Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur J. afhjúpaður

í þætti heimastjórnarinnar á ÍNN í kvöld.

Þar lýsti Guðmundur Franklín því í smáatriðum hvað Steingrímur J. Sigfússon nákvæmlega gerði heimilunum í landinu þegar hann prívat of persónulega gaf útlendum vogunarsjóðum og öðrum reyfurum, sem vel geta verið íslenskir Tortólagæjar, Íslandsbanka og Aríon banka. Kröfurnar á íslensk heimili voru seldar á 2 cent á dollarann, svo 3 cent til meðal annars Burlington Investments sem er frontur fyrir útlenda fjárglæframenn, sem eins geta verið gamlir útrásarvíkingar. Núna hafa þessar kröfur tífaldast í gangverði vegna þess hve bankarnir eru duglegir að innheimta og bjóða upp íslenskar eignir fyrirtækja og heimila.Burlington er búið að græða stjarnfræðilegar upphæðir á heimsku Steingríms og auðvitað borga íslensk heimili og fyrirtæki brúsann. Skandalar Steingríms með SpKef,Sjóva, VBS, Saga Capital eru smáaurar miðað við þetta.

Þessir bankar eru núna að rukka íslensk heimili af fullum þunga, dollar fyrir dollar með fullum vöxtum. Þessi Steingrímur sem laug sig inná kjósendur með því að hann ætlaði að standa vörð um hagsmuni heimilana og standa vörð um að Íslendingar yrðu ekki prakkaðir inn í Evrópusambandið, hvann stendur uppi afhjúpaðu sem mesti fjármálaafglapi og óhappamaður sem nokkru sinni hefur inn í íslensk stjórnmál komið.

Þegar Steingrímur gaf þessa banka frá þjóðinni í botnlausri heimsku sinni, þá fór hann endanlega með möguleika Alþingis að geta nokkuð gert,hvorki nú né síðar, til að létta undir með íslenskum skuldsettum heimilum. Aríon og Íslandsbanki eru í eigu samviskulausra reyfara sem ætla að sjúga hvern eyri sem þeir geta útúr skuldunautum sínum með stökkbreyttu lánin í þessum bönkum.

Hvernig getur nokkur sannur Íslendingur átt viðskipti við þessa banka í þessu eignarhaldi? Hvaða sjálfsvirðingu hefur þessi þjóð? Hvað ætlar íslenskur kjósandi að gera þegar Steingrímur kemur með nýtt lygaprógram í næstu kosningum?

Steingrímur J. Sigfússon hefur verið afhjúpaður sem mesti fjármálavitleysingur þessarar aldar og líklega hinnar líka. Að kjósa hann er álíka og að trúa glansauglýsingum Aríon og Íslandsbanka sem segjast vera vinir þínir til þjónustu reiðubúnir. Því fólki verður ekki bjargað.

Guðmundur Franklín á þakkir skildar fyrir að vekja athygli á þessum hrikalegu staðreyndum. Hann er í framboði með nýjan stjórnmálaflokk, hægri græna.Mér finnst maðurinn allrar athygli verður í samnburði við kúlulánafólk og heilu afskriftagengin sem nú ætla að frelsa lýðinn á framboðslistum gömlu flokkanna. Því miður eiga litlir flokkar erfitt uppdráttar vegna taumlausrar valdafrekju þess liðs sem safnast í kringum upphafsmennina, sem oft eru góðir og gegnir menn. Því miður er reynslan óljúgfóðust um þetta. Guðmundi Franklin hefði verið tekið með opnum örmum í alvöru flokkum og hans kraftar hefðu nýst þar betur. Hann getur enn komið á óvart og komist til áhrifa í íslenskum stjórnmálum. Ég hefði kosið að hann hefði farið aðrar leiðir og skilvirkari.

En Steingrímur stendur núna uppi afhjúpaður með sannleikann á herðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Merkileg hvað fer lítið fyrir umræðunni. En vissirðu að fjármálafyrirtækjun leggja til starfsfólk við að telja upp úr kjörkössunum eftir kosningar til æðsta embættis ríkisins?

Rándýrar heilsíðuauglýsingar þóru minna mig á icesave auglýsingarnar hérna um árið og orðalagið í auglýsingum Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar um vinnu og velferð, skjaldborg um heimilin og fleira.

Í dag fór ég og kaus utankjörstaða og um leið spurði ég starfsfólkið sem tók á móti mér hvernig fyrirkomulag væri á kerfinu þegar talið væri upp úr kjörkössunum. Hvort t.d.Samfylkingin eða aðrir gætu komið völdum aðilum að við það verk og látið t.d. telja vitlaust upp úr kössunum.Svarið sem ég fékk var að fjöldi manns kæmi að talningu út um allt land þar á meðal fólk sem fjármálafyrirtækin leggðu til vegna þess að það væri svo fljótt að telja atkvæðin. Því langar mig að vita er þetta löglegt?

Er löglegt að ákveðin hópur fyrirtækja, fjármálafyrirtækja sem eru í eigu meðal annars erlendra aðila sem enginn veit hverjir eru leggi til fólk við að telja upp úr kjörkössum í kosningum til æðsta embættis Ríkisins?

Örn Ægir Reynisson, 22.6.2012 kl. 22:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Örn

ég hef verið viðstaddur margar talningar sem umboðsmaður framboðslista. Ég fullyrði að bankafólkið sem kemur er algerlega hlutlaust. Það hefur algera yfirburði yfir mig og kannski þig því það er svo þjálfað í að telja saman blöð. Það er algerlega út í hött að það hafi minnstu áhrif á útkomuna og mér sýnist það alltof lítið spennt í hvað er að gerast, það er eins og því sé gersamlega sama þótt Sjálfstæðisflokkurinn sé að tapa og meira að segja breytist það ekkert í fasi þo kommarnir tapi.

Talningin er algerlega prófessjónal og stundum er erfitt að ímynda sér að þetta fólk hafi kannski líka kosið, svo gersamlega ssviplaust er það og yrðir e kki á okkur flokkssnatana sem megum vera viðstaddir. Það bara bukar og telur í bunkana. Kjörstjórnin sem er skipuð valinkunnum borgurum úr öllum flokkum telur svo bara bunkana þar sem 100 atkvæði eru í hverjum heilum bunka og fer svo yfir vafaatkvæðin. Getur ekki klikkað get ég sagt þér af reynslunni.

Halldór Jónsson, 23.6.2012 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418190

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband