Leita í fréttum mbl.is

Mörgu logið um Bandaríkin

Á Íslandi. Hér á að vera allt í einhverri nýfrjálshyggju sem leiðir fólk í glæpi og vændi af því að ríkið gerir ekkert fyrir þegnana.

Ég hef spurnir af einstæðri móður sem verður að vera mikið heima vegna veiks barns á fyrsta ári. Hún trúir ekki á brjóstagjöf og auðvitað þykist ég vita að það sé hugsanleg orsök fyrir veikindum barnsins. En vinnuveitandinn hefur lýst mér hversu vel sé gert við hana og barnið af opinberri hálfu og sýnist mér að það sé ekki svo mikið öðruvísi en við þekkjum.

Þessi unga móðir þarf hinsvegar að keyra barnið á leikskólann og sjálfa sig í vinnuna. Hér eru ekki tollar af bílum og verðlag á bílum er verðið heima deilt með pí. Bensínið er hérna undir einum dollara á lítra. Steingrímur J. segir okkur að bensínverðið hjá honum sé með því lægsta sem þekkist í Evrópu. Meira en tveir dollarar lítrinn og meira en helmingurinn beinn skattur til ríkisins.. Þetta er sönnun þess að hann og VG bera einstæðar mæður fyrir brjósti og þarfir þeirra. Og RÚV birtir þessi ummæli hans athugasemdalaust.
Verð á íbúðum hér í Florida er svona íslenskt verð pr. M2 deilt með pí. Auðvitað ekki neinn lúxus en íbúðir samt. Flest vara og lífsnauðsynjar kosta líka íslenskt verð deilt með pí. Ríkið gefur fátæklingum mat hérna. Fólk sveltur hér ekki.Fólkið er stolt af því að vera Bandaríkjamenn og sýna fánanum virðingu þó hann megi blakta við hún á nóttunni ef ljósker er í nánd. Fáninn er í flestum skólastofum og nemendur er kennd saga Bandaríkjanna án þess að neinn skammist sín fyrir.

Bandaríkin er stór.Miklu stærri en við. Megaþjóð með megavandamál.Heimska stjórnmálamenn í bland eins og við. Líka góða. Þar býr fólk eins og við. Ég kem ekki auga á það að það sé svo mikið frábrugðið okkur af því að okkur er innrætt að við séum Evrópumenn sem eigi heima þar. Flestöll okkar tækni er þó héðan komin. Og það er jafnstór íslensk þjóð hér vestan hafs og býr á Íslandi án þess að telja útlendingana þar með. Af hverju erum við þá endilega Evrópumenn sem eigum að ganga í Evrópusambandið?

Af hverju er bara ein skoðun rétt á Íslandi? Af hverju látum við ljúga að okkur á hverjum degi?

Af hverju er svona miklu logið opinberlega á Íslandi um Bandaríkin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU hefur allt verið í nöp við allt sem kallast "fair trait"  "same real wirth PPP world wide". Glæpir og óeðli eru fylgifiskar allra stórborga frá upphafi, þegar talað eru USA frá austri opinberlaga er það alltaf með því að vekja athygli á því sem miður fer án þess að horfa í eigin barm. EU er morandi í skipulagðri glæpastarfsemi, mannsali, eiturlyfjum, rasisma og mismunun,stéttskipting miklu meir en í USA enda er EU með stjórnaskrá með það langtíma markmið að hreinsa til í EU ríkjum.  

Júlíus Björnsson, 1.3.2012 kl. 20:15

2 Smámynd: Elle_

Ji, þarna hittirðu mig í hjartastað, Halldór.  Hve oft eg hef sagt það við fólk hve mikið er logið um Bandaríkin og Bandaríkjamenn á Íslandi hef eg misst tölu.  Ríkið nefnilega hugsar um börn þar og einstæð foreldri og það veit eg VEL. 

RUV-Spegillinn hefur logið og logið og logið alltof lengi og komist upp með það.  Og svo eru það Steingrímur og Össur + + + + +  Skömm að þessu og tími til að stoppa.  Ætli það sé ekki bara haturspólitík, Halldór?  Ætli það sé kannski líka öfund. 

Elle_, 2.3.2012 kl. 00:34

3 Smámynd: Elle_

Verð að bæta við einum mest lygaþursanum við: Jón Hannibalssyni sem skirrist ekki við lygasögurnar um Bandaríkin.  Meðan hann er ekki að ljúga um Brusseldýrðina og ICESAVE.  Það sem eg skil ekki er hví hann fær óhindraður að skálda upp lygasögur í RUV.    

Elle_, 2.3.2012 kl. 00:42

4 Smámynd: Elle_

- - - einum mesta lygaþursanum - - - Jóni Hannibalssyni - -

Elle_, 2.3.2012 kl. 00:44

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í viðskiptasamhengi er best að treysta USA í viðskiptum minnst um vörusvik.  1970 var tekin upp alþjóðlegur samburðar raunvirði mælikvarð sem mælir síðan meðal söluverð allar raunvirðisþátta yfir alla heiminn. Kaffi sama tegund getur verið í mörgum gæða flokkum, líka timbur. Þess vegna til geta opnað fyrir frjáls viðskipti á öllu verðu að vera samræmd vigt yfir allan heiminn.  USA fylgir þessar vigt PPP. Sannleikur sem margar stjórnsýslur vilja ekki tala um. Stjórnsýslur er mismunandi heiðarlegar í viðskiptum. Skrítið en hagfræðingar virðast flest vera með sosíal demo forrit í heilanum. Skilja ekki "fair trait".

Júlíus Björnsson, 2.3.2012 kl. 03:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband