Leita í fréttum mbl.is

Erum við enn þjóð?

Íslendinga? Enginn virðist sjá neitt sniðugt eða hliðstæðu í færslunni hér á undan. Það er eins og við séum þegar komin í ESB og enginn fær gert við því.

1258 var orðið hallæri á Íslandi og skipakomur fáséðar.Kyrkingur þarmeð væntanlega í versluninni og prjónles og kæfa óseld sem og fiskur en skortur á allri innfluttri vöru, járni, tjöru, ljáum osfrv. Farþegaskipaferðir líklega strjálast. En menn fóru framan af öldinni milli landa að vild á dekkuðum farþegaskipum sem tóku meira en hundrað farþega í reglulegum siglingum. En þessi skip vorur svonefndar bússur, hétu líka t.d.Grobussan, sem eru undanfarar stækkandi briggskipa. Veðráttan í landinu var kólnandi og herti að öllum landbúnaði. Og hún átti eftir að versna til muna á miðöldunum með öllu því hallæri sem fylgdi. Það var mjög kalt til dæmis þegar Gizur reið í Eyjafjörð að drepa brennumenn frá Flugumýri líklega um jólaföstu 1253. Með honum í ferð var Præst-Johan, líklega Dani, sem var sérlega ókvalráður þegar kom að því að fást við Kolbein Grön sem var afarmenni. En Gizuri þótti fátt til þeirra allra koma sem hann drap á undan Kolbeini í þessum túr.

Í gamla sáttmála 1261 var orðin ástæða til að semja sérstaklega um að Íslendingum séu tryggðar siglingar þriggja skipa minnir mig. Með þessu lauk erjum Sturlungaaldar og manndrápum höfðingja lýkur hugsanlega að miklu leyti þegar Gissur afhausar Þórð Andrésson fyrir samsærið og tilræðið gegn sér sem jarls Noregskonungs. En hann var Hákon gamli, sem okkar þjóðskáld kallaði Hákon Fúla sem hirti frelsi vort. Nú heitir samningamaður ESB Stefán Fúle.

Var hægt að áfellast Íslendinga fyrir það sem þeir gerðu 1261? Þeir voru í nauðum sem líklega áttu bara eftir að versna. Þeir töldu betra að eiga skjól hjá konungi sem tryggði frið í landinu og verslun.

Núna, árið 2012, eru svipuð mál í gangi og sitt sýnist hverjum. Margir segja að okkur vanti skjól og liðveisla við okkar vandamál sem eru talsverð. En margir telja að við eigum miklu fleiri úrkosti núna en mönnum buðust á dögum Gizurar.

Gizur hefur fengið harðan dóm í sögunni. En hann leið meiri raunir á sinni ævi en fáir menn geta skilið hvernig hann þoldi án þess að sturlast. Hann orti:

Enn mank böl þat brunnu
Baugahlín og mínir
skaði kenni mér minni
mínir þrír synir inni.
Glaður munat Göndlar Röðla
gnýskerðandi verða
brjótur lifir sjá við sútir
sverðs nema hefndir verði.

eða eitthvað þannig minnir mig.Maður getur skilið hvað honum fannst hann þyrfti að gera eftir Flugumýrarbrennu.

Nú er okkur sagt að enginn nema ESB geti kannski aflétt af okkur gjaldeyrishöftunum ef við göngum inn í höll konungs sem hirðmenn. Ekki sér maður að ÍSlendingar hafi haft af því langtíma hagnað sem þeir gerðu 1261. En eitt er víst að konungsgarður er víður inngöngu en þröngur útgöngu.

Sagan kennir okkur auðvitað aldrei neitt sem þjóð. Ef við þá erum enn þjóð?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita býr hér þjóð sem elskar frelsi og hatar höft. Hún hefur bara svo lítið val í kosningum.  Það er bara einn flokkur sem nær af vinstri hliðinni og yfir á hægri hliðina, allir hinir eru til vinstri.  Í lýðræðis samfélagi er eingin þörf fyrir komunista eða aðrar einræðis eða flokksræðisstefnur. 

Ef við hugsum hægri vinstri sem hundrað og áttatíu gráður lárétt, með 0° beint upp og svo 90°til vinstri og 90°til hægri, þá er þar lengst til vinstri, eða frá 90° vinstri, flokkur sem byggir á genum úreltrar stefnu og við hann skarast annað brot af sama meiði frá 80° vinstri og nær sá fyrr nefndi á 75° vinstri og sá síðarnefndi á 60° vinstri.  Þar næst kemur svo flokkur sem telur sig miðjuflokk en hann nær ekki inn á miðjuna vegna þess að hann er á 40° vinstri og nær á 10° vinstri.  

Til hægri við hann er flokkur sem spannar bilið frá 15° til vinstri og á 40° til hægri.  Þarna á meðal og á milli eru svo slitrur úr þessum flokkum og eru þær allar til vinstri og því til óþurftar.  Því að í lýðræðis samfélagi er eingin þörf fyrir komunista eða aðrar einræðis eða flokksræðisstefnur.  Hreinræktaður hægri flokkur er ekki til á Íslandi en fullt af allskonar vinstri hringlanda og handbremsu snillingum.  Kratar eins og Skandinavíu kratar eru ekki til á íslandi,  þó að nóg sé hér að hrokafullum mont hænsnum. 

Því fleiri flokkar og flokksbrot, því meiri verða hrossakaupinn eftir kosningar.  Því lengra til vinstri sem niðurstaðan verður eftir kosningar því nær færumst við ófrelsinu.  Það vantar afl til að hrista burt þessa gráðugu vinstri óværu, þó að flokkar sem hallast til vinstri megi alveg vera til, því það þarf alltaf andvægi.  En ærulaust er óþarft.

Hrólfur Þ Hraundal, 21.12.2012 kl. 23:46

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það gefur á,fáir kunna lengur að beita upp í ölduganginn.

Helga Kristjánsdóttir, 22.12.2012 kl. 02:04

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Helga mín og það stafar af vinstri slagsíðu og vélin höktir  því vélstjórinn er í ESB vímu og hefur ekki rænu á að gera við brennslu olíu lekann. 

Stýris vísirinn er vitlaust stilltur og sínir beina stefnu sem er 20° til vinstri þegar best lætur.  Þessi dallur fer því í vímu yfirmanna með áhöfninna alltaf í hringi og nær aldrei höfn.         

 

Hrólfur Þ Hraundal, 22.12.2012 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband