Leita í fréttum mbl.is

Blind hrifning...?

Ég fékk skemmtilega athugasemd frá bloggvini um að ég væri sleginn blindri hrifningu yfir formann mínum og ræðunni hans á Landsfundi. Ég fór að hugsa að margir virðast ekki þora að ganga í flokk af því að þá séu þeir að selja sál sína.  Þeim yfirsést með samtakamáttinn sem drífur flokkana. Ég svara þessu  með samlíkingu:

Að vera í flokki þýðir að vera í flokki. Hefur ekkert með blinda hrifningu að gera. Ef þú kallar á mig og þrjá aðra til að ýta bílnum þínum sem er fastur á veginum fyrir framan okkur og við komumst ekki áfram, þá er það af því að einn geturðu ekki náð honum upp úr vilpunni og við komust heldur ekki áfram.  Ef við náum honum upp allir saman þá táknar það ekki að við séum slegnir blindri hrifningu í þinn garð. Þinn bíll er þá allavega ekki lengur að teppa veginn fyrir okkur, sem gæti verið gott fyrir okkur alla. Ef þú vilt svo ekki taka þátt í að moka ofan í holuna verðum við að gera það. Þá er ekki víst að við hugsum til þín í blindri hrifningu.

En við þurftum að vera saman til að ná bílnum upp. Það var galdurinn við að koma saman í flokk. Flokk sem mokar ofan í holuna og kemst áfram. Við keyrum allir okkar veg og hugsum hlýlega til hvors annars. Við kannski heilsumst á götu eftir þetta og við erum ríkari eftir atburðinn. Af hverju megum við ekki reyna að þetta saman og ná árangri fyrir aðra vegfarendur. Okkur gæti meira að segja dottið í hug að allir vegfarendur hentu einum steini í holuna sem myndi óðara fyllast og enginn myndi festa sig í henni aftur. Þetta er eiginlega það sem er að vera í stjórnmálaflokki. Auðvitað sitja einhverjir götustrákar á girðingunni við veginn og hæðast að okkur öllum eða henda í okkur hrossataðskögglum.Það breytir ekki öllu.

Það er nauðsyn að standa saman í flokki fyrir stór átök og hefur ekkert með einhverja blinda hrifningu að gera. Ekki bara í Sjálfstæðisflokknum hans vegna heldur  hreyfingarinnar vegna, bjartrar framtíðar þjóðarinnar  og dögunar í nánd sem við sækjum fram til saman.

Fjarlægði gerir fjöllin blá og mennina mikla. Hvar er mjöll sem féll í fyrra spurði Pétur Gautur.

Blind hrifning hefur hinsvegar oft orðið skammærri en menn varir.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Oft er í Holti heyrandi nær..... Þú veitir væntanlega honum nafna þínum brautargengi í kosningunni um formanninn!

Annars erum við "andæfingar" að komast í slæma stöðu og gætum endað með að hafa ekkert val um að kjósa þvert gegn okkar samvisku í vor. Það er því miður af illri nauðsyn sem við verðum að losna við ríkjandi stjórnvöld ef við ætlum okkur að eiga nokkra möguleika í þessu guðsvolaða landi.....!

Njóttu þín sem best á Landsfundinum og veittu góðum málum stuðning en vondum ei.

Ómar Bjarki Smárason, 22.2.2013 kl. 15:50

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Viltu þá ekki telja þau sérstaklega vondu upp fyrir mig svo ég geti varað mig á þeim?

Halldór Jónsson, 22.2.2013 kl. 21:55

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Held að það sé alveg óhætt að treysta dómgreind þinni í því. Sé að þú ert strax farinn að vara við ESB og gjaldmiðladaðri. Það er góð byrjun, enda styrkist krónan og dollar verður væntanlega kominn niður fyrir 120 kr þegar opnað verður fyrir viðskipti á mánudaginn....!

Ómar Bjarki Smárason, 22.2.2013 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband