Leita í fréttum mbl.is

Nafn á ríkissstjórnina?

finnst mér vanta. Hér voru áður  Nýsköpunarstjórnin, Stefanía, vinstristjórn Hermanns, Emilía, Viðreisnarstjórnin, Leiftursóknin,  Viðeyjarstjórnin. Einhverjar sem ég gleymi? Hét einhver Ólafía? 

 En hvað heitir núverandi stjórn? Ráðleysisstjórnin fyndist mér koma til greina. Eða þá Kattastjórnin eftir eina brandaranum sem Jóhanna hefur mér vitanlega sagt um dagana?  Steingrímur hefur aldrei sagt brandara viljandi að því ég best veit.

Hvernig væri að koma með nafn á þessa ríkisstjórn áður hún geispar golunni? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Halldór fornvinur, æfinlega !

Mætti ég; gauka hér að, nafngiftinni : Óráðssíu & Ódöngunar óstjórnin, Halldór verkfræðingur ?

Svo; ég komi því að, sem mér, datt einna fyrst, í hug, að svo komnu ?

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.2.2012 kl. 22:02

2 Smámynd: Elle_

Ekki verðum við að bíða mikið lengur eftir golunni þeirra, eða hvað?  Nógu lengi samt.  Kattastjórnin væri fínt nafn, líka lögbrjótastjórnin.  Og allt hitt sem þið nefnduð, Halldór og Óskar Helgi.

Elle_, 18.2.2012 kl. 01:06

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ef hér væri einhver stjórn á hlutum væri rétta nafnið löngu komið fram.
Hinvegar er greinilegt að í sumum ríkjum er byggt á hernaðarlegu regluverki og hæfri stjórnsýslu sem vinnur í baklandi götunnar, sem sendir inn í hverjum kosningum lið sem er drepast úr löngun til til að komast í sjóði almennings og þess vegna til valda og áhrifa. Þetta hæfa stjórnsýslulið tengist grunnmótum og síukerfi [til sía frá óþolinmóða, og meðalgreinda og veiklundaða einstaklinga sem eiga erfitt með að setja sig inn í það sem þeim persónulega finnst leiðnlegt]  í þeim ríkjum sem teljast meiriháttar, segja meiriháttar fulltrúar vart eitt orð í Alþjóaðstofnum eða á opinberum vetfangi án þess að allur heimurinn læri það utan að.  Ísland hefur síðan sögur hófust , komist í fréttirnar vegna stökkbreyttra Íslendinga sem skáru sig úr meðal Íslendinga, svo í vaxandi mæli síðustu ára tugi vegna furðulegra stjórnarhátta og sérfræðikenninga um hvað er best í efnahags og fjármálum á hverjum tíma.  Það sem er best, er til dæmis ekki spurning um sérfræði menntun heldur að byggja á reynslu hinna greindustu á hverjum tíma, og þurfa ekki sjálfur að endurtaka sömu mistökin sem kynslóðir hafa gengið í gengum áður.

Júlíus Björnsson, 18.2.2012 kl. 02:09

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

"Velferðarstjórnin"!

Þú verður bara að læra að sætta þig við það "verðSKULDAÐA"  nafn Halldór....!

Ómar Bjarki Smárason, 18.2.2012 kl. 02:23

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Læðupokastjórnin vísar í kven-ketti og laumuspil.

Helga Kristjánsdóttir, 18.2.2012 kl. 02:30

6 Smámynd: Gústaf Níelsson

Síbrotastjórnin, Halldór. Þú hefur sjálfur fundið réttnefnið.

Gústaf Níelsson, 18.2.2012 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418135

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband