 28.10.2011 kl. 23:11

4 Smámynd: Elle_

Og já, ríkið ætti að reka bankana að mínum dómi.  Kanabankar eru allir ríkisvæddir, voru það allavega síðast þegar ég vissi og ekki fór allt á hvolf þar á meðan bankar heimsins féllu. 

Elle_, 28.10.2011 kl. 23:17

5 Smámynd: Elle_

Ætlaði að skrifa: Kanadabankar eru allir ríkisvæddir - - -

Elle_, 28.10.2011 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418209

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband