Leita í fréttum mbl.is

"Gríðarmikill Gordon Brown

gekk þá af mér niður."

Ég fékk póst sem mér fannst lúmskt góður. Við erum Íslendingar öðrum þjóðum fremri í að finna hnyttiyrði yfir ýmsa hversdagslega hluti. Lordar, manni, þríbrotinn drjóli með peði, osfrv.

Pósturinn var svona:

" Sælir, þessi vísa barst til mín áðan, veit ekki um höfund, en hún fannst víst fyrst hjá Jónasi Elíassyni prof.("let the deny it" sagði Nixon)

Kannski getur einhver snjall snarað þessu yfir á enska tungu svo fleiri fái notið?

Á salernið ég settist down
svall mér þrútinn kviður,
gríðarlegur Gordon Brown
gékk þá af mér niður. "

En þarna er kannski komið samheiti sem við getum notað?

(Það má dunda við varíanta fyrir málvöndunarmenn t.d.:
Salernið ég settist á,svall mér þrútinn kviður. Gordon Brown mér gekk þá frá,)
gerðist aftur friður.)

Ég kem þessu á framfæri fyrir þá sem enn geta hugsað hlýlega yfir hafið til Gordons Brown.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kannski rétt, Halldór minn, að rifja upp eina vísu mína haustið 2009:

  • Not every Brit is called a Brown
  • (relax!), nor lets whole nations down.
  • Just one devalued our crown,
  • assisted by his Darling Clown.

.    

Jón Valur Jensson, 1.2.2013 kl. 09:42

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Báðir góðir, Halldór og Jón Valur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.2.2013 kl. 13:41

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Halldór darling! Þegar Gordon hafði gengið niður af honum, átti hann eftir alla pappírsvinnuna (-:

Helga Kristjánsdóttir, 1.2.2013 kl. 15:34

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Gordons hnútar eru ekki auð leystir, sérstak lega þar sem nú er sú öld, að ekki má leysa þá með klubbum, eins og ærlegt var að lagfæra ódáða menn með hér áður fyrr.  En nú bíða menn og bíða eftir að karl durgurinn drepist áður en hann fréttir af því að hann er skíthæll.  

Og þó, Óli Gríms var að tukta hann eitthvað til um daginn.  Það var þó kominn tími til, því ekki gerði Jóhanna það og ekki þá Steingrímur og þaðan af síður háskóla aftaní hangandi þý þeirra. 

Því má svo við bæta að málgleði hinnar svokölluðu stjórnarandstöðu að þessu leiti, var ekkert til að fylla fötur.      

Hrólfur Þ Hraundal, 1.2.2013 kl. 16:48

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

On the loo I sat me down

in me bowels a stinging pain,

when a colossal Gordon Brown

plopped and slided down the drain

Svanur Gísli Þorkelsson, 1.2.2013 kl. 17:06

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir öll. Maðurinn til að þýða þetta á enska tungu hefur kannski gefið sig fram með Jóni Vali.

Ef send væri góð ensk þýðing á þessu í Downingsstræti 10 þá er ég nokkuð viss um að Cameron myndi ekki liggja á vísunni. Eða hvað?

Halldór Jónsson, 1.2.2013 kl. 17:06

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Það var ekki komið framlagið frá Svani þegar ég skrifaði. En takk fyrir Svanur, nú þyrpast kannski góðskáldin að.

Halldór Jónsson, 1.2.2013 kl. 17:07

8 Smámynd: Halldór Jónsson

At the loo I let me down,

Lord, how bowels were in pain.

A gargantuan Gordon Brown

glided out into the drain.

Halldór Jónsson, 1.2.2013 kl. 17:47

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sá fær að heyra það hér!

Svo þarf hann að fara að læra íslenzku. Forsetinn ætti að sjanghæja hann í námskeið, svo að hann geti notið til fulls íslenzkra níðvísna.

Jón Valur Jensson, 1.2.2013 kl. 21:06

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Auðvitað orti ég vísuna haustið 2008.

Jón Valur Jensson, 2.2.2013 kl. 00:22

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Jón Valur

Smá varíant:

At the loo I let me down,

Lord, my guts were so in pain.

Till the greatest Gordon Brown

gushed from me into the drain.

Halldór Jónsson, 3.2.2013 kl. 15:31

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef við sendum ljóðasafnið í Downingstræti þá liggur Cameron varla á því.

Halldór Jónsson, 3.2.2013 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband