Leita í fréttum mbl.is

Á Sprengisandi

 

hjá Sigurjóni Egils var Kári Stefánsson ásamt Stefáni Jóni Hafstein og Unni Brá.

Mikiđ skelfing  fannst mér leiđinlegt  ađ hlusta á Stefán lýsa afrekum Samfylkingarinnar á síđasta kjörtímabili.

Kára fannst samt fremur lítiđ til koma afreka fyrri ríkisstjórnar og taldi ađ jafnvel hefđu ţađ veriđ samantekin ráđ annarra ţjóđa eftir G10 fund ađ láta Ísland laxéra duglega. Til dćmis hefđu Svíar dregiđ ađ sér útrétta hönd eftir ţađ. Hann taldi ađ stađan á Íslandi hefđi getađ veriđ orđin miklu betri ef fyrri ríkisstjórn hefđi tekiđ öđruvísi  á málum og ađstođ annarra ţjóđa hefđi ekki veriđ afturkölluđ og okkur veriđ heimiluđ gjaldeyrisskipti eins og öđrum ţjóđum.  

Óprýđi var á umrćđunni ţegar Stefán Jón  rauk ítrekađ upp upp međ Samfylkingarrulluna um snilld Jóhönnu og Steingríms sem nytu virđingar og viđurkenningar um allan heim fyrir afrek sín. Ţađ var ţó alls ekki allt alvitlaust sem hann sagđi í bland svo sem um ástandiđ á fjármálamarkađi um ţessar mundir.

Kári lagđi ţunga áherslu á hversu viđ hefđum holađ innan verlferđarkerfiđ og heilbrigđiskerfiđ. Hann talar virkilega af sannfćringu um skyldur okkar ţjóđar til ađ sinna betur hinum veiku. Unnur Brá vildi hafa miklar áhyggjur af löggćslumálum en Kári vildi hafa meiri áhyggjur af ţví ađ sjúkrabill ţyrfti ađ keyra framhjá einu slysi til ađ sinna öđru vegna sífellds niđurskurđar. Ţjóđfélagiđ yrđi ađ hafa velferđar og helbrigđskerfi ef ţađ ćtti ađ standast sjálft.

Upphróp og frammítökur  Stefáns Jóns  um ágćti Samfylkingar yfirskyggđi ađ vonum margt skynsamlegt sem kom fram hjá hinum. Ţó hann segđi ţađ ekki beint ţá var greinileg  ađ eftirsjá eftir ESB ađild inni yfirskyggir annađ í hans huga, svo slćmt sem ástandiđ vćri hjá okkur. En Stefán  sagđi samt réttilega ađ fjármálakerfiđ vćri  rotiđ á Íslandi sem ţađ er. Bankarnir raka saman gróđa og tútna út međ miklum vaxtamun en lífeyrissjóđir sem vćri klíkustjórnađ vćru ađ blása í bólur og taka yfir fyrirtćki landsmanna í stórum stíl.

Kári benti á ađ valdiđ hefđi veriđ fariđ ađ fćrast úr höndum stjórnmálamanna fyrir hrun og veriđ komiđ til fjármálafyrirtćkjanna  og sér sýndist ţađ sama vera ađ endurtaka sig núna án ţess ađ stjórnmálamenn gerđu nokkkuđ í ţví. Kári og Stefán voru sammála í ţví ađ vona ađ ríkisstjórnin myndi koma fram međ stefnu sem vísađi veginn fram.

Kári tók sérstaklega fram ađ hann vonađi ađ menntamálaráđherra hefđi kjark til ađ loka háskólanum á Bifröst, sem ekkert leggđi til samfélagsins, sameina háskólana í Reykjavík, loka Hólaskóla og fela háskólanum á Akureyri frekar verkmenntun en bókvísi.

Hann taldi rangt  ađ stytta leiđ til stúdentsprófs ţar sem íslenskir stúdentar stćđu sig yfirleitt vel í námi viđ erlenda háskóla sem sannađi gildi almennrar menntunar. Íslenskir háskólar ćttu heldur ekki ađ vera ađ keppa innbyrđis heldur frekar ađ keppa viđ erlenda háskóla.

Ţađ eru orđ ađ sönnu ađ fjármálakerfiđ á Íslandi er orđiđ gerspillt. Lífeyrissjóđir vađa uppi  og leggja undir stjórnendur sína völd og áhrif sem engin fótur ćtti ađ vera fyrir.Ţví er slegiđ upp sem fagnađarbođskap ţegar ţessi batterí stofna nýja sjóđi til ađ braska međ lífeyrispeninga okkar undir forystu einhvers manns sem fćstir ţekkja né vita hvađan kemur.Lífeyrissjóđakerfiđ okkar  er rotiđ inn ađ kjarna en ţví miđur er enginn sem vill taka á ţví máli. Völd stjórnendanna í gegnum peningana er orđiđ ţvílíkt ađ ţeir geta ógnađ hverjum sem er og gera ţađ.

Ríkisbankarnir, gamli og nýi Landsbankinn vađa upp stjórnlaust međ sjálfstćđa tilveru, spređa út ríkiseignum til sjálfra sín. Sagt er opinberlega ađ starfsmenn fjármálafyrirtćkja séu á fullu fyrir sjálfa sig um leiđ og ţeir víla og díla međ ţá peninga sem ţeim er trúađ fyrir.

Enginn veit hvađ fram fer í skilanefndunum sem virđast ráđnar til eilífđarnóns. Ţađ  ţótti ekki fréttnćmt einu sinni ađ fjórir skilanefndarmenn hefđu til dćmis skipt međ sér 160 milljónum á fyrrihluta ţessa árs. Og veit nokkur hvađ er raunverulega ađ gerast í Íslandsbanka eđa Aríonbanka eđa hverjir séu eigendur ţeirra í raun og veru?

Löngu er orđiđ tímabćrt ađ Sprengisandur taki fjármálakerfiđ fyrir og fái alvöru menn til ađ fjalla um ţađ. Jón Daníelsson virtist hafa margt fram ađ fćra í ţví samhengi. Ólafur Arnarson og Guđmundur Franklín koma líka í hugann ţegar leitađ er ađ spyrjendum sem bragđ vćri ađ.

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband