Leita í fréttum mbl.is

Össur er þyngsti hrunskatturinn !

Össur Skarpéðinsson þenur púkablístru sína til tengingar við áróðurinn sem rekinn er í litfögrum bæklingum ESB-sinna á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Mbl í gær. Einhver er nú kostnaðurinn við svona útgáfu og líklega gott fyrir íslenskan hagvöxt.

Nauðsynlegt finnst mér að tilfæra nokkur atriði úr þessari ritsmíð til skoðunar.

Össur segir m.a.:

Styrkur evrunnar sem gjaldmiðils kom vel fram í nýlegri ríkisskuldakreppu sem gekk yfir nokkur ríki evrusvæðisins. Andstæðingar evrunnar, sem aldrei vilja tala um málefni henni tengd, þrumuðu þá í síbylju að evran væri að hrynja. Ef ekki í þessari viku, þá örugglega í þeirri næstu. En hvað gerðist? Evran styrktist sem gjaldmiðill! “

 

 Hvaða afleiðingar hafði þessi styrking fyrir Grikki? Jú atvinnuleysi tók kipp upp á við. Örvinglað fólkið þyrptist út á göturnar og bardagar brutust út. Ástandið er svartara í atvinnumálum í flestum háfþróuðum evruvæddum Evrópusambandslöndum utan Þýskalands og Frakklands en nokkru sinni fyrr. Bein andstaða við aðild að Evrópusambandinu vex víða meðal annar í Bretlandi sem þó er með eigin mynt. Svíar hafa fellt sína krónu til þess að vera samkeppnisfærir við Norðmenn til dæmis sem versla þar af öllum mætti.  

 

 Svissarar versla allt sem þeir geta í Þýskalandi því þeirra franki er svo sterkur að til vandræða horfir. Skyldi Össur hafa hugleitt af hverju? Það eru hreinlega neikvæðir vextir í Sviss og þeir hóta að prenta mikið magn af frönkum til að ná genginu niður. Okkar seðlabankastjóri hótar að hækka stýrivextina og beita bindiskyldu til að verja krónuna eftir launahækkanir opinberra starfsmanna. Er þetta ekki glæsileg framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf á næstu mánuðum?

 

 Enn skrifar Össur:

 

 „Krónan er bundin í gjaldeyrishöft til langrar framtíðar. Í viðtali við Bloomberg var efnislega haft eftir Má Guðmundssyni seðlabankastjóra að þess vegna gæti Ísland þurft að íhuga aðild að stærra myntsvæði. Í skýrslu sl. sumar sagði Seðlabankinn að ætti að skipta um gjaldmiðil væri engum öðrum kosti til að dreifa en evrunni. Evran er því í reynd eini valkosturinn ef við viljum losna við krónu sem í sjáanlegri framtíð verður ætíð í höftum.“

 

 Þar kom rétta andllitið fram.   En ætli Össur geti frætt okkur landsmenn á því hvaða skiptigengi okkur standi til boða? Hvað verða húsnæðisskuldirnar þegar búið er að skipta? Og hver verða launin?

 

 Að svona hagfræðilegur örvita skilningur sé  í heilabúi á íslenskum ráðherra er þyngra en tárum taki. Er ekki búið að banna Íslendingum að taka erlend lán vegna þess hversu þau gátu stökkbreyst?  Það er að vonum að stofnbréfapekúlantinn úr SPRON Össur Skarphéðinsson sé ónæmur á íslenskan veruleika. En það er Landsfundur Sjálfstæðisflokkurinn ekki sem betur fer.

 

 Enn skrifar Össur:

 

  Gjaldeyrishöftin valda því að landið fyllist smám saman af krónum, og þær vantar verkefni. Fjárfestar, sem eiga krónur, munu því leita í verðmæti eins og fasteignir. Sá veikleiki krónunnar sem birtist í gjaldeyrishöftum mun því efalaust leiða til hækkandi verðs á fasteignum og hugsanlega nýrrar eignabólu. Það mun þyngja enn stöðu húsnæðiskaupenda í framtíðinni.“

 

 Jahá. Hér fylltist landið af krónum fyrir hrun sem útlendingar áttu. Þeir vildu háa íslenska vexti. Þeir græddu því íslenska krónan var sterk en útlendir peningar veikir. Svo kom Lehman-hrunið, svo stórrhrunið, svo Gordon Brown sá óslánsklown,svo Össur, Steingrímur, Jóhanna. Svo Már  og svo gjaldeyrishöftin. Auðvitað  brugðust okkar ráðamenn margir  í aðdragandanum. Auðvitað átti ekki að láta banksterana hafa frítt spil  og nota sína „gargandi  snilld“ til að búa til Icesave og innlendar rafkrónur eftirlitslaust.

 

 Hér getur allt fyllst af gjaldeyri aftur ef rétt er á haldið. Það meira en getur gerst þegar búið er að hreinsa upp brakið sem eftir liggur og þegar einhverjar raunhæfar ráðstafanir til atvinnuaukningar sjá dagsins ljós. Rammáætlun og stjórnlagráðsfarsinn eru komin út á öskuhauga sósíalismans ásamt  gömlu kommúnistunum eins og Össuri Skarphéðinssyni þar sem hann og hans efnahagssýn fyrir Ísland eru best geymd.

 

 

Össur Skarphéðinsson og ríkisstjórn hans er þyngsti hrunskatturinn sem lagst hefur á landið okkar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband