Leita í fréttum mbl.is

Nei !

skulum við segja við hinni svívirðilegu aðför að stjórnarskrá lýsðveldisins Íslands sem feður okkar og mæður samþykktu með 95 % atkvæða árið 1944.

Þessi atlaga sýnist mér helst gerð undir þeim formerkjum að ekki sé hægt að afsala fullveldinu til Brussel eftir núverandi stjórnarskrá á nægilega hraðvirkan hátt.

Mér geðjast ekki að þessum aðförum. Að taka upp algerlega nýja stjórnarskrá í bulandi ágreiningi við stóran hluta þjóðarinnar.

Helgi Ólafsson varaformaður SUS orðar ástæðurnar fyrir því að hann ætli að segja nei á morgun þannig í grein þann 16. október s.l.:

" Nei við 1. spurningunni er ekki já við óbreyttri stjórnarskrá.

Það að segja nei við því að stuðst verði við þessar tillögur við ritun nýrrar stjórnarskrár þýðir ekki að sagt sé já við óbreyttri stjórnarskrá.

Stjórnarskránni hefur verið breytt og henni mun verða breytt.

Það að segja nei við því að leggja þessar tillögur til grundvallar að nýrri stjórnarskrá er að segja nei við því að breyta stjórnarskránni í bullandi ágreiningi.

Það er að segja nei við því að snúa frá því vinnulagi að gera ekki breytingar á stjórnarskránni án víðtækrar samstöðu.

Það er að segja nei við því að kasta lýðveldisstjórnarskránni, sem samþykkt var með 95% greiddra atkvæða í kosningu sem 98% atkvæðisbærra manna tóku þátt í, fyrir róða.

Það er að segja nei við því að setja það vald, að skrifa nýja stjórnarskrá frá grunni, í hendur fámenns og einsleits hóps manna með, í besta falli, takmarkað umboð.

Það er að segja nei við því að eyða tíma og orku Alþingis í átök um stjórnarskrána meðan mörg önnur mun meira aðkallandi mál bíða.

Það að segja nei við fyrstu spurningunni er ekki merki um áhuga- eða skilningsleysi. Það þýðir ekki að einhverjum sé sama um mannréttindi. Það er ekki það sama og að samþykkja hvern staf í núgildandi stjórnarskrá og það er ekki það sama og að segjast aldrei vilja sjá nokkru breytt í stjórnarskránni.

Ég ætla að mæta á kjörstað 20. október og hvet alla til að gera slíkt hið sama. Ég mun mæta og svara öllum sex spurningunum neitandi."

Mér finnst Helgi hafa sagt allt sem þarf að segja um þetta mál.

Mætum á morgun og segjum nei við fyrstu spurningunni. Ég óttast að höfundar reyni að snúa útúr atkvæðagreiðslunni á þann veg, að hafi maður greitt atkvæði um afganginn af spurningunum, þá vilji maður að frumvarpið sé rætt og hafi því sagt einskonar já.

Því þori ég sjálfur ekki annað en segja aðeins nei við hinni fyrstu og láta hinar eiga sig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Sammála þér Halldór NEI við fyrstu spurningu og láta hinar eiga sig.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 19.10.2012 kl. 17:30

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Getur verið að Samfylkingin hafi viljað koma sök á hruninu yfir á stjórnarskránna? Satt að segja veit ég ekki hverju hún á að breyta?  Stærri nýmæli þykir mér vera margt mjög ágætt nýtt fólk sem gefur kost á sér til stjórnmálastarfa m.a. fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suður- og SV kjördæmi.  Það verður spennandi að fylgjast með þessu fólki þ.m.t. dóttur þinni í framtíðinni.  Hingað til hefur bakgrunnur á Alþingi, fjölmiðlun og spurningakeppnum vegið þungt en kannski breytist það núna?

Sigurður Þórðarson, 19.10.2012 kl. 17:44

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Marteinn, ég held að við sem viljum halda í fullveldið getum ekki annað. Ég tel öruggara að gefa þessu liði ekki tækifæri á að snúa útúr kosningunni.

Sæll félagi Sigurður. Takk fyrir góðar óskir til dótturinnar. Hún er alveg í þessu sjálf og gamli hefur takmörkuð áhrif. SV er góður prófsteinn. Þar eru sjónvarpsstjörnur þau Vilhjálmur og Elín Hirst. Vilhjálmur er líka kunnur fyrir aðra starfsemi líka og hún vigtar áreiðanlega fyrir hann þannig að við getum spáð í spilin. Svei mér þá, ég veit ekki fyrir hverju þessi kjósandi tikkar.

Halldór Jónsson, 19.10.2012 kl. 17:57

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mér líst líka vel á marga eldri nýliða t.a.m siðapostulana Halldór í Holti og Geir Jón Þórisson og reynsluboltana úr atvinnulífinu Kjartan og Ragnar. En alþingi á heldur ekki að verða öldrunarstofnun þess vegna verður unga fólkið að fá sitt pláss

Sigurður Þórðarson, 19.10.2012 kl. 18:11

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Fulltrúar allra flokka á Alþingi fyrir lýðveldisstofnunina 1944 lýstu því yfir að lýðveldisstjórnarskráin væri til bráðabirgða og að ný stjórnarskrá yrði samin eftir að um hægðist. Forseti Íslands brýndi í nýársávarpi sínu 1949 landsfeðurnar til að standa við þetta loforð.

Sem sagt: Landsfeðurnir allir gerðu "svívirðuleg aðför að stjórnarskránni"?

Og allar stjórnarskrárnefndirnar eftir þetta, sem áttu að ljúka þessu verki, - gerðu þær "svívirðilega aðför að stjórnarskránni"?

Ómar Ragnarsson, 19.10.2012 kl. 20:57

6 identicon

Sumir tala um að stjórnarskráin sem nú er við lýði sé eins konar brjóstvörn fullveldis okkar.  Gott og vel, það má vel vera að svo sé.  Hins vegar langar mig að vita hvernig stóð á því að stjórnarskráin heimilaði inngöngu í NATÓ, EFTA, EES auk þeirra alþjóðlegra sáttmála sem við eru skuldbundin af.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 19.10.2012 kl. 21:02

7 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Hef verið að velta fyrir mér hvort þessi seinagangur í aðlögun að ESB draumi Jóhönnustjórnarinnar sé vegna þess að núverandi stjórnarskrá leyfir það ekki og því liggur svona mikið á að koma þessari stjórnlagakosningu í gegn sem fyrst svo að hægt sé að halda áfram draumi Jóhönnu,Steingríms og Gylfa Arnbjörns um gull og græna skó í Brussel.Ég kaus í gær og sagði nei við fyrstu spurningunni og skilaði svo vegna þess að ég vill að við séum sjálfstæð þjóð áfram.

Marteinn Unnar Heiðarsson, 19.10.2012 kl. 21:03

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég kom við hjá sýslumanni í gær og svaraði fyrstu spurningunni í skoðanakönnuninni.    Hafði ekki áhuga á hinum fimm...

Ágúst H Bjarnason, 19.10.2012 kl. 22:02

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Enn er vitnað til þátttökunnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldis 17. júní 1944.

Ótrúlega vandræðalegt og eiginlega óskiljanlega langsótt og engan veginn hæft til samanburðar eins og öllum ætti að vera ljóst.

Það var mannsbragur á þessari stjórnlagaráðsskipan. Afurðin er bara ekki nógu góð að mínu áliti en til þess verður að ætlast að Alþingi komi þessu mikilvæga plaggi til viðunandi horfs og það sem fyrst.

Árni Gunnarsson, 19.10.2012 kl. 22:17

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar,

Hvar eru þessar yfirlýsingar fulltrúanna? Getur ekki verið að þeir hafi verið að tala um fínpússningu í ljósi yfirburða samþykktarinnar? En að setja fram þennan stíl þinn og félaga sem eitthvað betra eða grundvallarbreytingu sem allir bíða eftir, þá er það ekki svo. Hversvegna viltu keyra þetta í gegn með svona offorsi Ómar minn ? Þú hlýtur að sjá að þeað er engin eining um plaggið? Ætlum við ekki að vera hér báðir eða er bærinn þinn ekki nógu stór fyrir okkur báða eins og þþeir sögðu í vestrunum.

Bravó Marteinn, og bravó Ágúst frændi. Ég ætla að gera eins og þið á morgun.

Nei Árni minn, mér er þetta ekki ljóst, ekki einu sinni örlítið ljóst. Þetta með mannsbraginn er eins og í sögunni um Ketil skræk, Sáuð þið hvernig ég tók hann? Og ef plaggið e ekki nógu gott, af hverju á þá Alingi að snikka það til einsog Jóhanna lætur í skína?

Halldór Jónsson, 19.10.2012 kl. 23:12

11 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Halldór..Mitt NEI er komið í Hús. Ég held að allir hér í Eyjum séu með nei í huga.......

Vilhjálmur Stefánsson, 20.10.2012 kl. 10:06

12 Smámynd: Elle_

Sammála Halldóri í öllu að ofan.  Skil ekki hvaða ´mannsbrag´ þú ert að tala um, kæri Árni.  Var það ´mannsbragur´ að valta yfir æðsta dómstól landsins?  Það er óskiljanlegt að það finnist 1 maður í landinu sem sættir sig við slíkt Jóhönnuofbeldi gegn Hæstarétti og þrískiptingu valdins.

Elle_, 20.10.2012 kl. 12:44

13 Smámynd: Þórir Kjartansson

Það eru bara þín orð og annarra sjálfstæðismanna sem segja að þetta sé gert í bullandi  ágreiningi við þjóðina.  Ég er alveg hættur að skilja þennan gamla flokk minn, Sjálfstæðisflokkinn.  Þetta virðist bara vera orðinn einhver niðurrifssöfnuður sem er á móti öllu hvert sem málefnið er. Úr þessum herbúðum er  allsstaðar  hrópað, úlfur,úlfur, svik og samsæri.   Sem gömlum sjálfstæðismanni er mér gjörsamlega ofboðoð.

Þórir Kjartansson, 20.10.2012 kl. 13:14

14 Smámynd: Elle_

Ekki ertu að troða okkur öllum í pólitískan flokk sem viljum þetta ekki??  Og ég neita alfarið að vera troðið í neinn flokk.  Og væri það þó ekki 1. sinn fyrir það eitt að vera sammála nokkrum Sjálfstæðismönnum.  Veit ekki hvað mér og öðrum hefur verið komið fyrir í Sjálfstæðisflokknum af stuðningsmönnum harðræðis núverandi stjórnar.

Elle_, 20.10.2012 kl. 13:27

15 Smámynd: Elle_

Veit ekki hvað mér og öðrum hefur oft verið komið fyrir í Sjálfstæðisflokknum af stuðningsmönnum harðræðis núverandi stjórnar.

Elle_, 20.10.2012 kl. 13:28

16 Smámynd: Anna Björg Hjartardóttir

ttp://www.eu-upplysningen.se/Sverige-i-EU/EU-lagar-galler-framfor-svenska-lagar/

Þessi vefslóð sænsku ríkistjórnarinnar upplýsir að Svíþjóð varð að breyta stjórnarskrá sinni, auk annara laga til að lög ESB yrðu rétthærri sænskum lögum. Allar umræður um knýjandi breytingar á íslensku stjórnarskránni eru vegna kröfu ESB um breytingar.

Anna Björg Hjartardóttir, 20.10.2012 kl. 14:55

17 Smámynd: Kolbrún Hilmars

H.T.Bjarnason spyr hér að ofan hvernig stjórnarskráin heimilaði "inngöngu" í NATÓ, EFTA, EES ofl.   Því er til að svara að aðild að Sameinuðu þjóðunum, WTO, NATÓ og EFTA er félagsaðild - ekki innganga.

Aðrir hafa gagnrýnt framgöngu framkvæmdavalds og þings í öðrum málum, svo sem Írakstríðsins og Lybíustríðsins - að ógleymdri ESB aðildarumsókninni.  Það var gert með þingsályktunum til hliðar við almannaviljann.  Hið besta mál ef ný stjórnarskráratriði fyrirbyggja slík fyrirbæri.

EES var önnur og afdrifaríkari "innganga" og þáverandi forseti landsins hefði átt að bregðast við undirskriftum uþb. 35.000 kjósenda um að vísa því til þjóðaratkvæðagreiðslu.  Þar klikkaði forsetinn en ekki stjórnarskráin.  

Kolbrún Hilmars, 20.10.2012 kl. 15:17

18 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sammála þér Kolbrún um allt sem þú skrifaðir hér að ofan.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 21.10.2012 kl. 03:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband