Leita í fréttum mbl.is

Erum við Evrópuþjóð?

"Væri ég Íslendingur myndi ég ekki spyrja hvaða slæmu hlutir gætu gerst ef við göngum ekki í Evrópusambandið. Ég myndi spyrja öðruvísi og ekki eins pragmatískt: »Við erum Evrópuland, við deilum gildum með öðrum Evrópuríkjum og viljum veg Evrópu sem mestan. Af hverju leggjum við henni ekki lið, höfum áhrif og tökum þátt?«« svaraði Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands, spurningu á opnum fundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær.... "

Það er mynd af fundinum þar sem sést að Össur situr við háborðið. Það er enginn mynd framan úr sal til að sjá hversu margir voru á þessum opna fundi.

En stenst fullyrðing mannsins?

Mér finnst við vera Íslendingar fyrst og fremst en ekki innilokaður Eistar undir hrammi rússneska bjarnarins. Við eigum jafnstóra íslenska þjóð í Bandaríkjunum og Canada. Okkar rætur eru miklu alþjóðlegri en Eista og landluktir Evrópumenn.Við erum sjómenn og ferðamenn. Við erum alltaf langt á undan Evrópumönnum að tileinka okkur tækni Ameríkumanna sem flest kemur þaðan. Við erum alþjóðlegir þó við syngjum þýsk lög. Við erum frjáls þjóð.

Þessi sífellda innræting krata og fullveldissala um að við séum einhverjir sérstakir Evrópumenn er ekki við hæfi. Við erum ekkert frekar Evrópuþjóð heldur en íslensk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Við erum Evrópumenn í sama skilnigi og þeim að flest allir Bandaríkjamenn, Kanadamenn, Ástralir og Nýsjálendingar eru Evrópumenn. En eins og þessi lönd er Ísland alls ekki í Evrópu. Lítið á landakortið! Það er tóm vitleysa að Ísland sé í Evrópu. Það er heldur nær Ameríku, þ.e. Grænlandi, en í rauninni er Ísland bara Ísland, hvorki í Evrópu né Ameríku, þótt íbúarnir séu upprunnir þar að langfeðgatali.

Vilhjálmur Eyþórsson, 20.12.2012 kl. 15:48

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Gaman að heyra í þér Vilhjálmur. Nákvæmlega rétt sem þú segir. En að við séum eitthverjir Evrópumenn sem eigi þessvegna að vera í Evrópubandalaginu eins og kratastóðið heldur fram, það kaupi ég ekki.

Halldór Jónsson, 20.12.2012 kl. 15:54

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Við erum ekkert Evrópumenn frekar en Bandaríkjamenn og Kanadamenn.   Forfeður okkar komu frá Skandinavíu  að meginstofni til, löngu á undan þeim Evrópumönnum sem fóru vestur. 

Þannig að ef við sem komum hingað áður en Evrópa varð til, um 500- 600 árum á undan þeim sem fóru vestur erum Evrópumenn , þá eru það enn freka Ástralir, Nýsjálendingar og Ameríkumenn.

Hrólfur Þ Hraundal, 20.12.2012 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband