Leita í fréttum mbl.is

20 Laugardalshallir af sandi?

"Frá því að rekstur Landeyjahafnar hófst árið 2010 er búið að dæla um 650 þúsund rúmmetrum af sandi úr höfninni. Við gerð hafnarinnar voru fjarlægðir um 400 þúsund rúmmetrar af sandi. Samtals eru þetta yfir milljón rúmmetrar en það jafngildir sandi sem nægir til að fylla 20 Laugardalshallir."

Svo segir í Mogga.

Hvað myndi gerast ef Markarfljót  væri látið renna af og til í gegnum höfnina? Er það kannski billegra en dæluskip sem virðast hafa þarna eilífðarverkefni sem er náttúrlega mælt sem hagvöxtur?

Ætli Markarfljót geti ekki borið með sér einhverjar Laugardalshallir af sandi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Fljótið myndi bera með sér sand sem síðan legst við hafnamynnið og gerir það grynnra og síðan þarf að dæla honum í burtu...

Hefur engum dottið í hug að reikna út hvað það myndi kosta að halda þessari "höfn" opinni  í 10 ár, deila síðan upphæðinni á hvert mannsbarn í Vestmannaeyjum og gefa þeim peningana, í staðinn fyrir að henda þeim í þessa kleppsvinnu? Hvort skyldu eyjamenn frekar vilja, peninga í vasann eða styttri siglingu? Hefur einhverjum dottið í hug að spyrja þá? 

Sagt hefur verið að veikt fólk á ákveðinni stofnun hafi verið látið vinna við að bera sand fram og tilbaka. Þegar fólkið sá tilgangsleysi verkefnisins var það úrskurðað heilbrigt og leyft að fara frá stofuninni.  Er ekki kominn tími til að hætta þessari bilun?

Hörður Þórðarson, 22.3.2013 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband