Leita í fréttum mbl.is

226 milljarða hækkun

á verðtryggðum lánum heimilannaa frá hruni. Og þar af 22 milljarðar beinlínis vegna skattahækkana norrænu velferðarstjórnarinnar. Enn er það Guðlaugur Þór  sem reynir að berjast fyrir fólkið með því að draga þetta fram. Hvað gera hinir vammlausu?

Heyrði ég rétt að einn flokkur hefði enga tillögu í þessu máli sem myndi kosta mikið?

Hverjir eiga þessi hækkuðu bréf núna?  Eru það ekki aðallega lífeyrissjóðirnir og ríkið í gegnum Íbúðalánasjóð?

Vantar lífeyrissjóðina peninga ? Þeir eru í fjárfestingafangelsi og eru því í því að búa til eignabólu fasteigna. Undirbúa nýtt hrun?  Má ekki slaka á greiðslum í þá ? (Eða leggja þá alla niður í núverandi mynd sem er mín skoðun)

Á ekki  Íbúðalálanasjóður sjálfur  bréf í meira en 1000 íbúðum sem standa tómar og jafnvel í öðrum 1000 ?

Ekkert hægt að gera? Hvað er að heyra? Hversvegna má ekki blaka við auðvaldinu og bankasamsærinu?

Hvaða stjórnmálasamtök hafa kjark til að segja eins og landsfundur Sjálfstæðisflokksins var næstum búinn að samþykkja, að færa vísitöluna afturábak ? Á kostnað þeirra sem eiga bréfin bara blákalt. Á öllum bréfum í skilum eða ekki skilum.

 Þetta er þjóðfélagsleg aðgerð sem mun skila sér síðar. Fyrir marga kemur hún of seint. Kannski er eitthvað hægt að gera fyrir þá sem bætur fyrir rangindi?

Lífeyrissjóðir geta gert þetta eins og að kaupa Landsvirkjun eða aðrar galdraflugur stjórnmálamanna.

Gerum vístölur ónæmar fyrir skatthækkunum.

226 milljarða aftur til fólksins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Ekki veit ég hvort þú hafir sjálfur merkt stefnubreytingar skrifa þinna frá því að styðja verðtrygginguna yfir í beinskeytta gagnrýni sem hverjum hugsandi manni er sómi af.  

Áttu þar samhljóm með merkum mönnum eins og séra Halldóri Gunnarssyni sem hefur skrifað góðar greinar þar um, sem og um hina miklu vá sem að steðjar vegna yfirtöku vogunarsjóðanna.

En ég hef merkt hana og tekið eftir að rökfesta þín gagnast andstæðingum þess þjóðarböls sem verðtryggingin er  jafnvel og hún gerði í baráttunni við ICEsave tröllin.  

Hafðu þökk fyrir.

En erindi mitt var að svara spurningu þinni um hvað hinir vammlausu gera.  Svarið er mjög einfalt, þeir fella í prófkjörum alla sem tala um réttlæti og mennsku í skuldamálum þjóðarinnar.

Því miður Halldór, þannig er raunveruleikinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.1.2013 kl. 13:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er ekki á móti verðtryggingu per se. Hún er skynsamleg og nauðsynleg. En HÉR VARÐ HRUN og forsendubrestur. Það er allt annað mál Ómar.

Ég held að SJálfstæðisflokkurinn vilji taka á þessu máli. Ef þú lánar mér ost þá á ég að greiða þér ost til baka en ekki ost holaðan að innan. En ef það hefur verið settur skattur á ostinn af utanaðkomandi áhrifum, sköttum eða styrjöld, force-majeur sem hefur tvöfalda verðmæti ostsins þá held ég að þú sýnir mér sanngirni að þú eigir ekki rétt á tveimur ostum vegna þess eins.

Halldór Jónsson, 30.1.2013 kl. 19:11

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Vonum að þú sért sannspár um það Halldór, en prófkjör flokksins benda til annars.

En ég efa ekki vilja grasrótarinnar, gerði það ekki í ICESave, og ekki í þessu máli heldur.

Það er fjármagnið sem ég óttast, en það er önnur saga og ég tjái þann ótta minn á mínum vettvangi.  

Vildi aðeins þakka þér fyrir skeleggan málflutning.

Sem margir lesa og taka mark á.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.1.2013 kl. 22:30

4 Smámynd: Þorkell Guðnason

Skv. gildandi lögum þarf aðeins tvö einföld atriði til að leiðrétta verðtryggingu húsnæðislána:

Ákvörðun ráðherra og auglýsingu Hagstofu

Á mannamáli er inntak laganna:

Hagstofa hefur vald til að ákveða einhliða, breytingar á vísitöluforsendurm og tilkynna þær svo.

Leiki einhver vafi á heimildum, hefur ráðherra Hagstofu (nú líklega fjármálaráðherra)

óskorað vald til að setja – með reglugerð – nýjar leikreglur

Þar með hefði sá talað sem valdið hefur.

Það eðlilega er að lán með veði í íbúðarhúsnæði – sem veitt voru úr opinberum eða

hálf opinberum skylduaðildarsjóðum – fylgi hlutfallslegu verðmæti andlagsins.

Auðvitað er fráleitt að þau þjóti langt fram úr slíku hlutfalli. Þá eru forsendur brostnar.

Þess vegna ber að færa útreikningsforsendur vísitölunnar fram fyrir hrun!!!

Þorkell Guðnason, 30.1.2013 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband