Leita í fréttum mbl.is

"Hækkum bara vextina!"

eru úrræði Mávs Guðmundssonar Seðlabankastjóra við komandi verðbólgu af völdum kauphækkana yfir línuna. Herðum að fyrirtækjunum eru ráð þessa gamla byltingarsinna af Kúbuskólanum. Harðari lausafjárstýring. Er það ekki  binding í stíl Frosta og Framsóknar? 

Þýðir þetta ekki kreppu hjá öllum nema opinberum starfsmönnum? Eru það ekki opinberir starfsmenn sem eru að búa til verðbólguspíralinn sem Már talar um uppi á Landspítala?

Til gamans punktaði ég hjá mér það sem Már sagði  á Sprengisandi eftir bestu getu. Þetta var helst: 

Már viðurkennir  minni hagvöxt. Hann segir að að það sé of mikið um kvikar krónueignir í erlendum höndum. Snjóhengjan er samt ekki 1200 milljarðar eins og sumir halda fram. Ef við höldum á þrotabúunum eins og apakettir bætast  217 milljarðar frá þrotabúunum  við þá  400 milljarða sem enn standa eftir af  570 milljörðum upphaflega.  Það hefur tekist að lækka  þetta mikið. Ef bankarnir verða seldir fyrir gjaldeyri bætist ekki í snjóhengjuna.

Mikil niðurskrift  þarf að eiga sér stað í hendur innlendra eða erlendra aðila. Hvað kemur inn af gjaldeyri ræður losun haftanna.  400 milljarðar eða núll? Allt þetta fjármagn er þó ekki eins kvikt og áður.

Annar fasi málsins þarf að vera að fjármagnseigendur geti ekki farið nema greiða útgöngugjald. Þetta gátum við ekki gert strax. Við getum þetta núna.

Það eru engin höft á því hvað við getum flutt inn. Nú er afgangur á ríkissjóði(þetta segir Már væntanlega sem stjórnarsinni enda ráðinn af henni?)og allt orðið betra og bankarnir þurfa að verða nógu traustir til að geta að lifað án hafta. Stærra plan er búa til aðstæður til að afstýra því að krónan fari í dýfu við afléttingu haftanna.  Útgönguskattur kemur áður en það verður gert. Hann er hluti af víðtækri áætlun um  regluverk og ríkisfjármál. Snjóhengjan 400 milljarðar verður ekki alveg farin en hún mun hafa  lækkað. Lækkunin er komin í farveg þannig að þetta fer hún fer ekki út í einu.

Krónusnjóhengjan er hluti vandamálsins , hitt eru þrotabú bankanna og til viðbótar kemur þung erlend greiðslubyrði hjá stórum aðilum hafa ekki aðgang að fjármagnsmarkaði erlendis, Orkuveitunni osfrv.Þetta setur þrýstingi á krónuna. Eitt stærsta vandamálið eru skuldabréfin milli gamla og nýja Landsbankans(sem Steingrimur bjó til), byrjar að bíta 2015. Þó að 120 milljarða afgangur sé á þjónustu-og viðskiptajöfnuði þá dugar það varla til að borga af skuldabréfi Landsbankans uppá  80 milljarða. Við verðum að fá framlengt. Allt þetta leysist ef bankinn kemst á erlendan lánsfjármarkað.

Horfurnar fyrir  ríkssjóð batnað það var lykilatriði.(Sjónarmið frá VG eða staðreynd? Hvað með uppsafnaðan halla ríkisstjórnarinnar  400 milljarðar? Hefði Sigurjón ekki mátt spyrja um það?) Lykilatriði að  fall bankanna lenti ekki á ríkissjóði(Voru það ekki neyðarlög Geirs Haarde sem Steingrímur var á móti?), kröfur þrotabú bankanna eru ekki kröfur á ríkissjóð skyldu menn athuga.(Hver sagði að við myndum ekki borga erlendar skuldir óreiðumanna?) Stærri gjaldeyrisforði er nú fyrir hendi.  Ísland er í skilum. Ríkissjóður er að komast í afgang(Er þetta fullyrðing sem stenst? Eða frá manni sem er í vinnu hjá stjórninni?). Það er vaxandi áhugi á að huga að lánum til íslensku bankanna. Ef svo fer þá  lagast málin.

Aflandskrónurnar valda óánægju það er rétt. Lágmarkið hefur verið lækkað  Skilyrðin sömu fyrir alla. Það verður samt að  eiga löglegan gjaldeyri, taka á sig kvaðir um margra ára bindingu til að fá betra gengi. Við viljum hafa þetta sanngjarnt og jafnt fyrir alla.

Allir útflytjendur eru skilaskyldir á gjaldeyri. Skilaskyldan er nauðsynlegt lykilatriði.  Ekki höft á gjaldeyri sem var í eign fyrir hrun. Erlendir aðilar koma líka. Könnum uppruna peningana. Innfluttur gjaldeyrir má ekki vera skilaskyldur gjaldeyrir. Mörg mál eru í kærumeðferð,  peningaþvætti er kannað og mörg dæmi eru um neitanir. Samherjamálið var nefnt lauslega af Sigurjóni.Már svaraði að feykilegur ávinningur væri ef svindlað væri án þess að fara nánar út í það.

Þjóðin borgar fyrir allt svindl. Mörg mál eru í gangi.  Þau mega taka tíma.  FME-rannsókn  tekur stundum  4 ár og það eru  bara forransóknir,síðan tekur dómsmál við.  Við vöruðum við of háu lánshlutfalli húsnæðislána á sinni tíð.(Sem var rétt. Banksterarnir reyndu að nota þetta til að eyðileggja Íbúðalánasjóð fyrir utan að þetta eyðilagði  fjölda heimila sem nú eru búin að missa allt. Þurfa þeirra ekki að bíða rækilegar rasskellingar fyhrir ódæðið? ) 

Þá höfum við séð yfirlit yfir það sem Már er að hugsa um höftin og hagstjórnina. Þetta var að mörgu leyti upplýsandi viðtal og eiginlega vekur vonir um að allt sé ekki alveg jafn kolsvart og menn héldu. 

Erum við ekki meðal annars að horfa á þá afleiðingar þeirrar reginvitleysu að gera bankana ekki gjaldþrota og borga út úr búunum í íslenskum krónum? Allar skilanefndirnar óþarfar. Bara skiptastjórar uppá fast kaup.  Allt  fyrir fíflaskap Steingríms J. sem gaf bankana og endurreisti Landsbankann með þessum afarkostum sem Már lýsti. (Segir maður ekki á breska understatement vísu good riddance eftir tíðindi helgarinnar?)  

Höfum við ekki séð þessa peningastefnu Seðlabankans áður?  "Við munum stíga bremsurnar " segir Már. Bremsurnar munu skella á einkarekstrinum en ekki opinberum starfsmönnum. Þar getur maður séð inn í það svartnætti ríkir undir Svörtuloftum Seðlabankans.

Klemma að einkafyrirtækjunum þegar opinberir starfsmenn eru búnir að sprengja upp launamarkaðinn? Það er hagstjórnin.

Gamli komminn Már hefur ekkert lært og engu gleymt.

" Hækkum bara vextina! " . 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Væri hægt að fá ÞYSKANN ÓHÁÐANN SEÐLABALKASTJÓRA með fullu viti- án afskifta Vitifyrrtar ríkisstjórnar- og flokkahagsmuna     ????

Erla Magna Alexandersdóttir, 17.2.2013 kl. 18:56

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ein af stærstu mistökum JóGrímu var að ráða Má Guðmunsson í Seðlabankastjóraembættið.

Vonandi verður hann rekinn af næstu Ríkisstjórn.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 17.2.2013 kl. 23:45

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

http://www.bis.org/publ/cgfs26.htm

Hér er hægt að hlaða niður góðri skýrslu um helst lán til fjámögnunar húsnæðis [íbúða] : umræður í þessu heimska Ráðstjórnarríki er ömurlegar. 

Sviss og þjóðverjar er ekki heimskir í fjámálum samanborið við Íslendinga þó þeir haldi því fram. Það er ekkert að USA 30 ára jafngreiðsluveðskuldum: með öllum verðbótum fyrirfram reiknuðum og fasteignsköttum líka.

Júlíus Björnsson, 18.2.2013 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband