Leita í fréttum mbl.is

Önnur trúfélög

eiga heimtingu á ókeypis lóðum eins og þjóðkirkjan sagði Áslaug Friðriksdóttir í þætti á Útvarpi Sögu nú í eftirmiddag.Þessvegna fá múslímar ókeypis lóð.

Þarna er hinsvegar ólíku saman að jafna. Kirkjan átti stóreignir á Íslandi sem Staða Árni hóf að sanka að henni í lok Sturlungaaldar. En kóngurinn stal þeim öllum af henni árið 1550 þegar Lútherstrú var innleidd og pápískan afsköffuð. Íslenska ríkið, sem framhald konungsvaldins, hefur alla tíð viðurkennt þessa skuld við kirkjuna í verki með því að greiða laun  presta  og preláta og borga kirkjubyggingar. 

Múslímar eiga enga heimtingu á svona fyrirgreiðslu. Þeir eiga hér engar fyrningar nema ef vera kynni óuppgerða  reikninga vegna Tyrkjaránsins. Það væri fáránlegt að við ættum að kosta Imama þeirra og moskubyggingar eða ýta undir shjaría lög og aðra forneskju þeirra.  Ættum við kannski að skaffa allskyns sértrúarfyrirbrigðum eins og Hells-Angels eða Pirötum lóðir undir starfsemi sína? Þó svo að af þeim fari ekki síðra röskleikaorð en Islamistum sem öll heimsbyggðin skelfur fyrir? Þar fyrir utan finst mér að erlendir múslímar eigi ekkert erindi sem innflytjendur til Íslands nema til þess að aðlagast okkur í einu og öllu. Annars geta þeir bara verið heima hjá sér og látið okkur í friði. Okkur vanhagar ekki um moskur né Múhameðstrú.

Íslenska þjóðkirkjan er ríkiskirkja og um hana gilda allt önnur lögmál en önnur trúfélög af framantöldum ástæðum.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Geturðu nokkuð frætt mig um það hvernig það atvikaðist að þjóðkirkjan(sem er samkvæmt nafninu eign þjóðarinar)fór að því að eignast jarðir með löglegum hætti?

Jósef Smári Ásmundsson, 23.8.2013 kl. 18:17

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Halldór.

Við Jón Valur Jensson skrifuðum mikið á síðu þína í júlí 2011 um tilurð samnings ríkisins um yfirtöku allra kirkjujarða nema prestssetra árið 1907, en það var um sjötti hluti alls jarðnæðis á Íslandi þá, þar á meðal stór hluti bæjarstæða ýmissa bæja og kauptúna. Sjá blogg þitt :

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1180721/ .

Þar er að finna fróðleik sem menn eins og Jósef Smári Ásmundsson vill ekki hafa uppi, en hann og hans líkar virðast ekki vilja hafa í hávegum „það sem sannara reynist”

Mér datt í hug núna að þú hafir kannski ekki séð innlegg mitt um fróðleik á netinu um Múslima og Kóraninn sem ég setti inn hjá þér :

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1306857/

Þar stendur :

Sjáið frábæra síðu Skúla Skúlasonar sem er einhver fróðasti maður um vágesti þá sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni en síðan hans er

http://www.hrydjuverk.com

Hann hefur stafað sig í gegn um Kóraninn þannig að hann þekkir hann betur en flestir sem tilheyra trúnni, aðrir en prestar hennar. Þá hefur hann kynnt sér hvern þann öfgahóp sem leynist innan um nytsama sakleysingjana í þessari trú og dásama hana, þó bókstafurinn segi annað.

Valdimar er vitaskuld stórfróður einnig um málefnið eins og glöggt má sjá af skrifum hans.

Ef minni mitt bregst mér ekki þá var Skúli eitt sinn Morgunblaðsbloggari en var kærður í bak og fyrir af meðvirkum landanum og líklega islamistum öðrum fyrir að ræða af hreinskilni og engri tæpitungu um málefni Islam og því bannaði starfsfólk Morgunblaðsbloggsins hann út úr blaðinu - en hann hélt skrifum sínum ótrauður áfram á nýjum vettvangi.

Eiga þeir Skúli og Valdimar þökk skilda fyrir skrif sín um þetta og þá vinnu og þrautsegju sem þeir hafa sýnt við að afla sér þeirrar viðamiklu þekkingaar sem þeir búa yfir og miðla til okkkar hinna.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.8.2013 kl. 19:42

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Eitthvað brenglast slóðirnar áðan :

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1306857/

og

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1180721/

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.8.2013 kl. 19:45

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Eftir stendur að svara spurningunni Prédikari.Ég geri mér grein fyrir að menn hafa verið að rökstyðja þessar kirkjujarðir.En spurningin er þessi.Hvernig getur kirkja sem telur sig vera þjóðkirkju átt jarðir.Á ekki þjóðin öll(þ.e.ríkið)þessar jarðir þar sem kirkjan er eign þjóðarinnar.Hvað kemur svo fram í þessu plaggi þínu,fróðleikur sem ég vil ekki hafa uppi.Kemur þar fram hvernig kirkjan eignaðist þessar jarðir,hvernig þær voru keypta og fyrir hvaða verð?Hvar eru afsölin og kaupsamningarnir?Ég ætla að bíða eftir svörum frá þér áður en ég tjái mér meira um þetta.

Jósef Smári Ásmundsson, 24.8.2013 kl. 13:58

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Fann reyndar þessa bloggfærslu Prédikari(Af hverju skrifar þú ekki undir með nafni,leiðist svona nafnleysa).Þar kemur ekkert fram nema að þetta hafi allt saman verið gjafir,væntanlega er þá undirskrift gefenda á þessum löglegu pappírum hjá sýslumönnunum,er það annars ekki,svo menn þurfi ekki að efast um góðan vilja til gjafarinnar?.Og hvers vegna þurfa guðleysingarnir(geri ráð fyrir að þú stimplir mig sem guðleysingja) að borga af launum sínum til þjóðkirkjunnar.Er ríkið eitthvað að nýta sér þessar kirkjujarðir þannig að guðleysingjarnir fái eðlilegt afgjald.Í það fyrsta þá hefur nú komið fram áður í fréttum að þessar jarðeignir eru ekki tilgreindar i þessum "samningi"ríkisins(þjóðarinnar)og kirkju(þjóðarinnar).Er ekki bara lang eðlilegast að skráðir meðlimir í þjóðkirkjunni borgi allan kosnað hennar?Ef þú vilt meina annað svaraðu þá hvers vegna ekki.

Jósef Smári Ásmundsson, 24.8.2013 kl. 14:25

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég sé að prédikari á í svolitlum erfiðleikum með að svara.Er honum eitthvað illa við að tjá sig um það "sem sannara reynist".?

Jósef Smári Ásmundsson, 25.8.2013 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband