Leita í fréttum mbl.is

Hvor er köttur?

Jón Bjarnason eða Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna sem gagnrýnir vinnubrögð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í tengslum við drög að nýju kvótafrumvarpi.

Aðspurður um stöðu Jóns sem ráðherra svarar Björn Valur: „Þetta er eins og með vinnubrögðin, hans staða hlýtur að vera jafn vond.“ Við það bætir Björn. „Það hlýtur að vera erfitt að vera í þeirri stöðu að vera að vinna framhjá sínum eigin þingflokki og þingmönnum. Hann rétt eins og er gegnir trúnaðarstörfum í umboði þingflokksins.“

Er Jón Bjarnason orðinn að lús milli tveggja nagla? Lítið kattarlegur ef svo er? Eða er ann bara köttur á heitu blikkþaki? Skyldi þá Björn Valur vera orðinn uppáhaldskisan hennar Jóhönnu? Breima köttur með níu líf eins og Jóhanna lýsir stjórninni sinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

HVOR ER KÖTTUR???????????????????????????  HA, HA, HA - - - - -

Elle_, 27.11.2011 kl. 19:00

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þingmenn er eins og kettir ekki bundnir við neitt nema eigin samvisku.  Hundar eru nytsamlegir þeim má siga á sauðina. Það er hægt að einfalda hlutina hér og sleppa öllum hundum á þingi, ef ekki starfar nema einn heili á hverju kjörtímabili þá er óþarfi að skattleggja sauðina fyrir öllu þessu heilalausu hundingjum.


Raunvirði heildar sölu neyslu vöru og þjónustu á hverju skattári er jafngilt heildar kaupum neytenda og hins opinbera.

Skilgreint sem GDP(PPP) þar sem PPP stendur fyrir Purchase Power Parity: Kaup Vald jafngildi [CRED <=> DEB]

Raunvirði PPP er mælt að Alþjóða gengismarkaðinum : Worldbank, IMF og Tölfræði skrifstofu USA.  Notað til verðtrygginga milli ríkja í Alþjóðasamfélaginu.


Ef raunvirði allra seldra vöruvelta á Íslandi  [og þá með talið FOB til neytenda annarra Ríkja] reiknast 100 alþjóða raunvirðis einingar  og Ísland gefur upp að þær hafi selst fyrir  1650 milljarða í krónu eða evrum en sömu raunvirði einingar seljast fyrir 12,5 milljarða dollara þá er meðal árs gengi krónu eða evru á Íslandi það árið: 1650/12,5=  132 kr(evrur)/ dollar.


Síðan 1991 metur USA raunvirði OER = PPP . OER er kallað hér landframleiðsala og breytingar á því Hagvöxtur. Mánaðarlegar nálganir  hér byggja á heildar neysluvístölu, en innan evrur ríkja er miðað við HCIP: samræmt neytenda raunvirðismat neytenda á evru mörkuðum.  [kaup annan flokk sem væri 1 verðflokkur t.d. í USA]

Menn verða læra betur skilgreiningar á Aljóðlegum fjármála hugtökum á Íslandi.

Hvert Ríki setur upp með sitt eigið heima gengi til eilífðar óháð þeim myntum sem notaðar eru á heima markaði.

Arðbærast að mínu mati er að taka leggja niður heildar neyslu vísitölu og fylgja CIP USA og þá þannig ókeypis mælikvarða til vaxtabreytinga, Not PPP frá Alþjóða gengismarkaðinum og sleppa þá bera saman OER milli ára þetta spar líka mikinn opinberan stjórnsýslu kostnað, laðar að erlenda fjárfesta og lækkar skatta á Íslenskum neytendum. 

IMF fór fullviss um að Ríkisstjórnin hér myndi greiða niður skuldir við baklands ríki IMF, IMF ber enga ábyrgð á útfærslu heimstjórnar hvað varða óvirkan neytenda fjölda. Þeir eru búnir að frýja sig allri ábyrgð. Langtíma veðsöfn hér eru rusl, það skýrir að reiknað er með að 2016 hafa þjóðar tekjur Íra hækkað um 1,0% yfir þjóðartekjur Íslands á ríkisborgara. Hér keppast hálfvitar að selja allt sem selja má til að tryggja EU dollara og viðhald betra skammtíma endurfjármögnunar lánshæfis mati [secondary market].  Þetta gera aðilar sem hafa ekki vita á sínum eigin rekstri og munu í framhaldi skerða sínar eigin rakstrar tekjur til ráðstöfunar smátt og smátt til lengri tíma litið, núverandi erlendir fjárfestar láta Íslandi ekki fara á hausinn með þeir græða á því að það rúlli.  

Júlíus Björnsson, 27.11.2011 kl. 20:39

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Örlaganornin Jóhanna segir að kötturinn Jógríma hafi níu líf og þar með sjáum við landar okkar sæng útbreidda. 

Gangi henni alt í haginn þá verður hún búin að smíða álíka vef og Pútin og verður þar með krómuð og bónuð öldum saman.   

Hrólfur Þ Hraundal, 27.11.2011 kl. 22:23

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Björn er valur en Jón er geithafur.

 (sjá nánari skýringar á bloggfærslu minni)

Sigurður Þórðarson, 27.11.2011 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418132

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband