Leita í fréttum mbl.is

Áhættugreining á Norðurslóðum

er nauðsynleg því  "Eigi að hefja starfsemi á Drekasvæðinu verður að auka mjög getu hér á landi til að bregðast við verði óhapp eða slys á svæðinu. Þetta er mat Björns Karlssonar, verkfræðings og sérfræðings á sviði áhættuverkfræði.

 

Öryggismál á hafísslóðum voru á dagskrá alþjóðlegu hafísráðstefnunnar í gær. Björn hélt þar erindi sem hann byggði á aðferðafræði áhættumats (risk evaluation), áhættugreiningar (risk analysis) og áhættustjórnunar (risk management). Björn var prófessor við verkfræðideild Háskólans í Lundi í 17 ár og kenndi m.a. áhættuverkfræði.

 

Aðferðafræði áhættustjórnunar er hægt að nota til að meta áhættu og eins hvaða forvarnir geta minnkað hana. Þá er hægt að meta hvaða viðbúnaður þarf að vera til staðar reynist forvarnirnar ekki fullnægjandi. Björn tók dæmi af mögulegri olíuvinnslu á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi.

 

»Eigi að fara út í mikla starfsemi þarna fyrir norðaustan Ísland er alveg ljóst að það verður að auka viðbúnað,« sagði Björn í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að Landhelgisgæslan væri sérfróð á sviði björgunarstarfa og hefði byggt upp sambönd við viðbragðsaðila í nágrannaríkjum okkar.

 

»Gerist stóratburður á Drekasvæðinu verðum við að geta nýtt okkur sambönd og búnað nágrannaríkja. Landhelgisgæslan hefur verið mjög öflug í að taka þátt í alþjóðlegum æfingum. Ég tel einnig ljóst að hefjist þarna starfsemi þá verðum við að efla Landhelgisgæsluna og skoða miklu betur þyrlugetuna.«

 

Drekasvæðið er um 400 km norðaustan við Ísland. Björn sagði tæpast hægt að nota þyrlur til að sinna svæðinu frá Íslandi nema einhvers konar björgunarpallur eða björgunarskip væri staðsett á leiðinni.

 

Björn sagði að sú krafa hlyti að verða gerð til þeirra sem fá starfsleyfi til olíuvinnslu á Drekasvæðinu að þeir komi upp björgunarpalli eða verði með björgunarskip á leiðinni milli Íslands og olíuvinnslusvæðisins. Einnig þurfi að gera kröfu um náið samstarf þeirra við Landhelgisgæsluna og aðra björgunaraðila hér á landi þannig að hægt verði að samnýta tæki verði þörf á því

 

»Samtímis verður skynsamlegt fyrir Íslendinga að auka getu Landhelgisgæslunnar til björgunarstarfa,« sagði Björn. Hann sagði marga möguleika vera í stöðunni, til dæmis að setja upp björgunarmiðstöð á norðausturhorni landsins. Nota megi aðferðafræði áhættugreiningar til að meta möguleikana og kostnaðinn við þá. Eins þyrfti að meta hverju mætti ná með samstarfi við nágrannaþjóðir. gudni@mbl.is "

Svo segir í Morgunblaðinu í dag.

Ég vil rifja upp að fyrir þó nokkru kom útgerðarmaðurinn Steingrímur Erlingsson fram með þá hugmynd að fá gamlan olíuborpall sem þá var til sölu fyrir slikk til að setja niður ofan á Kolbeinsey. Taldi Steingrímur að þetta þyrfti ekki að kosta nema um hálfan milljarð í stofni. Með þessu myndi tvennt vinnast. Björgunarpallur sem Björn talar um og svo að Kolbeinsey myndi varðveitast sem útvörður Íslands. En hún er óðum að hverfa í sæ.

Þeir þingmenn sem kynntir voru fyrir hugmyndinni höfðu lítinn áhuga þar sem miðlína hefði verið ákveðin milli Grænlands og Íslands og þýðing Kolbeinseyjar þar með minnkað.  Það er því óvænt að Björn Karlsson talar um björgunarpall eða björgunarskip á norðurslóðum þurfi Íslendingar að halda úti þjónustu á svæðinu. Á svona palli eru nægar vistarverur og geymslur  fyrir nauðsynjar akkúrat á þeim stað sem þarf. Og margfalt ódýrari en nýtt varðskip. Björgunarþyrla þar myndi þjóna hálfu Íslandi um leið og hún væri í kallfæri við Drekasvæðið.

Er ekki líklegt að hægt væri að blása til samstarfsverkefnis með Norðurskautsþjóðum um svona mál?

Mér fannst hugmynd eldhugans Steingríms Erlingssonar  allrar athygli verð þregar rætt er um áhættugreiningu á Norðurslóðum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sumir eru með athyglisverðar hugmyndir,en er aldrei ansað.Er með fyrirspurn til þín gegnum stjórnborð.

Helga Kristjánsdóttir, 24.10.2013 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband