Leita í fréttum mbl.is

Kyle Bass

er hrægammur eins og þeir gerast bestir. Kaldur, yfirvegaður og óhugnanlega klár.

Menn ættu að kynna sér það sem hann hefur látið frá sér fara sem er ekki lítið. Og það er ekki heldur nein tæpitunga sem hann notar. Maðurinn er hafsjór af þekkingu um efnahagsmál heimsins og hefur allar stærðir á hraðbergi.

Mig brestur andlegt atgervi og mikla þekkingu til að skilja allt sem hann færir fram sem rök fyrir sínum ályktunum. En hann hefur greinilega víðari skilning á fjármálum heldur en sá Mr. Sigfússon sem hann heimsótti 2011.

Margt af því sem Bass segir um þróun mála í Japan á næstu árum hlýtur að vekja upp margar spurningar varðandi viðskiptaáform Íslendinga í austurveg. Við þurfum að vita hvort við séum of bláeygðir gagnvart Kínverjum til dæmis, sem hér eru komnir með 500 manna sendiráð í Reykjavík. Okkur varðar að vita hvað þeir eru að gera hér og sjálfir verðum við að finna út hvað þeir ætla sér með okkur og það land sem við nú köllum okkar. 

Ég held að okkar ríkisstjórn gerði gott í því að fá Bass til viðræðu við okkur um málefni ríkisins og þjóðarinnar og þær leiðir sem við getum fetað upp úr kreppudalnum sem hann er ósammála um að við séum að leysa.. En það er betra að vera vel lesinn ætli maður að eiga orðastað við þennan kall, svo hættulega greindur sem hann er.

Ég held að raunsæi Bass og framtíðarspár um þróun efnahagsmála í heiminum og hver sé raunveruleg staða okkar lands og framtíðarhorfur væru gott veganesti. En það þýðir ekki að bjóða hverjum  sem er af þeim íslensku stjórnmálamönnum sem venjulega hefja sig hæst í sjálfsáliti til þeirra viðræðna. Þar yrði að vanda valið ef nýta á tímann.

Kyle Bass er maður sem vert er að skoða. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

OG hrægammar eru nauðsynlegir fyrir alla - ekki gleyma því

Rafn Guðmundsson, 22.6.2013 kl. 00:13

2 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Ef ég man rétt ertu dálítill EU aðdáandi Rafn Guðmundsson.  Það er Kyle Bass ekki.  Þetta sagði hann víst nýlega um Krugman og aðra sentralstýringargúrúa yfirleitt mikið sósíalkratíska;        "I would like to live in a world where it's all rainbows and unicorns and we can make Krugman the President - but intellectually it's simply dishonest"

Jón Ásgeir Bjarnason, 22.6.2013 kl. 07:02

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Íslenska lávirisauka markað ríkið með hæstu raunvaxta kröfu í heimi; allir  vinnandi í ríkiseingarhalds fyrirtækjum,  er með sköttum sem Kínverjar segja vera sér að skapi. PPP hér=raunvirði meðallaun ahefur lækkað í samburði önnur ríki heims um 30 % síðust 30 ár. Samburður sés með far í heimsókn til annra ríkjas sem voru langt á eftir Íslandi í lífs gæðum [úrvali og þjónustigi]fyrir 30 árum t.d. Austur og  Suður Evrópa.   

Júlíus Björnsson, 22.6.2013 kl. 11:07

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Rafn, hrægammar eru fyrirbrigði sem fylgja frjálsum markaði. Þeir spila með bönkum eins og við þekkjum ótal dæmi um hérlendis og græða sjálfir.

Jón Ásgeir BJARNASON það er einmitt raunsæi Kyle sem gerir það rétt að sperra eyrun.

Júlíus,þú yrðir ekki í vandræðum með skotfæri til orrustu við Kyle ef vel væri miðað.

Halldór Jónsson, 22.6.2013 kl. 12:13

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

In Marxist political economy,[1] capital is money used to buy something only in order to sell it again to realize a financial profit, and for Marx capital only exists within the process of economic exchange—it is wealth that grows out of the process of circulation itself, and for Marx it formed the basis of the economic system of capitalism. This concept is also called financial capital in economics.
http://en.wikipedia.org/wiki/Capital_%28economics%29

 Meira um tekju tengingar semmá breyta í reiðfé á mörkuðu :Prime  stöðugum almennu og hinu subPrime  eða í þegar um fjármálatekjur er ræða secondary og common.  Tekjur breystast í reiðfé á common markaði með að seljast með söluskatti, þessar nýju raun eingir [pengingarnir] fara sem yfir á  secondary market : frjáls og heiðarlega.
http://en.wikipedia.org/wiki/Good_%28economics%29

http://da.wikipedia.org/wiki/Gode_%28%C3%B8konomi%29

tekju [nomy] fræði hefur eigin orðaforða skilgreingar og Ísland er greinlega með þessar komma skilgreingar í heilanum.  

Íslenskir hagfræðingar er þeir yfir meðalagi í greind IQ, námið er stjórnsýslegt félagsfræðilegt. Þeir eiga geta túlkað [læra ekki að sanna og geta því ekki skilið síðar] og skýrt eftir á klúður sossanna.  Þetta lið frá 1918 hefur að mínu mati lítið  vit á raun reiðfjár vísindum.  Selja reiðufé skattmann á hverju ári fyrir almennar rauneignir [þessar grunntekjur sem bæta við sig markaðs launveltum sem skila vsk á leiðinni til Loka seljenda og upp í eigna millfærslu geiranna sem bera ekki hagvaxtar auka skatt.   Ríkið hér leggur eins og UK 68% á grunnrauntekjur á hverju ári , til að fjármagna alla hina ekki vsk. tekju geiranna.

útlendingar tala um reiðufjár innkomu borgara þegar tekjur utan þeirra eignfærast með vera greiðsla fyrir skiptimynt Ríkisins. 

Ríkið skiptir 168% af 100% raunvirði á hverju ári. 

Einfaldur Kapitalismi er viðhald sínum hlut í keppni um heildar tekju á markaði Þar sem allir sitja við sama borðið á öllum 5 árum: þeir óhæfu afskrifa sig sjálfir [með græðgi] og maður kemur í manns stað í hverju fyrirtæki.   Það er engin mismunun að afan [verðtrygging á græðgi og mismunandi reiðufjár innkomu skattar koma í hugan].  Tekjur =goods í grunni => yielding.  Inn í borgum er jöfn reiðufjárinnkoma allra einstklinga vegna virkra neytenda og heiðarlegrar keppni.  

Júlíus Björnsson, 22.6.2013 kl. 20:02

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Dæmi um komma hugsun :  3 einstaklingar byrja jafnt allir með sömu upphæð.  Einn er nægjusamur og eyðir  jafnmiklu inn á hverju ári og kemur inn annar er  iðjusamur og fjárfestir öruggt hlut af sinn hreinu eign í reiðufé  [demant og gull koma upp í hugan]. Sá þriði er spilafíkil og gamblar  með mikið meira en á með réttu.   Er þá rétt að  Ríkið hirði frestun eyðslu þess sem á gull og demanta  til að allir séu jafn ríkir á hverju ári?   Já segja kommar.    Hægri menn segja að allir eigi að vera jagnir í grunn og greiða hluta af sinni reiðufjárinnkomu til að allir geti verið nægjusamir.    Þetta PRÓF VAR LAGT FYRIR MIG 4 ÁRA.  BÓLUSETTU GEGN KOMMA RÖKUM. Það á ekki reka þjónustu lögaðila skattmann í samkeppni eintaklinga um að auka viðri launavelta sem skila vsk.      Lokaði leggur vsk. á : vöruveltu + launveltu + hreinar umframeignir í reiðufé.   Greiðir seljendum vöruveltunnar þeirra vsk. og skilar nettá raunvirðis auka til skattmann.   World bank reiknar meðal marksverð [á mörkuðum alla lögsaga] á launveltum og  skatta veltum skattaveltum  [og svo umfram reiðufjár eignir = 0] .  Vegna þess að raun virði peninga er aldrei meira en tekjurnar sem seljast fyrir á hverju skattár að mati 80% nægjusamra. Mat þeir ríku eða skattmann er ekki raunvísindi. Estimation er minnst 4 marktækir tölustafir í uppgefnu marksverði meðal tekjuverða liðins árs. 
  Spákaupmennska er sett til hliðar og þar hafa allir frelsi til fara á hausinn og geta sín í millum gert einka [kröfu tekju] samninga sem koma skattmann ekkert við .  Þar sem allir einsklingar borga Ramma skiptann með stigprósentu lækkandi reiðfjár innkomu skatti af sínum eyðslutekjum í reiðufé : Í USA er laun hærri þar sem allt sem strfsmenn eyða og er ekki hluti að raunverði þjónustu og vöru , er bókað sem þeirra reiðurfjár innkoma [það er áhættu þáttur sem þeir valda].   Það er því óþarfi að skattleggja  reiðufjár umfram ekki eintaklinga, þar sem reiðufé rýnar í raunvirði vsk.  sem ekki er greitt út til einstaklinga sem arður: hreinna eigna í reiðufé.    Hrossa mat er mats atriði kaupenda og seljenda, allment markað mat er löggilt með söluskatti og staðfest með Bank tax control, hluti af rekstrarleyfum banka sem vottast hæfir til verðtrygginga á þjóðartekjum. Viðhalda þeim miða við tekju innkomu liðinna ára.  Common markaðir eru taldir ekki risky : Prime [80% innkoma með innkomu skatti á 1 þrepi]. Þegar ríki eru komin yfir meðatal í raunvirði common tekna þá byrja væntingar ávöxtun á þeim mörkuðum að minnka. Lífeyrissjóða falsið byggir á Íslensku mats hefðum: spilafíkla; oft bundið í genunum.   Fer sérlega illa með vínanda.             

Júlíus Björnsson, 22.6.2013 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418191

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband