Leita í fréttum mbl.is

RÚV

er sífellt bitbein komma, krata og kumpána annarra flokka og sérvitringa.

Nú er Ögmundur að þenja sig á Bylgjunni í morgunsárið að skamma Illuga fyrir að stela nefskattinum til RÚV í ríkissjóð og  auka á móti því að  tekjurnar af auglýsingum sem Öggi hafði minnkað. Þessi íhaldsskattur sem Þorgerður kom á er til RÚV og á að fara þangað eða fella hann niður. Ekki í neitt annað.

Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Ég lét þennan nefskatt yfir mig ganga og gat enda ekki annað. En ég er ekki sáttur við að honum sé stolið í annað frekar en að bensíngjöldunum sem áttu að renna til vegagerðari hafi alltaf verið stolið í niðurgreiðslur til landbúnaðarins og alls kyns vitleysur. Hvaðan kemur Ögga sú viska að auglýsingar skuli skornar niður? Er hann að þóknast Ara Edwald og gamla Baugsveldinu?  Eru það ekki auglýsendurnir sjálfir sem ákveða þær? RÚV er einfaldlega með mest áhorf.

Ég horfi líka mest á RÚV og svo á ÍNN af því að það kostar ekki aukalega. Ég hlusta á Bylgjuna og Sögu af því að ég greiði ekki aukalega fyrir það. Ég sé og heyri auglýsingar á þessum stöðum. En ég get sleppt því án þess að þjást fyrir það.  Ég sé ekki Stöð2  af því að ég tími ekki að borga fyrir hana og sé þar af leiðandi ekki auglýsingar sem flytjast þangað af RÚV. Ég keypti hana einu sinni en fannst hún svo léleg að mér fannst ekki taka því.

Hvaðan kemur þessum spekingum Ögmundi og Illuga þessi forsjárhyggja? Báðir ætla  að stýra mínu áhorfi. Annar með kommakrumlunni en hinn með bláu höndinni.

Bylgjan og 365 hossa sér af því að það á að skerða RÚV um 100 milljónir að mati Páls Magnússonar. RÚV er óþarft apparat að þeirra mati og vilja loka því. Sama er mér í rauninni. Ég sé ekki að RÚV geri neitt fyrir mig sem ég hef einhvern beinan hag af. Nema að skemmta mér með með áberandi hlutdrægum fréttaflutningi sem allir sjá að er yfirleitt viðbrenndur vinstrigrautur. En ég treysti 365 miðlum ekki hætishót betur með Stöð2, Bylgjuna  og Fréttablaðið.His Masters Voice.

Bretar hafa BBC til að flytja tíðindi og fleira. NPR flytur einu áreiðanlegu  fréttirnar í USA og almenningur borgar það með frjálsum framlögum. Ef einhver fjölmiðill nær því að honum sé treyst þá hætta hinir síður á að flytja lygar. Eins og er veit enginn á Íslandi hvaða fjölmiðill lýgur minnst að RÚV meðtöldu. Það er engum að treysta nema helst Mogganum til að segja satt og rétt frá. Em  það dugar ekki því nógu margir lesa bara ekki Mogga. 

Annaðhvort höfum við RÚV eða höfum það ekki. Ef við höfum það þá á það að taka allar auglýsingar sem það  nær í og þá má minnka ríkisframlagið helst oní ekki neitt. Þar styð ég Illuga fremur en Ögga. Ég gef lítið fyrir þeta menningarhlutverk og innlenda þáttagerð eins og áramótaskaupið. Það má sleppa flestu af þessu. Krakkarnir horfa á auglýsingarnar þó mér leiðist þær ferlega. Flest er svo misleiðinlegt í dagskránni  og maður leitar í útlendu stöðvarnar sem eru oftast jafn leiðinlegar svo maður endar í tölvunni.

En mér leiðist líka ferlega að hlusta á Ögga og Illuga þrátta um hlutverk RÚV og hver eigi að borga og svo þetta smjatt í 365 og Sögu á því hvað RÚV sé bölvað. Eru þeir eitthvað svo mikið betri að ég nenni að elta þá frekar en RÚV? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

„Hvaðan kemur þessum spekingum Ögmundi og Illuga þessi forsjárhyggja? Báðir ætla að stýra mínu áhorfi. Annar með kommakrumlunni en hinn með bláu höndinni."

Þetta er nú skrambi fyndið hjá þér! Þú kemst á gott flug í þessum pistli.

Wilhelm Emilsson, 29.10.2013 kl. 05:34

2 Smámynd: Elle_

Halldór getur verið sniðugur.  Já, hvaðan kemur þessi leiðinlega forsjárhyggja?  Hvað gerði Þorgerði svo merkilegt að hún gæti ýtt undir nauðungarskatt á okkur öll fyrir stöð sem við viljum ekki?  Ekki það að ég vilji hinar íslensku stöðvarnar, alls ekki og enn síður, en ég vil ekki borga fyrir það sem ég kýs ekki.  Pínist til að hlusta endrum og sinnum, bara svo mér finnist ég ekki vera að kasta peningum í sjóinn.

Elle_, 30.10.2013 kl. 21:22

3 Smámynd: Elle_

En hví ætli ég sé núna komin með sektarkennd fyrir að niðulægja RUV?

Elle_, 5.11.2013 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband