Leita í fréttum mbl.is

Egill tekinn í tíma

í Silfrinu í dag. Í fyrsta sinn í langan tíma kallar hann ekki á náhirđina sína til ađ taka undir skođanir sínar heldur sest augliti til auglitis viđ Bjarna Beeditsson formann Sjálfstćđisflokksins.

Spurningar Egils voru ađ ţessu sinni fremur hógvćrar og stuttar og hreint ekki alvitlausar. Bjarni svarađi öllu skilmerkilega af yfirvegun og öryggi. Augsýnilegt ađ Agli líkađi ekki allskostar ađ geta ekki ruglađ hann eđa mótmćlt, setti í fátinu upp gleraugu svört og mikil og leit ţá út eins eins og Björnebanden í Andrésblöđinum. En allt kom fyrir ekki. Bjarni svarađi öllu kristaltćrt og fór hvergi undan í flćmingi. Miklu fremur skýrđi hann fyrir okkur hvađ ţađ er sem okkur skortir meira en gjaldmiđlaumrćđu eđa stjórnarskrárbreytingar og málskotsrétt Forsetans.

Eftir ţví sem leiđ á samtaliđ kom ć frekar í ljós hversu mikiđ haf og himinn er á mlli árangurs rískistjórnarinnar og raunveruleikans sem viđ blasir. Ţjóđin er ekki samstíga neinu af ţeim stórmálum sem ţessi ríkisstjórn er ađ reyna ađ rubba af í dauđateygjunum á vorţinginu eins og sjávarútvegsmálunum og evrópumálunum. Bjarni sagđi einlćglega ađ ţetta vćru svo stór mál ađ viđ yrđum ađ leysa ţau í breiđari samstöđu en nú viđ blasir međ klofna ţjóđ í afstöđunni. Bjarni minnti á í gjaldmiđlaumrćđunni ađ Íslendingar hefđu byggt upp eitt mesta velferđarţjóđfélag á byggđu bóli međ íslensku krónunnni međan önnur lönd gćtu ekki hrósađ sigri međ erlenda gjaldmiđla eins og Grikkland og Spánn. En ekkert vćri óhugsandi.

Bjarni Benediktsson hefur ţađ sem til ţarf ađ vera trúverđugur og heiđarlegur stjórnmálamađur. Ţađ eru hinsvegar margir sem sjá í honum ógn viđ sjálfa sig og beita ţví rógi og upphrópunum fremur en rökum á móti honum. Hann á ţví í vafningum ađ verjast sem draga brennidepilinn frá málefnunum sem eru auđvitađ ţađ eina sem skipta máli.

Egill Helgason var ađ ţessu sinni tekinn í tíma um alvöru lífsins hjá íslensku ţjóđinni. Vonandi lćrđi hann eitthvađ.

Manuel Hinds var vissulega góđur og rökfastur ţegar Egill náđi vopnum sínu og tók hann í venjulegan tíma hjá sér í ţví sem hann ber mest fyrir brjósti. Ađ skapa vantrú međal Íslendinga á mátt sinn og megin og rakka niđur allt sem ţó hefur áunnist.

Ţađ ţarf ađ taka Egil einhverntímann í tíma um eitt og annađ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţorsteinsson

Afar hressilegt ađ lesa pistil eins og ţinn í morgunsáriđ, ţar sem talađ er hreint út. Ekkert mođ eđa hekl.

Sigurđur Ţorsteinsson, 30.4.2012 kl. 08:52

2 Smámynd: Elle_

Minni á ađ Bjarni Ben stóđ sig alls ekki í ICESAVE3.  Hann vill líka ekki ađ forsetinn hafi vald til ađ synja lögum undirskriftar og vísa til ţjóđarinnar og sagđi ţađ sjálfur í miđju ICESAVE málinu.  Hvar vćrum viđ nú ef forsetinn hefđi ekki vísađ ICESAVE til ţjóđarinnar?  Í gjaldţroti? 

Elle_, 30.4.2012 kl. 11:28

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Ziggi góđ orđ.

Já Elle mín E. Ég man eitthvađ af ţessu sjálfur og áreiđanlega Bjarni Ben líka. En ég var ađ tala um ákveđiđ tilvik og vildi spyrja ţig hvort ţér hefđi ekki orđiđ ljóst um hvađ Bkarni var ađ tala ţarna?

Ég var ekki sáttur viđ ţingflokkinn minn í Icesave og ískalda matiđ og greiddi atkvćđi eins og ţú. Ég vona ađ Bjarni og fleiri hafi eitthvađ lćrt á ţví máli.

Bjarni á margar góđar hliđar til ţó ég hafi ekki veriđ honum sammála í ýmsum greinum. Hann er vaxandi mnađur og međ árunum kemur oft meiri yfirvegun í fas manna.

Hann hefur veriđ dálitíđ fljótfćr finnst mér helst. En ég styđ hann sem formann minn ţangađ til ég verđ sannfćrđur um eitthvađ annađ. Ég studdi hann á móti Hönnu Birnu bara svo ţú vitir ţađ og líka á móti Kristjáni Ţór. En ég viđurkenni alveg ađ ţá var ég í meiri efa en í seinna skiptiđ ţví Kristján Ţór er afburđamađur.

Halldór Jónsson, 30.4.2012 kl. 11:50

4 Smámynd: Elle_

Já Halldór, satt ađ menn verđi yfirvegađri međ aldri og ţroska, allavega oftast, ćttu ađ verđa ţađ undir eđlilegum og venjulegum kringumstćđum.   Samt furđar mađur sig nú oft á hvađa ţroski og yfirvegun ráđi óstjórninni - - - 

Og líka er ég sammála um Kristján Ţór.  Hinsvegar hlustađi ég ekki á Bjarna Ben ţarna, enda löngu hćtt ađ geta ţolađ ţáttinn vegna óhóflegrar Brussel slagsíđu.  Í OKKAR RUV.

Elle_, 30.4.2012 kl. 12:13

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Brjóttu nú odd af oflćti ţínu Elle mín E og horfđu á fyrsta hlutann í ţessu Silfri. Sgeđu mér svo hvađ ţér finnst.

Halldór Jónsson, 30.4.2012 kl. 13:05

6 Smámynd: Elle_

Lofa engu, Halldór.

Elle_, 30.4.2012 kl. 15:03

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband