Leita í fréttum mbl.is

Húrra fyrir bönkunum

Íslandsbanka og Aríon sem græða 40 milljarða á íslenskum almenningi.

Er enginn hissa á að þessu sé slegið upp sem fagnaðarfréttum fyrir landsmenn? Að útlendir hrægammar sem eiga þessi fyrirtæki hafi getað sogið þetta lífsblóð úr hálsi Jóns og Gunnu?

Eigum við ekki að halda hátíð og dansa á götunum af fögnuði?

Húrra fyrir bönkunum! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

En ætlar Sigmundur Davíð ekki að fá þessa peninga frá "hrægömmunum"? Ég bið spennt!

Úrsúla Jünemann, 30.8.2013 kl. 16:55

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Frábær grein Halldór. Þetta er það sem Austur þýska kommúnistastjórnin bauð upp á. Svo  rífur sérlegur fulltrúi þeirra Úrsúla Jünemann kjaft. Kunna ekki að skammast sín.

Sigurður Þorsteinsson, 30.8.2013 kl. 18:28

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvernig geta bankarnir grætt svona mikið af bláfátækum landslíð eins og Gunnu og Jón?

Kanski að vextir séu of háir og kanski að verðtryggingin hjálpi aðeins til líka?

Lánastofnanir haga sér eins og þær vilja og lög skiptir lánastofnanir engu máli, ef Gunna og Jón benda lánastofnunum á að eitthvað sé ekki rétt, þá er sama svarið sem Gunna og Jón fá; "þá farið þið bara í mál ef ykkur líkar ekki að við séum að féfletta ykkur."

En aumingja Gunna og Jón eiga ekki fyrir því fjárhagslega að halda úti lögfræðingum í marga mánuði, jafnvel mörg ár og það vita lánastofnanir.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 30.8.2013 kl. 23:22

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Heyr! Erum við ekki afl,? Icesave, flugvöllurinn,gerum banka,blanka,koma svo!!!

Helga Kristjánsdóttir, 31.8.2013 kl. 01:53

5 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hljómar vel Helga "Gera banka, blanka."

Og hverjir mundu tapa á því þó bankarnir yrðu blankir? Bara útlendir hrægammar eftir pistlinum að dæma og er Gunnu og Jóni ekki alveg sama hvort útlendir hrægammar fái engan hagnað, ég bízt hreinlega við því?

"Gera banka, blanka." ;>)

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 31.8.2013 kl. 10:57

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 31.8.2013 kl. 23:57

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Tómur sjóður

 

Einhver sagði:

Ætlar  Sigmundur Davíð ekki að ná í einhverja peninga

frá hrægömmunum?

(endurtekið)

Það er mesti misskilningur.

 

Stjórnin á að búa til nýjan íbúðalánasjóð til hliðar við þann gamla,

 

Sjóðurinn á að vera tómur, gal tómur.

 

Að vísu höfum við 10 miljarða sem stuðpúða fyrir sjóðinn.

 

Síðan kaupir tómi sjóðurinn með ávísun allar íbúðir af fjármálafyrirtækjunum, bönkunum

sem íbúðaeigendur vilja flytja í sjóðinn.

 

Tómi sjóðurinn tekur íbúðirnar inn sem veð og samkvæmt bankareglum,

býr sjóðurinn til peninga í samræmi við veðin.

 

Þessa peninga notar tómi sjóðurinn til að greiða fyrir ávísanirnar,

Sem hann hafði notað til að greiða íbúðirnar.

 

Eign fyrrverandi eigenda fékk hann greidda í biðsjóð þegar íbúðin var keypt

af fjármálafyrirtækinu.

 

Næsta skref er að selja íbúðirnar til fyrri eigenda á byggingaverði plús lóð og staðsetningu.

 

Fyrst gengur það sem húseigandinn átti í húsinu sem greiðsla upp í íbúðina.

 

Tómi sjóðurinn selur nú fyrri eigendum íbúðirnar með skuld (lán (á að vera yfirstrikað))

til 30 til 60 ára, með 0,5% umsýslu vöxtum.

 

Skuldin verður verðtryggð í til dæmis launum.

 

Ekkert er því til fyrirstöðu að greiðslugeta, það er tekjur og sanngirni, með mikilli festu,

ráði árafjölda lánstímans.

 

Aukavextir 0,5% mætti ef til vill setja í varasjóð.

Nú verð ég að hætta.

Aldrei að skipta við fjárfesta

Hér á að koma broskarl.

 

Egilsstaðir, 01.09.2013  Jónas Gunnlaugsson

 

Jónas Gunnlaugsson, 1.9.2013 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband